19. júní - 01.04.1925, Blaðsíða 1
19. JUNI
VIII. árg.
Reykjavík, april 1925.
4. tbl.
Herdís og Ölíiia Andrésdætur
Ekki voru þær heldur gamlar þegar
orð fór af því, þar vestra, hve hag-
orðar þær væru, fór því þó fjarri að
þær héldu kveðskap sínum á lofti,
og það fyrsta sem prentað var eftir
eru tviburar, fæddar á Flatey á Breiða-
firði 13. dag júnímánaðar 1858. For-
eldrar þeirra, Andrés Andrés-
son og Sesselja Jónsdóttir,
voru óskiftir Breiðfirðingar
langt fram í ættir, og bæði
voru þau borin og barnfædd í
Breiðafjarðareyjum. Voru þau
hraustleika og atgerfismenn,
en Andrésar naut ekki lengi
við, því hann druknaði frá
mörgum börnum kornungum.
Voru þá sum þeirra tekin í
fóstur, til að létta á móður-
inni, og meðal þeirra voru
þær Herdís og Ólina.
Ekki var þeim til muna
haldið til bóknáms eða ment-
unar í fóstrinu, enda var
slikt fátítt á þeim árum, er
um stúlkubörn var að ræða,
jafnvel þó einkabörn væru,
hvað þá umkomulítil fóstur-
börn, sem forðað var frá sveit;
en þær ólust upp á menn-
ingarheimilum, og sér þess jafnan
merki, ef efnisbörn eiga hlut að máli.
Veit eg, að þær búa enn í dag að
ýmsu sem þær sáu og heyrðu í æsku,
því snemma bar á því, hve þær skáru
sig úr fjöldanum að gáfum og námfýsi.
Herdisi, voru áreiðanlega vísurnar
»Ein á báti«, sem prentaðar voru
fyrir nokkrum árum í »Skírni«, með
hálfgerðu bessaleyfi.
Ólína hefir aftur á móti stöku
sinnum sent blöðum og tímaritum
Herdis og Ólina Andrésdætur.