19. júní - 01.04.1922, Blaðsíða 1

19. júní - 01.04.1922, Blaðsíða 1
19. JUNI arg. Reykjavík, apríl 1922. 10. thk + Frú Þórunn Jónassen. Hinn 18. J>. m. andaðisl að heimili sinu hér í hænum, frú í’órunn Jónas- sen, ekkja Jónasar Jónassen landlæknis. Hún var fædd 12. júní 1850, dóttir Pét- urs Hafsteins amt- manns og konu hans frú Guðrúnar Hann- esdóttur Stephensen frá Innra-Hólmi. Frú Jónassen var hér mestan hluta æfi sinnar og hér starf- aði hún um inarga tugi ára. Hún tók rnikinn þátt í félags- liti og var einn af stofnendum Thor- valdsensfélagsins. Varð hún þá þegar formaður þess og hélt því starfi til dauðadags. Frú Jónassen var lífið og sálin í þeim félagsskap; að Thor- valdsensfélagið varð svo öflugt, kom svo mörgu í framkvæmd, var fyrst og fremst hennar verk. Og þegar að fám árum liðnum verður skráð 50 árn saga þess félags, mun nafn I*. J. standa þar á hverju blaði. Með stofnun þess og starfi sínu í þvf, hefir hún reisl sér óbrotgjarnan bautastein. I félaginu hennar störfuðu allir sem einn maður, þaðan heyrðist aldrei ósamróma rödd, viljinn sem stjórnaði því var fastur en gætinn, félagskonur í því félagi lögðu glaðar á sig meira slarf, en konur ella leysa af hendi f fé- n, þær vissu sem var, að formað- urinn bar sinn hluta starfsins. Utsalan á heimaunnum mun- um, sem Thorvald- sensfélagið kom á, krafðist mikils starfs. Frú Jónassen gal' þessari einu grein félagsstarfsins einn dag í viku frá þvi bazarinn hófst og þar til nú fyrir nokkrum árum, eftir það einn dag í hverjum hálfum mánuði. Má þó nærri geta að mörg önnur störf félagsins hafa hvilt á henni, for- manninum. En þótt frú Þórunn Jónassen gæfi Thorvaldsensfélaginu svona mikið af starfskröflum sínum, vanst henni þó timi til að inna mikil störf af hendi Frú Þórunn Jónassen.

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/199

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.