19. júní - 01.10.1920, Qupperneq 7

19. júní - 01.10.1920, Qupperneq 7
19. JÚNÍ 31 dúsin = tylft. eftirmiðdagur = síðdegi. eggjapískari = eggjaþyrill. eldamaskina = eldstó. familia = fjölskylda. fatatau = fataefni. formiðdagur = árdegi. fægikústur = handsópur. galossíur = skóhlífar. gamasjur = legghlífar. gardínur = gluggatjöld. gólfskrúbba = gólfbursti. hálstau = hálslin. kastarhola = skaftpottur. karklútur = þvaga. kokkhús = eldhús. kontor = skrifstofa. korktrekkjari = tappatogari. kústur = sópur. lampapússari = glasabursti. löber = refill. magarin = smjörliki. móður = tizka. mublur = húsgögn. pakki = böggull. pelskápa = loðkápa. portjerar = dyratjöld. servantur = þvottaborð. skammel = fótaskör. slör = blæja. skjört = millipils. spiskamers = búr. stufklútur = rykþurka. tauskápur = línskápur. tauvinda = þvottavinda. undirlíf = millibolur. ventilation = loftræsing. verelsi = herbergi. vifta = blævængur. visitkort = nafnspjald. Hún: Hefurðu tekið eftir þvi hve mikið er talað um hana Klöru nú í seinni tíð? Hann: Hvað er þá sagt um hana? Hun: Jú, að um daginn hafi hún verið i samkvæmi, i kjól sem á var bæði bak og boðangur. Liestrarfélag1 kvenna í Reykjavík. Vísirinn að félagi þessu, er leslrar- stofa, er kvenréttinJafélagið kom á fót fyrir félagskonur, fyrir 14—15 árum. En árið 1911, breyttist fyrir- komulagið þannig að stofnað var sérstakt félag, er keypti bækur kven- réttindafélagsins og hefir þetta félag síðan starfað sem lestrarfélag og er ölium konum heimilt að gerast með- limir í því. Eru félagskonur nú nær 200, og á félagið um 1650 bindi bóka. Auk þess kaupir það nokkur útlend og innlend tímarit. Meðan félagið hafði völ á góðu húsnæði hélt það uppi leststofu handa börnum og fékk til þess dálítinn styrk úr bæjar- sjóði. Börnin gátu, auk þess sem þau áttu þar kost á að lesa ýmsar bækur við þeirra hæfi, átt kost á að fá tilsögn við skólalexíur sinar. Barnalesstofan var mjög vel sótt, og er það skaði að félagið, vegna þröngs húsnæðis verður að leggja hana niður í vetur. Útlán eru fjörum sinnum í viku og annast fé- lagskonur þau, eins og þær einnig sáu um lestrarstofu barna. Fundi heldur félagið nokkra á hverjum vetri. Meðan það hafði svo stórt húsnæði að nægði til fundar- halda, voru fundnir haldnir i hverj- um mánuði, en síðasta vetur voru þeir að eins þrír. Félagið hefir öll árin haft skrifað blað (mánaðarrit), er lesið er upp á fundum. Um það annast ritnefnd, sem kosin er fyrir hvert blað, á næsta fundi á undan.

x

19. júní

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/199

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.