Norðri - 04.02.1909, Page 4
20
NORÐRI.
NR. 5
Aáalínndur
„Gufubátsfélags Norðlendinga“
verður haldinn á morgun, föstudaginn 5. þ. m. kl. 4 e. h. á
»HóteI Akureyri«. Endurskoðaðir reikningar félagsins verða lagð-
ir fram, og mörg mikilsvarðandi mál á dagskrá. Áríðandi að
allir mæti.
Væntanlegir hluthafar í gufubátnum »Köge« hafa aðgang að
fundinum,
Stjórn in.
UNDIRRSTAÐUR hefir einkasö/a fyrir
Norður- og Austurland á hin jm nafnkunnu
FISKIMANNASJÓKORTUM
(Fishermans Carts for Iceland) sem kosta einungis móti peningum
kr. 12,00. Það borgar sig fyrir hvern skipstjóra og mótorbátafor-
menn að eiga slík kort, sem ná yfir allar strendur og fiskimið
*
kringum Island.
J. V. Havsteen.
Kaupmenn! Takið eftir!
Kvongaður maður, 42 ára gamall, er verið hefir verzlunar-
stjóri í 6 ár, og fengist við verzlunarstörf í 19 ár samfleytt, í þjón-
ustu sömu verzlunar, óskar eftir atvinnu annaðhvort sem verzlun-
arstjóri eða bókhaldari, frá^ 1. júlí næstkomandi að telja.
Nánari upplýsingar gefur ritstjóri þessa blaðs.
cand. jur. Björn Líndal.
Brekkugötu 19.
Á verkstæði mínu
Lundargötu 1 Oddeyri.
Telefón 81.
fást óvanalega góð amboð, orf, hrífu-
sköft, hrífuhausar, klifberar.
Mjög vönduð húsgögn, svo sem:
kömmóður, borð, lausarúm, ferðakistur,
kofort bæði sjós og lands og m. fl,,
pegar peningar eru í boði.
B/örn Ó/afsson
málari.
Hér á skrifstofunni eru framlagðir til sýnis almenningi um
næstu 14 daga þessir reikningar fyrir árið 1908:
1. Bæjarsjóðs Akureyrarkaupstaðar.
2. Hafnarsjóðs Akureyrarkaupstaðar.
3. Styrktarsjóðs Carl Höepfners og konu hans.
4. Styrktarsjóðs fátækra sjúklinga á Akureyrarspítala.
5. Styrktarsjóðs Magnúsar Jónssonar gullsmiðs fyrir fátæk börn
í barnaskóla Akureyrar.
6- »Gjafasjóðs Álasundsbæjar«.
7. Aldamótasjóðs Akureyrar.
8. Alþýðustyrktarsjóðs Akureyrar.
9. Bókasafns Norðuramtsins á Akureyri.
Ennfremur:
10. Kjörskrá til alþingiskosninga, er gildir frá 1. júlí 1909 til 30.
júní 1910.
11. Skrá yfir gjaldskylda til styrktarsjóðs fyrir alþýðufólk 1909.
Bæjarfógetinn á Akureyri 1. febr. 1909
Guðl. Guðmundsson.
Kostakaup.
Jörðin Hillur í Arnarnesshreppi, ennfremur íbúðarhús á Rauðu-
vík með áföstum skúr, fjárhúsi og hlöðu, einnig ágætur mót-
orbátur með veiðarfærum, naust fyrir bátaogfrítt uppsátur í 35 ár.
Alt þetta er til sölu nú þegar með mjög góðum kjörum.
Semja má við undirritaðan.
Porsteinn Vigfússon, Rauðuvik.
Ræktunarfélag Norðurlands
Eins og að undanförnu fer fram verkleg kenzla í garðrækt, grasfræsáningu,
trjárækt og plægingum í aðaltilraunastöð Ræktunarfélagsins á Akureyri frá 14. maí
til 30. júní næstkomandi vor
heir, sem kynnu að vilja sæta þessu tiiboði, gefi sig fram sem fyrst á skrif-
sfofu félagsins.
Félagsstjórnin.
Otto fflönsteds
danska smjörlfki
er bezt.
Lögrétta,
gefin út af hlutafélagi í Reykjavík,
stjórnað af ritstjóra Rorsteini Gíslasyn,
og ritnefnd Guðm. Björnssyni landlæknii
Jóni Magnússyni bæjarfógeta og Jóni
Rorláksyni verkfræðing, er nú eftir ára-
mótin orðin stærsta blað landins að um-
máli og tölublöðum fjölgað að mun.
Areiðanlega bezta og áreiðanlegastafrétta-
blað landsins. Nýir kaupendur, er vilja
láta senda sér blaðið beint, snúi sér til
afgreiðslumannsins, bóksala Arinbj.
