19. júní - 01.04.1922, Blaðsíða 6

19. júní - 01.04.1922, Blaðsíða 6
78 19. JÚNI Rímur og gömul kvæði kann það ut- anað, sömuleiðis þulur, sálma og bænir, og við erum oft hissa á því, hve stálminnugt gamalt fólk er. En orsökin til þess hlýtur að vera sú, að það hefur tekið með svo mikilli alúð og feginleik á móti því sem það átti kost á af bókmentum, að það hefur fest svo (ljúpar rætur, að um gleymsku hefur ekki verið að tala. Ástundan og iðni gamla fólksins er oft framúr- skarandi, þótt aðstæðurnar oft og einatt hafi verið og séu þannig, að það virðist stundum bera lítið úr býtum. Með linum þessutn vil ég engan vegin gefa það i skyn, að eg álíti gamla fólkið (er við köllum svo), vera gallalaust. Auðvitað hefur það sína kosti og lesti, eins og yngra fólkið. En eg vil að við könnumst við kosti þess og yfirburði, þar sem um slíkt er að ræða, höfum það í heiðri, tökum fegins hendi við gull- kornuin þeim, er það vill rélta okk- ur frá liðnum tímum og gerum því ellina eins ánægjulega og léttbæra og auðið er. Að vísu veit eg, að sem betur fer er þetta víða gert. En hins eru líka sorgleg dæmi, að við gainal- menni er breytt miður en skyldi. En slíkt má hvergi eiga sér slað. Alstaðar verðum við að stuðla að því eftir mælti: að hausthugi breytist i vorhuga, ejli í æsku. Jóna Kristjánsdóttir Fjalldal á Melgraseyri. • • Orðugleikar. Mönnum hættir við að einblina um of á örðugleikana. Þegar ein- liverju skal koma í framkvæmd sjá margir ekkerl annað en örðugleika og telja vandkvæði á öllu. En sem betur fer koma oftasl fram aðrar raddir, sem ekki telja úr, og því fer það oft svo, að það sem ýmsum sýn- ist óframkvæmanlegt reynist vel fram- kvæmanlegt. Nú eru konur að undirbúa sinn sérstaka landskjörslista. Á þessu sjá margar ótal vandkvæði. Og satt er það, örðugleikarnir eru miklir. Kon- ur hafa ekkert kosningafélag með sér, hér er enginn sérstakur kvenna- flokkur. þær eru óvanar að slarfa að jafn umsvifamiklum kosningum, sem landskosningum og vegna óvanans verður þeim starfið örðugt. Ef vér eigum að koma upp listan- um okkar, ef vér eigum að geta framkvæmt undirbúninginn undir hann í tæka tíð, megum við ekki einblína á örðugleikana. Vér eigum að eins að gera oss grein fyrir þeim, ekki til þess að láta þá hræða okkur eða aftra, heldur til þess að átla okkur á því, hvað það er sem á þarf að vinna bug. Vér verðum að gera oss Ijóst, að hér gelum vér ekki vænst hjálpar annara en sjálfra vor, og að vér höf- um ábyrgð á listanum. Erfiðleikana sem á því eru, að koma listanum upp í læka líð og að öllu leyli lögum samkvæml, mumt

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/199

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.