19. júní - 01.11.1926, Blaðsíða 6

19. júní - 01.11.1926, Blaðsíða 6
70 X 9. JÚNÍ Haiisíiia Jóhannesdóttir. 1 F. 23. jan. 1893. — D. 30. okt. 1925. Þann 30. okt. 1925 andaðist á sjúkrahúsinu á ísafirði húsfrú Hansína Guðrún Stefanía Kristín Jó- hannesdóltir, frá Bolungarvík. Hansína var fædd að Botni í Súgandafirði 23. jan. 1893. Foreldrar hennar voru hin góðkunnu merkis- hjón, Jóhannes hrepp- stjóri Hannessonar piests, Arnórssonar prófasts í Vatnsfirði, ogGuðrún Ólafsdóttir, Árnasonar bónda að Vöðlum í Önundar- firði. Veturinn 1908— 1909 dvaldi H-nsína við nám að Núpi í Dýrafirði; var svo við skrifstofustörf á Suð- ureyri. 1915 fluttist hún til Bolungavíkur og stundaði þar versl- unarstörf. En 7. apríi 1917 giftist hún eftir- lifandi manni sínum, Maguúsi Kristjánssyni formanni i Bolungavík, dugn- aðar- og atorkumanni. Eignuðust þau 7 börn, og eru 5 á iífi, elsta 8 áia, yngsta á 2. ári. Hansína var fríð sýnum, einarðleg, öriynd, en kunni þó vel að stilla skap sitt. Hennar hreinlyndi, glaðlyndi og samúð með öllu og öllum, vafði kring- um hana heilnæmum hressandi blæ, er hafði holl og þróttskapandi áhrif á alla er samvista hennar nutu. Hennar miklu gáfur samfara festu og athygli, gjörðu henni fært, þrátt fyrir heimilisannir, að fylgjast með og taka þátt í ýmsum málum, er hún taldi að gætu markað spor í menningarátt. Hún gekk óskift að hverju verki, en alla aðalstarfskrafta sína helgaði hún þó heimili sínu. Far var hún í senn, stjórnsöm, atorkusöm og hagsýn húsmóðir, ástrík eiginkona og umhyggjusöm móðir. Jarðarför Hansínu sál. fór fram að Hólskirkju í Bolungavík þ. 10. nóvember, að viðstöddu miklu fjölmenni; sýndu kauptúnsbúar, og aðrir á ýmsan hátt samhygð sína og söknuð. Kirkjan var tjölduð dúkum og skreytt. Frá heimahúsum til kirkju gekk flokkur kvenna með fána, fyrir kistunni og út úr kirkjunni baru konur kistuna. Auk ræðu sóknar- prests voru flutt sjerstök kveðjuorð í bundnu og ó- bundu máli, frá hmum aidraða föður hennar, hverj- um hún ávalí reyndist ræktarsöin og góð dóttir. Ennfremur sendu söngstjóri og söngkonur við Hóls- kirkju hlý kveðjuorð í bundnu máli. Minning hennar mun geymd með þakklæ'i og í heið i höfð af þeim hinum mörgu, er nutu góðs af mannkostum hennar. F. Uncli** naíni föðnr hennar Haustið er komið, hniga í duftið blíðust blóm, er bíiru litskrúða um sumartíð og sólskinsdaga, þegar ljúfust lék lífsglðð æska. Blóm var mér gefið með björtu litskrúði af Ijúfri alvaldshönd í lífs aldingarði. Til gleði og yndis mér gaf pað drottinn. Ljúf var mér gjöf pín, Ijóssins faðir. Svífa nú sorgarhret að sjónarhimni, nú er blómið blítt blæju hulið. Daprir gerast dagar, pvi dauðans móða hylur sólglit lífs í húmi vetrar. Pú burthorfna dóttir, blíð er pín minning, ást og unun mér ávalt pú veittir. Pitt blíða bros og barnsleg gleði var sem unaðsljós frá uppheims sölum. Pökk fyrir unað og alla gleði, er pú mér veittir ellimóðum. Farðu vel, dóttir, til dýrðarsala, við finnumst síðar í faðmi drottins. H. G. Kveðja frá söngstjóra og söngkonum við Hólskirkju í Bolungavík. Svo fölnar æfi fagurt blóm við feigðar dapurt stríð. Pann heljarpunga harmadóm við heyrum ár og síð. Já, dáin, horfin, harmafregn, sá hljómur sárt oss sker, en pó er huggun harmi gegn, hve hlý pín minning er. Við skoðum öll í anda hrygg pitt auða verkasvið, pvi vorum flokki varstu trygg og veittir óskift lið. Við síðsta rúm pitt sorgarhljóð við saman stöndum hér, og petta litla pakkarljóð til pín vor kveðja er. Nú lítur önd pín ljósan dag hjá lindum kærleikans og syngur eilíft unaðslag með englasveitum hans. Úr kærleiksblómum knýtum vér einn krans að pinni gröf. Ó, systir ljúfa, sjá pað er vor siðsta trygðagjöf. Guðn'in Magnúsdóllir.

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/199

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.