19. júní - 01.07.1924, Síða 3

19. júní - 01.07.1924, Síða 3
1 9. JÚNÍ 51 Sólskin og hreint loft. Hér á landi eru sumrin slutt. Voiið cr einatl seinl í förum og vetur geng- ur í garð fyr en flestir óska. Samt sem áður á landið okkar marga sólskins stund og óvíða muti loflið hreinna og hollara en hér á landi. Sólskin og hreint loft er besti heilsu- gjafinn, væru þau notuð sem skyldi. Og enginn þarf að kaupa þau gæði. Til þess að verða þeirra aðnjótandi þurfum við aðeins dálitla fyrirhyggju og umhugsun. Híbýli okkar, ofnlausu bæirnir, voru áður fyrst og fremst bygðir þannig að þeir héldu úti kuldanum. Pess vegna voru gluggar af skornum skamti og sjaldan svo gerðir að hægt væri að opna þá. Sólarljósið og sumaiblærinn áttu erfilt inngöngu í göinlu lorfbæina. Byggingarlag hefir breylsl lalsvert á siðari árum, bæirnir eru orðnir hærri í loftinu og glugg- arnir fleiri og stærri. En samt vantar mikið á að menn færi sér hreina loftið og sólskinið nægilega í nyt. Kostið kapps um að haga herbergja- skipun þannig, að þau herbergin, sem mesl er verið í hafi glugga í sólar- áltirnar. Á svefnherhergjum ætti helst að vera austurgluggi. En í hverja átt sem gluggarnir snúa, ættu þeir að standa sem allra mest opnir, svo hreina loftið geti streymt inn og leikið um herhergin. Það er ömurlegt að koma utan að, úr sólskini og blíð- viðri, inn í híbýli, þar sem andrúms- loftið er gamalt og spilt, svo að sá, sem ekki er því samdauna, getur varla dregið andann. Landið okkar á bæði marga og langa sólskinsdaga. Látum þá hjálpa okkur í baráttunni gegn berklaveiki og öðrum kvillum. Fyllum bæina sólskini og sumarblæ. Rekum burtu óloftið, með því hverfa sóttkveikjurnar á flótta og sólarljósið drepur þær. Hreina loftið fjörgar og gleður bæði sál og líkarna. Konur i ráðherrastöðu. 1. Frú Nina Bang. Þegar þingkosningar fóru fram í Danmörku í aprílmánuði i vor, komsl jafnaðarmannaflokkurinn í meiri hluta, og myndaði þar af leiðandi nýja stjórn. í þeirri stjórn á frú Nina Bang sæli sem kenslumálaráðherra. Er þelta fyrsla dæmi þess að koná verði ráðherra og eigi sæti í stjórn í nokkru landi. Frú Nina Bang er há- skólagengin kona og tók árið 1894 meistarapróf í sögu. Skömmu síðar giflist hún og ásamt manni sínum, dr. Gustav Bang, sem fyrir nokkru er látinn, gaf hún út ýmsar bækur bæði sögulegs og þjóðfélagslegs efnis. Einkum fékst hún við rannsóknir á lollöggjóf Danmerknr í fyrri tíma. Frú Bang hefir aldrei verið nein kvenréttindakona. í samtali við blaðið )>PoIitiken« segist hún hafa verið alt of hamingjusöm til þess að hugsjónir kvenfrelsisins hafi snortið sig. Er þetta óneitanlega undarlega til orða

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/199

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.