19. júní - 01.11.1926, Blaðsíða 7

19. júní - 01.11.1926, Blaðsíða 7
19. JÚNÍ 71 Land^pít aliim. { alt sumar var unnið að því að steypa veggi og gólf spítalans. Er því verki nú þvi nær lokið, og sést nú hvílíkt stórhýsi spitalinn verður. Hefir þetta verk gengið fljótt og er vonandi fullkomlega tryggi- lega af hendi leyst. Að vísu komu í sumar fram nokkrir gallar í steypunni á veggjum neðstu hæðar, blettir sem eigi hörðnuðu. En sem betur fór varð þeirra skemda samstundis vart, orsökin til þeirra fundin og úr þeim bætt, þannig að nú eru fyllilega bættar skemdir þessar, að því er þeir segja, er sér- þekkingu hafa á þeim hlutum. Skemdin stafaði af því, að i nokkru af sandi þeim, sem notaður var í steypuna, voru efni er ollu því, að hún storknaði ekki. Hafði sandurinn þó verið rannsakaður efna- fræðislega áður. Er oss sagt að slíkir gallar komi þráfaldlega fyrir, og að þetta hafi verið langt frá að vera einsdæmi. En sum blöðin hér i Reykjavík skrifuðu þegar um þetta heldur harkalega, og slíkar fregnir sem þessar eru ekki vanar að minka í með- förunum. Því var það að út um land barst fréttin allmikið orðum aukin. Hefir að líkindum óhug sleg- ið á margan þann er bar velfarnað þessarar bygg- ingar fyrir brjósti, er hann beyrði »að nú væri ver- ið að moka burtu veggjum landsspítalans«, eins og fregnin sagði á einum stað. Stjórn Landsspítalasjóðs hefir eins og allir vita, enga sérfræðiþekkingu í byggingum, hún leggur fram það fé, er hún hefir skuldbundið sig til, gegn þeim skilmálum, er hún setti í upphafi, og verður að öðru leyti að treysta því, að verkið sé í þeim höndum, sem hér verða bestar fengnar. Það er algjörlega á ábyrgð þess er lætur vinna verkið, ríkistjórnarinnar, að sjá svo um, að það sé tryggilega af hendi leyst. Vér vonum að svo sé, og að þetta óhapp, sem úr varð bætt án mikillar tafar eða kostnaðar rýri í engu traustleika þessarar miklu byggingar. Landsspítalasjóður Islands hefir nú lagt fram það fé, er hann hefir skuldbundið sig til að leggja fram þetta ár. Kemur nú til kasta ríkisstjórnarinnar, að sýna hvað hún vill fyrir málið gera. Það væri illa farið ef nú yrði numið staðar við verkið og það lát- ið bíða næsta árs. Það væri þvert ofan í þann samn- ing er gerður var við stjórn Landsspítalasjóðsins. Hún áskyldi sér að verkinu væri haldið áfram án tafa þar til spítalinn væri fullgjör. Það verk sem nú liggur næst fyrir, er að koma byggingunni undir þak. Þessu verki er þannig háttað, að vinna má að því eins þótt vetur sé og kuldar, en eigi geri kleyft að vinna að steinsteypu. það væri með öllu óafsakan- legt, ef þetta verk yröi látið óunnið vetrarlangt. Hefði í för með sér ónauðsynlegan drátt á byggingunni og gæti auk þess valdið skemdum á veggjum, ef þeir ættu að standa opnir yfir veturinn í rigningum, frosti og fjúki. Vér vonum fastlega að ekki komi til þess. Að rík- isstjórn sýni alvöru sína á framkvæmdum þessa stór- máls, með því að láta halda verkinu áfram, að eigi verði hætt nú, og það látið nægja þetta árið að koma veggjunum upp, heldur verði þakið lagt nú i vetur. Mun Landsspítalasjóðsstjórnin og fulltrúi sá, sem er af sjóðsins hálfu í Landsspítalanefndinni gera silt itrasta til þess að þetta verði að framkvæmdum. Rafvirkjun. í fyrsta hefti tímaritsins »Vaka«, segir prófessor Sigmður Nordal frá binum merkilegu framkvæmd- um Skaftfellinga í rafvirkjun. Eru þeir i þessu langt á undan öðrum héruðum landsins, þótt emstaka framkvæmdasamir bændur annarsstaðar hafi raflýst bæi sina. Rað er ekki ólíklegt að margri húsmóður verði á að öfunda konurnar á þessum bæjum í Skaftafellssýslu, sem geta látið rafmagnið lýsa og hita húsin sín og vinna ýmislegt til léttis heimilis- störfunum. Og ekki ólíklegt að þær biðji bændur sína að athuga, hvort engin leið sé til að þeir geti látið bæjarlækinn vinna þeim sama gagn. Ráðagerð- irnar, um rafvirkjun í stórum stíl, þar sem útlend fé- lög miðli landsmönnum afli til ljóss og hitunar, mun enn eiga langt i land. En við flesta íslenska bæi bíður afl- og ljósgjafinn, bæjarlækurinn, eftir því að miðla auði sínum. Forfeður vorir voru svo hagsýn- ir að þeir völdu bæjarstæðin nálægt rennandi vatni, þeir höfðu auga fyrir því sem fagurt er og hrein- læti mátu þeir mikils. J5n þeir þektu eigi það töfra- magn sem bundið liggur í straumi vatnsins. Við, sem lifum á 20. öldinni þekkjum það. Nokkrir at- orkusamir bændur hafa sýnt að eigi er ókleyft kostnaðarins vegna að fjötra þetta afl, og að það svarar margfaldlega kostnaði. Á þessum háskatímum, þegar ofvöxtur hleypur í bæi og sjóþorp, en sveitirnar eru að sama skapi rúnar vinnuafli, og í augum alls þorra unga fólks- ins Ijómar ljósadýrð og þægindi kaupstaðarlífsins, er ekkert, er spyrnt geti á móti þessu öfugstreymi, jafn liklegt til að bera árangur og það, að gera lífið í sveitunum bjartara, heimilin vistlegri og heimilis- störfin léttari. Raflýsing sveitabæja er þar eitt þýð- ingarmikið atriði. Auk þess lyftir það undir ræktun landsins. Sé rafmagn haft til hita og eldunar þarf ekki að nota hinn dýrmæta áburð, sauðataðið, til þeirra hluta, það getur þá unnið sitt rétta hlutverk, að græða mela og móa. Rafvirkjunarmálið er stórmál, sem enn er oflítill gaumur gefinn. Löggjafar vorir þurfa að gera tvent: Veita bændum hagkvæm lán til rafvirkjunar á bæjum sínum, og láta þeim í té leiðbeiningar i því efni. Petta mál snertir konurnar og heimilin meira en

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/199

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.