Alþýðublaðið - 22.09.1963, Page 2
I Rltstjórar: Glsll J. Ástþórsson (áb) og Benedlkt Grtíndál.—ÁðstoSarrifstjórl
I Bjöjrgvín Gutímundsson. — Fréttastjórl: Sigvaldi Hjálmarsson, — Símar;
Í4 900 — 14 902 — 14 903. Auglýsingasími: 14:906 — Aðsetur: Alþýðuiiusið. ,
| — Prentsmiðja Alþýðublaðsins, Hverfisgötu 8-10. — Áskriftargjald kr. 80.00
íi mártuði. í lausasölu kl. 4 00 eint. Útgefandi: Alþýðuflokkurinn.
;; SKAMMLÍF STJÓRN
] . HÆGRISTJÓRNIN í Noregi varð skammlíf.
Hun var frá upphafi í tveggja atkvæða minnihluta
í Stórþinginu, en gat ekki lifað á sama hátt og ráðu
neyti Gerhardsens, af því að oddamennirnir tveir
frá SF eru sósíalistar og hlutu því að eiga meira
, sameiginlegt með Gerhardsen og erfiðara með að
fella hann, þótt það tækist í King s Bay málinu.
, ■■■.■• John Lyng, forsætisráðherra 'hins skammlífa
ráðuneytis, varð að sjálfsögðu að leggja fyrir þing
ið stefnuyfirlýsingu. Þá hlaut Alþýðuflokkurmn
einnig að gera grein fyrir sinni stefnu, og leiddu
þessar yfirlýsingar til falls Lyngs, þar sem hinir
áhrifamiklu tvímenningar fluttu tillögu þess efn-
; is, að stefnuyfirlýsing jafnaðarmanna væri mun
betri en hægristefnan. Þarmeð lá fyrir, að stefna
| Lyngs var í minnihluta, og hann tvarð að ganga á
i konungsfund með afsögn sína.
Þessir atburðir munu vafalaust hafa mikil á-
hrif á norsku þjóðina, sem hefur búið við fast mót-
að stjórnarform og lítið haft af stjómarkreppum
að segja síðustu þrjá áratugi. Er líklegt, að almenn
ingi þyki lítið 'koma til þingsstarfa þeirra tveggja
félaga, sem klufu sig út úr Alþýðuflokknum og
j snerust gegn honum.
i j Enda þótt stjóm Lyngs reyndist skammlíf,
i varð hún lærdómsrík. í fyrsta lagi lögðu hægriflokk
arnir fram stefnuskrá, þar sem í aðalatriðum var
fylgt þeirri stefnu, sem jafnaðarmenn hafa fram-
kvæmt, og í sumum málum reynt að yfirbjóða
í hana til dæmis tryggingum. Þetta staðfestir enn
j einu sinni, hversu mikil áhrif jafnaðarstefnan hef
i ur haft í lýðræðisríkjum, ekki síður á andstæðinga
j en fylgismenn. Almenningsálitið er komið á það
stig, að hægriflokkar reyna ekki ríkisstjóm, nema
: hún lofi að fylgja höfuðatriðum velferðarríkis.
Þessi sigur er að sjálfsögðu meira virði fyrir þá,
sem jafnaðarstefnunni imna .og hafa barizt fyrir
lienni, en nokkuð annað. Þetta hefur einnig gerzt í
löndum, þar sem jafnaðarmannaflokkar hafa ekki
verið stórir, eins og á Íslandí. .
I öðru lagi leiddi stjórn Lyngs í Ijós, að hægri
I flokkarnir í Noregi geta nú unnið saman. Hingað ’
til hafa þeir verið sundraðir, og hefur Norðmönn-
um ekki þótt vænlegt að styðja þá, meðan þeír
sýhdu engan vilja til samstöðu. Kann þessi stað-
reynd að hafa áhrif á þróun stjórnmála í Noregi,
þótt ekkert verði um það sagt að sinni.
Það verður spennandi að fylgjast með úrslit-
um sveitastjómakosninganna í Noregi, sem haldn
ar verða næstu daga, og þingkosninga, sem síðar
verða, því að þingrof og kosningar eru ekki leyfð
í norsku stjómarskránni, heldur aðeins kosningar
á reglulegum tíma.
2 22- sept. 1963 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ
til GLASGOW á 2 tímum
til NEW YORK á 5/2 tíma
FYRSTU ÞOTURNAR í ÁÆTLUN UM ÍSLAND
Áætlunarflug vikulega alla miðvikudaga, miðvikudagsmorgun kl. 08.30 frá Kefla.vík, í Glasgow kl.
