19. júní - 01.10.1920, Blaðsíða 6

19. júní - 01.10.1920, Blaðsíða 6
30 19. JÖNl um aðallega í þessum atriðum: Með- lagið á eftir frumvarpinu að greiðast fyrirfram, en nú verður aðeins krafið um það eftir á. Greiðsla dvalarsveit- ar á meðlagshluta föðursins, verður eftir frumvarpinu aldrei talinn sveit- arstyrkur veittur móðurinni, en það á sér stað nú, er svo stendur á að barnsfaðirinn er dáinn eða farinn af landi burt, þegar meðlagið féll í gjald- daga. Enn má geta þess, að skv. 22. gr. frumvarpsins má skylda barns- föður til að leggja fram aukastyrk til hjúkrunar barninu eða lækningar eða greftrunar, ef það sýkist eða andast á ómagaaldri og að 23. gr. leggur sömu skyldu á föður og móður til að standa straum af þurfandi, óskil- getnum börnum, eftir að þau eru komin úr ómegð, enda lætur óskil- getið barn hafa sömu framfærslu- skyldu gagnvart föður og gagnvart rnóður. Alt eru þetta nýmæli. Þá hefir frumvarpið ennfremur að geyma ítarleg ákvæði um faðernisjátningu, barnsfaðernismál, forræði barnsins og skilgerð. (Frh.) r Urtak af orðum frá móðurmálsnefnd L. F. K. R. Hér kemur þá fyrsta úrtakið af orðasafni nefndar lestrarfélagsins. Er því skíft í tvent: nýyrði og orð sem áður hafa til verið en of fáir notað. Eru í fyrra dálki þau orð sem áður hafa alment verið notuð, en í hinum síðari þau, er æskilegt væri að upp yrðu tekin í þeirra stað. Berið nú saman þessa dálk og spyrjU sjálfa ykkur hvert fallegra sé eða fari betur í málinu. Og notið svo eingöngu það er ykkur þykir betra. Máske kostar það dálitla fyrirhöfn í fyrstu, en sú fyrirhöfn margborgar sig. Munið að sagt hefir verið um tungu vora: Fegurra mál á ei veröldin víð né varðveitt betur á raunanna tíð; og þrátt tyrir týzkur og lenzkur og [lýzkur það lifa skal ómengað fyr og síð. Án þess týnist einkenni og þjóðerni [mannsins, án þess glatast metnaður landsins. ballansilampi = draglampi. dragt = gangföt. etasjeri = syllur. kabinet = dyngja. krullujárn = hártengur. mannsjettur = línstúkur. múffa = loðstúka. olíubehollari = olíubyða. prufa = úrtak. rúllugardínur = vindutjöld. servietta = mundlína. sjalusia = svifta. sjemisa = serkur. skriveunnerlag = ritfell. tevarmer = hlúð. tojelett = snyrting. tojelettmubla = snyrtiborð. að gera tojelette = að snyrta sig. túba = skálpur. adressa = heimilisfang. barnapia = barnfóstra. barómeter = loftvog. betrek = veggfóður. blúss = dreifir. búket = blómvöndur. dekketau = borðlín. dukka = brúða.

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/199

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.