Norðri - 04.03.1909, Side 4
36
NORÐRI.
NR. 9
er hann sjálfur, þótt annar maður beri
það nafn stundum. Sýnir þetta bezt og
sannar, hvað hann hefir ætlað sér, þeg-
ar hann skarst úr leik með hinum nefnd-
armönnunum í síðasta augnabliki. Og
jafnframt er það enn þá ein sönnunin
fyrir þvi, hvað meiri hlutinn á þessu
þingi er að berjast um og fyrir. Meðan
hann var að koma Hannesi Hafstein
úr ráðherrasætinu var hann allur sam-
mála, en þegar leggja skai til, hver ráð-
herra verði, er hver höndin upp á móti
annari. Petta eru sömu mennirnir, sem
margsinnis hafa brugðið Hannesi Haf-
stein um valdafýkn og fullyrt hafa að
hann metti það meira að «hanga við
völdin« heldur en heill og heiður þjóð-
arinnar. Eru engin takmörk fyrir því,
sem foringjar meiri hlutans leyfa sér að
gera, án þess að skammast sín fyrir
það opinberlega?
Tollhœkkunarfrumvarpið
hefir verið samþykt í neðri deild og er
nú komið upp í efri deild. Samkvæmt
því á tollhækkunin aðnátil ailra vínfanga,
sem flutt hafa verið iun í landið síðan
24. febr. þ. á.
Utanstefnan.
Þann 1. þ. m. héldu frumvarpsandstæð-
ingar fiokksfund til þess að ræða um
boðskap konungs til þingsforsetanna
þriggja, um utanför. Jón Rorkelsson
iagði tii að þeir neituðu aliir förinnrog
vitnaði í ' »Gamla sáttmála>: «utan-
stefnur viljum vér engar hafa.« En sú
tillaga var feld. Rá var borin upp til -
laga um að Björn Jónssou færi einn
saman, en hún var Iíka feld. Loks var
það samþykt, að þeir skyldu allir þrír
fara, en ekki fyr en 20. marz. Mun það
hafa ráðið mestu um þessa samþykt, að
atkvæði írumvarpsmanna og frumvarps-
andstæðinga verða jafnmörg í efri deild
ef forsetinn, Kr. Jónsson háyfirdómari
fer og varaforsetinn sr. Sigurður Stefáns-
son tekur við forsetastörfum.
Reykjavík 4. marz.
Meiri hluti þingsins hefir farið fram
á það við ráðherrann, að þingfundum
verði frestað, meðan forsetarnir eru í
utanför sinni. Minni hlutinn berst á
móti þessu af alefli, því að slíkt mundi
baka landinu gífurlegan kostnað, alger-
lega að óþörfu. Hefir minni hlutinn
bent meiri hlutanum á það, að varafor-
seti efri deildar geti sagt af sér forseta-
störfum, og þá sé þeim innan handar að
kjósa forsetann úr flokki frumvarpsmanna,
og þá hefir meiri hlutinn 7 atkvæði móti 5
í efri deild. En frumvarpsandstæðing-
ar sitja fastir við sinn keip. — Pykir
þeim þjóðin líklega ekki of góð til þess
Góð og ódfr vara.
Hagsýnir kaupmenn kaupa alls konar sápu og kerti hjá G. Gíslasson & Hey í Leith, því að þeir hafa söluumboð
fyir hinar nafnkendu verksmiðjur
Ogoton & Tennants í Aberdeen og Glasgow,
sem stofnaðar vöru árið 1720. og hafa þær því rekið iðn sína næstum 200 ár og jafnan staðið fremstarí flokki þessar atvinnu-
greinar. Gæði sápunnar standast alla samkeppni. Vörumerki verksmiðjanna
„BALMORAL”
er full trygging er fyrir því að »góð vara er jafnan ódýrust«
Verðlistar sendast þeim kaupmönnum, er óska þeirra, frá skrifstofu umboðshafandanna í Reykjavík, sem einnig hafa þar sýnis-
horn af vörunum.
að borga nokkur þúsund krónur fyrir
það, að þeir geti hvilt sig í nokkrar
vikur eftir öll þau þrekvirki, sem þeir
hafa unnið í þarfir föðurlandsins, síðan
þing byrjaði, og geti svo byrjað aftur
með endurnýjuðum kröftum á því að
að halda flokksfundi og rífast um ráð-
herraefnið, ef svo skyldi fara, að kon-
ungi þætti Birni Jónssyni hæfa betur að
halda áfram ritstjórn ísafoldar, heldur
en gegna ráðherrastörfum.
