19. júní - 01.07.1924, Page 7

19. júní - 01.07.1924, Page 7
55 19. JÚNÍ aðarmálinu, en þar standa Norð- lenskar konur féti framar en Sunn- lenskar, eru líka frumkvöðlar að endurreisn islensks heimilisiðnaðar, sem vitanlega er lyftistöng sveitanna. Kristín Ólafsdóttir. Vornótt á Snæfellsnesi. Söngfuglar þagnaöir sofa í faðminum nætur, sofandi líta þeir fegurð á vordegi hllðum. Smáblómið sólina horfna af himninum grætur. Heilög er kyrðin, sem rikir í dölum og hlíðum. Pokan er Icttstíg, sem læðist um fjallanna tinda. Lognöldur rísa og falla á ókyrrum sænum. Bliðlegt er hljóðskrafið blátærra rennandi linda. Blundandi kvikféð er þögult í haganum grænum. Pokan er rofin, sem þytur af Ijósenglallugi þýðróma blævindur niður á jörðina svífur; leysir úr svefnfjðtrum sofandi þúsunda tugi, svarlgráu þokuna burtu af tindunum rífur. Blærinn, hann kemur og hverfur sem eld- ingar leiftur. Kvakandi spörfuglar uppkomu röðulsins boða. Jökullinn sýnist i glóandi geislahjúp steyptur, — guðdómsins ímynd í skinandi árdegis- roða. Skuggarnir lækka, að lokum þeir hverfa og eyðast; lautirnar gyllast af dýrlegum, eldslitum bjarma. Geislarnir sigrandi hægt yfir háloftið breiðast, himinn og jörðina binda í vorsólar arma. * * Upp! upp! til Ijóssius með hjartað frá hugsunum lágum, hefðu þig, önd mín, í dýrðlegum vor- morgunljóma. Kastaðu skuggum með Ijöllunum fögrum og háum, færðu svo kuldann og myrkursins anda í dróma. Sælt er að reika í sólkonungs leiftrandi höllum, svífa i anda með stjörnum um himinsins brautir. Langt, langt frá hávaða heimsins og ginn- ingum öllum horfa á ljösið, sem lakmarkar jarðlifsins þrautir. Öqn. Fréttir. Eleonora Dnse, frægasta kona Ítalíu og frægasta leikkona heimsins, er nýlcga látin. Hún var fræg fyrir meðferð sína á aðalhlutverkunum í stærstu harmleikum þektustu höfunda, t. d. Dumas — Kamilíu- frúin — og Ibsens — Nora, Hedda Gabler — og íleiri. Foreldrar Eleonoru Duse voru fátækir umferðaleikendur, hún var fædd í járnbrautarvagni og öll æfl hennar var eintómt ferðalag milli leikhúsa beggja megin Atlantshafsins. Dauða hennar bar að á ferðalagi í Ameriku og var lík henn- ar flult heim til ttalíu og jarðsett þar á rikisins kostnað. Maria Corelli, frægur enskur rithöfund- ur, er nýlega látin. Hér á landi þekkja margir skáldsögur hennar, t. d. »Sorgir satans« og »Tveir heimar«; sýna þær, hve

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/199

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.