19. júní - 01.07.1924, Side 5

19. júní - 01.07.1924, Side 5
19. J 0 N 1 53 Móðureðlið. í fyrslu lcikjum og störfum stúlku- barnanna kcmur móðureðlið í Ijós á svo yndislegan, barnslegan hátt, að við, scm fullorðnir erum, höfum ánægju af að veita því cl'tirtekt og dáumst að barninu. Brúðan litlu stúlkunnar er alla jafna það, sem fyrst nær ástum hennar, og til eru margar fallegar sögur um móðurást litlu slúlkunnar til þessa ímyndaða barns síns. »Rauða-kross«-systir, sem starfaði í Italíu, þegar Pjóðverjar og Austurrikis- menn gerðu harðar árásir inn í norður- liluta landsins, segir frá lítilli stúlku, er með öðrum flóttamönnum barst til slöðv- ar þeirrar, er hjúkrunarkonan vann við. Telpan grét sáran og var óhuggandi. — Fj'rst hclt hjúkrunarkonan að hún hefði vilst frá foreldrum sinum, en svo var ckki. Telpan hafði mist brúðuna sina og var nú svona lirædd um að hún liefði fallið í hendur óvinanna. Það var móður- cðlið, sem bjó með litlu stúlkunni, er kom þarna í ljós. Drengur mundi hafa tckið þessum missi alt öðruvisi. Pessi eðlishvöt, sem af náttúrunni er svo sterk og hrein, er ekki ákveðin til þess að verða upprætt eða afmáð af upp- cldinu. Hún hlýtur að vera af Guði gefin lil varnar komandi kynslóð og leiða til umhyggju og ástúðar gagnvart barninu, þegar litla stúlkan vex og þroskast og verður sjálf móðir. En uppeldið og skólarnir gera ekkert til þess að halda þessari eðlishvöt vak- andi. Langt frá því. Pess vegna fer það oft svo, að sama litla stúlkan vex upp til að verða köld og tilfinningalítil. Pegar hún trúlofast, hugsar hún mest um það frjálsræði og þau þægindi, sem bíði sin í hjónabandinu, en á meðal þeirra er ekkert rúm fyrir barnið. I skólanum hefir hún lært sitt af hverju, dálítið í tungumálum, stærðfræði og öðrum fræðnm, er nú koma henni að harla litlu gagni. Hún hefir lært að elda mat, halda heimilinu hreinu, klæða sig snyrtilega og taka vcl á móti gestum. En hún hefir alls ekki verið undir það búin, að taka með nærfærni og ástúð móti ungbarninu, sem samkvæmt lögmáli náttúrunnar er ávöxtur hjónabandsins. Ef einhver segði henni, að ekkert væri henni nauðsynlegra en að læra að ann- ast ungbörn, svo að þau gætu tekið bæði líkamlegum og andlegum þroska undir umsjón hennar, mundi henni þykja sú kenning næsta kynleg. Pað er gott og blessað, að slúlkur fái jafn-fullkomna sérmentun og piltar, cf þær eru ákveðnar í að stunda það starf, er sú mentun opnar fyrir þeim. Og sam- skólar, sem veita piltum og stúlkum sömu fræðslu, eru af mörgum taldir betri en sérskólarnir. Pó má fara of langt í sam- eiginlegu kenslunni. Skólarnir mega ekki gleyma þvi, að til eru þau störf, sem konum einum er ætlað að vinna. Og þeir, sem álita að samskólarnir geri skyldu sína gagnvart stúlkunum með því að veita þeim nokkra aukatilsögn í handavinnu og laga leikfimisæfingar þeirra eftir þeirra hæfi, hafa af kvennemendum sínum þá fræðslu, sem þeim er nauðsynlegust, og sýna að þeir sjá ekki niður fyrir yfir- borðið á eðli þeirra. Pá tilfinningu, sem dýpstar rætur á hjá stúlkubörnunum, móð- ureðlið, mega skólarnir ekki láta sér yfir- sjást. Peir eiga að leiðbeina henni og þroska hana. Hvað væri eðlilegra en að sérhver skóli léti ungum stúlkum í té fræðslu um meðferð ungbarna? Og ekki mundi það síður gagnlegl fyrir ungu stúlkurnar, sem komnar eru að giftingu, að koma sér fyrir um tíma á góðu heim- ili, þar sem þær gætu lært af húsmóður- inni að rækja móðurstörf sín með alúð. Pá gætu ungu stúlkurnar einnig lært margt af dæmum hinna bestu kvenna á liðnum tímum. Pað ætti að vera eitt af viðfangsefnum skólanna, áð benda nem- endum sínum á, hve margt má læra af æfi og starfi -ágætra manna og kvenna. Tímarnir, sem vér lifum á, veita ungl- ingum alt of greiðan aðgang að lélegri þekkingu. Og þær kenningar eru auð-

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/199

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.