Séra Sigurður Gunnarsson
svaraði Pjóðvíljagreininni í ísafold í gær,
og Ieitast við að hnekkja frásögn Pjóð-
viljans um það, sem gerst hefir bak við
tjöldin hjá meiri hlutanum. Ber hann
Sk. Th. á brýn málæði og brot á þeirri
þagnarskyldu, sem flokkurinn hafi und-
ir gengist, og er yfirleitt tatsvert gram-
ur í garð Skúla.
Prestaskólinn.
Fyrsta kennaraembætti við hann erveitt
séra Eiríki Briem, er verið hefir annar
kennari um mörg ár.
Sighvatur Bjarnason
bankastjóri kom hingað til bæjarins
með gls »EIjan» í gærkvöld, og dvelur
hér nokkra daga til þess að yfirlíta
reikninga og hag útibús íslandsbanka.
Skipafregnir.
Fiskiskipið«Victor«, eitt af þeimnorsku
skipum, er skrásett voru hér síðastliðið
sumar, kom hingað frá Noregi á föstu-
daginn er var og fór samdægurs til ísa-
fjarðar.
»Eljan» kom hingað í gærkvöldi, Far-
þegar: P. Houeland afgreiðslumaður,
MöIIer agent og Sigurður kaupfélags-
stjóri Sigfússon á Húsavík.
Fiskiskipið «Samson,», eign Ásgeirs
Péturssonar kaupmanns, fór héðan á
laugardaginn er var, áleið is til ísafjarð
ar, til fisikveiða.
Stauraflutningur.
Þeir, sem vilja taka að sér að flytja ca. 85 rit-
símastaura frá Akureyri upp á miðja Vaðlaheiði,
sendi sem allra fyrst skriflegt tilboð um flutning-
inn til undirritaðs.
Akureyri 4. marz 1909.
Gísli /. Ólafsson.
stöðvarstjóri.
Háttvirtum kaupmönnum f Akureyrarkaupstað
tilkynnist hér með, að eg kem að öllu forfallalausu til Akureyrar með g/s «Pros-
pero» þ, 10. þ. m. og dvel þar um tíma.
• Óvanalega margbreyttum varningi úr að velja.
Virðingarfylst.
Páll Stefánsson verzlunaragent.
Framkvæmdastjöri
fyrir »Gufubátsfélag Norðlendinga«, og jafnframt afgreiðslumaður
félagsins á Akureyri.
Laun 250 kr. og 2 °/0 af árstekjum félagsins, öðrum en opinberum
styrk. Ráðinn frá 15. marz til ársloka 1909.
Peir, er taka vilja að sér starfa þennan sendi undirrituðum for-
manni félagsins skriflegt tilboð fyrir 12. marz þ. á.
Akureyri 27. febr. 1909.
Guðl. Guðmundsson.
UPPBOÐ.
Samkvæmt ákvörðun skiftafundar í þrotabúi Hallgríms J. Austmanns verður
opinbert uppboð haldið hér á skrifstofunni þann 25. marz þ. á. og þar seldar
hæstbjóðendum, ef viðunanlegt boð fæst, eftirtaldar jarðeignir þrotabúsins:
1. Hallgilsstaðir í Hálshreppi. 17,i hndr.
2. Veisusel í sama hreppi 14,4 hndr.
3. Fornastaðir í sama hreppi 21,6 hndr.
4. Yztavík í Grýtubakkahreppi 16,2 hndr.
allar liggjandi í Pingeyjarsýslu.
Uppboðið byrjar kl. 12. á hád. nefndati dag og verða söluskilmálar og
önnur skjöl viðvíkjandi eignunum til sýnis hér á skrifstofunni í tvo daga fyrir
uppboðið,
Við sama uppboð verða seld 13 hlutabréf Gránufélagsins.
Skrifstofu Eyjafjarðarsýslu'3. tnarz 1909.
Guðl. Guðmunsson.
„Qnínbátsféiag
Norálendínga“
— Hlutafélag, limit. —
Hlutafé 16,000 krónur.
«•>*
Fyrir hlutum í félaginu geta menn skrifað sig hjá undirrit-
aðri stjórn félagsins. — Hlutabréf verða afhent dagana 10.—15.
marz þ. á. gegn borgun á upphæð þeirri, er menn hafa skrifað
sig fyrir.
Akureyri 25. febr. 1909.
Guðl. Guðmundsson, Otto Tulinius, Sigv. Porsteinsson
formaður
skrifari
gjaldkeri
Otto fflönsteds
danska smjörlíki
er bezt.
Prentsmiðja Björns Jónssonar.