Sveinbjarnarsonar, Reykjavík eða út-
sölumaitns blaðins á Akureyri, Hallgr.
Valdemarssonar Aðalstræti 13.
6
verið út af fyrir sig og sneitt sig að mestu leyti hjá
hinum Heimilið var alt af troðfult af krökkum og
lá nærri, að alt færi á sveitina. Törres var ekki elzti
sonurinn, ert hann hafðí unnið í þarfir heimilisins
og séð um- sig jafnhliða.
Hann hafði frá því fyrsta verið ákaflega heppinn
með kindur, alt af voru ærnar hans tvílembdar, og
þó að eitthvað vantaði af fjalli, þá kollheimti
Törres ætíð, en þrátt fyrir það var hann ekki ánægð-
ur, hann var altaf nöldrandi um það, að enginn sæ-
ist árangurinu, óg þó hann fengi bezta verð fyrir
sitt, vissi enginn að hann ætti peninga.
Fýldur og þegjandalegur umgekst hann hitt fólk-
ið, og þannig náði haun smásaman fullum þroska.
Nú var hann að fara yfir síðastu hæðadrögin í
geislaskrúði sólarinnar, með spegilfagran vatnsflötinn
fram undan sér. Fann hann þá nýjan hug og dug
streyma um sig allan. Hann hafði hvorki poka eða
prik, en eitthvað varð hann að hafa í höndunum,
og svo tók hann tvo kringlótta steina úr lækjarfar-
vegi sinn í hvora hönd — svo hélt hann áfram
og sló þeim saman, eins fast og hann gat, og söng
um leið: gull og stúlkur, stúlkur og gull. — Hann
steig þungt til jarðar og söng hátt, enda þótt hann
gæti ekki sungið.
7
Rað var eins og hann væri að merja eitthvað ann-
að í sundur, á meðan hann hélt sjálfur áfram að vaxa,
hann óx fram hjá sínum tuttugu árum, óx og varð
svo stór, að hann varð að opna tannsterka munninn
á sér — til þess að svelgja sínar óhemju girndir.
Og þegar hann sá bátinn liggja á víkinni, sunn-
an megin við steininn, og engan mann nálægan,
þaut hann ofan síðustu brekkuna. — Hlæjandi og
fagnandi með sjálfum sér, beint ofan á ströndina
til bátsins.
En við hávaðann, sem 'orsakaðist af síðasta
stökkinu hans í lausu strandgrjótinu, gægðist upp höf-
uð á bak við stóra steininn; og maður, sem Törres
vissi að var Anders, spurði þurlega:
«Hvað ætlarðu að gera við bátinn minn?»
»Törres var mjög hverft við, og þóttist hafa
orðið fyrir miklum vonbrigðnm, en slepti strax stefn-
inu, og svaraði eins og ekkert hefði í skorist:
»Geturðu ferjað mig yfir um á stöðina —Andrés?«
«Nei.«
«Svo —o o? — eg borga fyrir það.«
«Eg hefi leigt bátinn« svaraði Andrés og spýtti
út úr sér, sneri sér svo rólegur frá honum og hvarf
á bak við steininn.
Rað heyrðust fleiri glaðværar raddir, og mas fyr-
Drengur
14 til 16 ára,
sem ritar laglega hönd og er dável fær
í reikningi, getur fengið atvinnu við
verzlun undirritaðs.
Skrifleg umsókn, rituð með eigin
hendi óskast sem fyrst.
Oddeyri, 2. febr. 1909.
Sn. Jónsson.
Þriggja krónu
virði
fyrir ekki neitt
í ágætum sögubókum fá nýir kaupend-
ur að VIII. árg. »Vestra» ef þeir senda
virði blaðsins (kr. 3,50) með pöntun.
Arg. byrjar 1. nóv.
Utsölumaður á Akureyri er
Hallgrímur Pétursson
bókbindari.
,Norörii kemur ú( á fimtudag fyrst um
sinn, 52 blöð um árið. Argangurinn kostar 3 kr.
innanlands en 4 kr erlendis; í Amerlku einn
og hálfan dollar. Gjalddagi er fyrir 1. júlt
ár hvert. Uppsögn sé bundin við árganga-
mót og er ógild nema hún sé skrifleg og
afhent ritstjóra fyrir 1. seft. ár hvert,
Auglýsingar kosta eina krónu fyrir hvern
þuml. dálkslengdar og tvöfal* meira á fyrstu
síðu. Með samningi við ritstjóra geta menn
sem auglvsa mikiö fengið mjög mikinn afslátt.
Prentsmlðja BJOrns JOnssonar,