19. júní - 01.04.1922, Síða 7
í 9. JÖNÍ
79
þær koiiur, er að því vinna, verða
færar um að yflrstíga.
En þó listinn verði settur upp og
komist til kjörstjórnar í tæka tíð og
með réttri tölu meðmælenda úr hverj-
um landsfjórðungi, eru ekki allir
erfiðleikar á enda. Nei, stærsti erfið-
leikinn er eftir, sá, að listinn fái næg
atkvæði til þess að fara ekki algerða
fýluferð. Og á þann örðugleika, sem
á þessu er megum við ekki einblína.
Engin kona, 35 ára, sem kosningar-
rétt hefir, má láta hann draga úr sér
kjark. Hins vegar skulum við allar
gera oss Ijóst, að þessi örðugleiki er
svo mikill að ekki veitir af samein-
uðum kröftum okkar allra til þess
að hrinda honum úr vegi. Hvert eitt
atkvæði er lítið út af fyrir sig, en
sé það lagt saman við aðra tölu
hækkar það hana. Engin kona má
þess vegna hugsa svo, að ekki muni
um silt atkvæði, það verði ekki til
þess að hrinda neinum örðugleika
úr vegi.
I’ví það sem sigur veitir hér, eru
atkvæði einstaklinganna, ef nógu
mnrgir leggja þau fram.
Hvað má höndin ein og ein
allar vinnum saman.
Styðjum því allar kvenna listann.
Til athugunar.
Þær konur, er safna rneðmælendum
að landskjörslista kvenna, eru beðnar að
athuga, að séu nöfnin send skriflega, þurfa
þau að vera rituð með eigin hendi með-
mælenda, stöðu- og heimilisfang skal og
tilgreina.
Á undan undirskriftunum sé yfirlýsing á
pá leið að undirritaðar styðji lista pann
til landskjörs, er fröken Ingibjörg II.
Bjarnason sé etst á.
Séu nöfnin scnd símleiðis verður sím-
skeytið með yfirlýsingunni, nöfnum, heim-
ilisfangi og stöðu meðmælenda, að vera
staðfest af stöðvarstjóra. Meðmælendur
skulu hafa náð 35 ára aldri.
Nöfn meðmælenda verða að vera komin
til kosninganefndarinnar í Reykjavik eigi
síðar en 10. maí.
Gaman væri að fá meðmælendur úr
sem allra flestum sveitum.
Handavinna.
Prjónað handklœði. Úr grófu bómullar-
garni eða laust tvinnuðu vefjargarni, má
prjóna ágæt og mjög sterk handktæði.
Prjóna hæfilega laust og fitja upp eftir
pví hve stórt handklæðið skal vera. Úr
hómullargarní nr. 10 er hæfilegt að fitja
upp 130 lykkjur. Fyrst skal prjóna 8 prjóna
slétta, garðaprjón, siðan prjóna 2 lykkjur
bregða um prjóninn, prjóna 2 sarnan og
pannig á víxl brugðið um prjóninn og 2
saman par til tvær lykkjur eru eftir á
prjóninum, pær eru prjónaðar slétlar. 10.
prjónn sléttur, 11. prjónn eins og sá 9.,
12. prjónn sléttur, 13. prjónn eins og 9.,
síðan eru aftur prjónaðir 8 prjónar sléttir.
Petta er bekkur til endanna en nú tekur
miðjan við og er pá prjónað á víxl 4
sléttar og 4 brugðnar, pannig að myndist
sléttir og brugðnir ferhyrningar. Pegar
4 umferðir eru búnar, er skift um og
prjónað brugðið pað sem áður var slétt,
svo að reitirnir verði á víxl. Til beggja
hliða skal jafnan prjóna 5 lykkjur sléttar.
Pegar handklæðið er orðið nógu langt
er bekkurinn prjónaður og síðan felt af.
Kögur er dregið í á báðum endum.