11,30 og London kl. 13.20, miðvikudagskvöld kl. 19,40 frá Keflavík, í New kl. 21.35 (staðart.),
Fastar áætluharferðir með þotum á milli New,
York og London með viðkömu í Keflavik, hefj-
'i ást miðvikudáginn 2. október.
i Nú verða í fyrsta skipti hinar hraðfleygu og
‘ þaégilegu „Pán Am Jet Clipper" í fös.tu
áætlunarflugi til og frá íslandi.
M
j|lnnflytjendur — Útflytjendur
SjVið viljum sérstaklega vekja athygli yðar á því,
^að vörurými er ávalit nóg í „Pan Am Jet Clipp-
er“ — til og frá íslandi.
Með þessuní glæsilegu farkostum er hægt að
ferðast mjög ódýrt — t. d. bjóðum við sér-
stakan afslátt þeim er dveljast stuttan tíma í
USA eða Evrópu:
Keflavík — New York — Keflavík
kr. 10.197.00 ef ferðin hefst á tímabilinu 2.
október ‘63 — 31. marz ’64 . . . og tekur 21 dag
eða skemur.
Keflavík — Glasgow — Keflavík
kr. 4.522.00 ef ferðin hefst í október ‘63 ... .
og tekur 30 daga eða skemur.
Leitið upplýsinga - Það kostar ekkert
AÐALUMBOÐ A ISLANDI
FYRIR PAN AMERICAN
WORLD AIRWAYS
G. HELGASON & MELSTEÐ
HAFNARSTRÆTI 19.
SÍMAR: 10 275 — 1 1644.
Heilbrigt líf
BLAÐINU liefur borizt 1.-4. hefti
tímaritsins Heilbrigt líf, sem gef-
ið er út af Rauða Krossi íslands.
Af efni ritslns má m. a. geta:
Herra Ásgeir Ásgeirsson, forseti
íslands skrifar afmæliskveðju tii
Rauða Krossins. Bjarni Konráðs-
son, læknir skrifar greinina: Sol-
ferino 1859 og stofnun Rauða
Krossins. Jón Auðuns, dómprófast-
ur skrifar greinina: Hundrað ár í
þjónustu mannúðarinnar. Rauði
Krossinn 1863-1963. Birt er ávarp |
dr. Jóns Sigurðssonar borgarlækn-
is í tilefni aldarafmælis Rauða
Krossins. Páll Kolka læknir skrif-
ar um ibúðavandamál aldraðs fólks.
Björn L. Jónsson læknir skrifar
grein um reykingar barna í Rvík.
Gunnar Biering læknir skrifar
grein um ókosti einhæfs mataræð-
is. Halldór Hansen, yngri, læknir,
skrifar greinina: Skin og skúrir í
sambúð foreldra. Gunnlaugur G.
Snædal læknir skrifar um grein-
ingu krabbameins í brjósti. S. Sör-
ensen fulltrúi skrifar um börnin
og umferðina. — Ýmislegt annað
efni er í ritinu.
Vinnan komin út
"BLAÐINU hefur nýlega borizt á-
gúst-héfti Vinnunnar, blaðs Al-
þýðusambands íslands. í því er
birt 1. maí ávarp ASÍ. Sagt er frá
kjaradómi og birtar reglur hans
um vinnutíma, yfirvinnu og önnur
kjör opinberra starfsmanna. Birt-
ir eru þættir úr sögu Verka-
kvennaíélagsins Vonar, Húsavík.
Sagt er frá Orlofs og hvíldar-
heimili verkalýðssamtakanna. I>á
eru í blaðinu kaupgjaldstíðindl og
ýmislegt fleira annað efni.
ti
Syning á skriistofutækjum haldtn í husakynnum
Verzlunarskóla íslands á vegum Stjórnunap-
lólags Islands 13.-25. seplember
I.ARUS nELDSTfTD
Mfl.GNlIS KJARAN
O. KORNERUP HANSEN
OrFSETPRENT HF,
ÐBKAHF.
OTTÓ A. MICHELSEN
OT.TÓ B. ARNAR
PÓSTUR OG SlMI
Radio- og raftækjaötofan
SNORRI P. B. ARNAR
VÉLAR OG VIÐTÆKI
ÞÓR HF,- ..
2-7
EORGARFtLL HF. - ' . -
EINAR J. Sr.lTLASON
G. HÉLGXSON 4 MELSTED' HF.
GEORG ÁMUNDASON &.GO.
G-ÍSU- J. jSwNSEN
GOTTFRED BERNHÖFT 4 CO. HF,
GUNNAR ÁSCEIRSSON HF.
H. BENEDIKTSSON HF.
H. ÓLAFSSON 4 BERNHÖFT
I. BRYNJÓLFSSON 4 KVARAN
IÐNADARMÁLASTOFNUN ÍSLAflDS
lanösstiarnah flf,
Síðasti dagur Opið kl
St|6rnunarfélag Isiands