19. júní - 01.07.1924, Qupperneq 1
19. JUNI
YII. árg.
Reykjavík, júlí 1924.
7. tbl.
Frú Jarþr. Jónsdóttir.
Frú Jarþrúður Jónsdóttir, kona
þjóðskjalavarðar Hannesar Þorsteins-
sonar, andaðist að
heimili sínu 16.
april s. 1. Frú Jar-
þrúður sál. var fyrir
margra hluta sakir
merkiskona og telur
»19. júní« sér skylt
að minnast hennar
með nokkrum orð-
um. FrúJarþrúður
var fædd 28. sept.
1851. — Foreldrar
hennar voru Jón
Pétursson.síðar há-
yfirdómari og fyrri
kona hansJóhanna,
dóttir Boga Bene-
diktssonar á Stað-
arfelli. Frú Jarþr.
misti móður sína í
bernsku og ólst upp
með föður sínum
og stjúpu, frú Sigþrúði Friðriks-
dóttur, frá Akureyjum. Frú Jarþrúður
var stórgáfuð kona og naut í æsku
þeirrar bestu mentunar, er konur hér
á landi áttu kost. Hún þráði að
mega nema bókleg fræði og var það
henni mikið hrygðarefni að mega
ekki ganga þann eina veg til ment-
unar, er þá var til í landinu — fara
í latínuskólann. — En þar voru allar
dyr harðlæstar fyrir konum, hversu
vel sem unga stúlkan var gefin, hversu
mikið sem hana
langaði, varð hún
á þeim tímum að
láta sér lynda að
horfa á eftir bræðr-
um sínum inn í
þann helgidóm.
Fröken Augusta
Johnsen, systir frú
Thoru Melsted, hélt
uppi skóla fyrir
ungar stúlkur hér
í Reykjavík og hjá
henni lærði frú
Jarþrúður bæði til
munns og handa.
Síðar dvaldi hún
við nám bæði í
Danmörku og Skot-
landi. Þegar heim
kom, gerðist hún
kennari viðkvenna-
skólann í Reykjavík. Var hún fyrsta
konan, er þar kendi bóklegar náms-
greina. Lærisveinar hennar bregða
því við, hve góður kennari hún var
og ástsæl af nemendum sínum. Kendi
hún og í heimahúsum tungumál; hún
var vel að sér í frönsku, þýsku og ensku.
Jarþrúður Jónsdóttir.