Norðri - 28.10.1909, Page 1

Norðri - 28.10.1909, Page 1
% Ritstjóri Björn Líndal Brjekkugata 19, IV. 43, Akureyri, Fimtudaginn 28. október. 1909. Aðalfundur NORÐRA. Honum verður haldið áfram á mánudaginn kemur kl. 81/* e. h., í húsi Boga Daníelssonar veitingamanns. Mjög áríðandi að allir hluthafar mæti. Stjórnin. * Til minnis. Bæjarfógetaskrifstofan opin kl. 10—2, 4—7 Bæjarsjóður, Lækjargötu 2, mánud. mið- vikud. og laugardaga kl. 4—.7 Kitsímastöðin virka daga 8 f. h. til 9 e, h, helga daga 8—11 og 4—6 Bókasafnið, þriðjud.. fimtud. og laugard. 5 -8. Sunnudögum 10—11 og 4—8. l’ósthúsið hvern virkan dag 9—2 og 4—7. helgid. 10—llf.h. Uthú Isiandshanka 11--2 Utbú Landsbankans 11 — 12 Stúkan Akureyri fundard.þriðjud.kv. kl. 8. Brynja miðvikudagskvöld kl. 8. Isafold Fjallkonan sunnudagskv. kl. 4. Trúföst mánudagskv. kl. 8. NÖRÐR] eitt hið hreinskilnasta blað lands- ins, segir hispurslaust skoðun sína, hvort sem vinir eða ó- vinir eiga í hlut, og færir rök fyrir henni. — Eindregið minni- hlutablað. — Ef þér hafið eigi keypt blaðið hingað til, þá fáið nokkur tölublöð af því lánuð, lesið þau með gaumgæfni og hugsið yður vel um, hvort blað- ið sé ekki þess vert að kaupa það. Árg. kostar 3 kr.. Nýir kaupendur, sem borga næsta árg. fyrirfram, fá í kaupbæti það sem út verður kornið af skáld- sögunni »Jakob«, eftir norska skáldið Alex. Kjelland, einni af hans beztu sögum. Einnig fá nýir kaupendur ókeypis það sem út kemur af þessum árg. eftir að pöntun þeirra er komin ritstjór- anum í hendur. r Oskapnaður. # ~ •' Síðasta blað «Norðurlands« flyiur langa ritstjórnargrein um hið nýja hefti Eimreiðarinnar, sem minnst er á ann- arstaðar hér í blaðinu. Notar blaðið skilnaðarstefnugreinar Eiinreiðarinnar til þess að ráðast á þá stefnu, telur hana, eins og rétt er, eiga, »fáa fylgjendur ennþá í landinu« og er því mjög mót- fallið, að Döntim sé ögrað með henni. Blaðið talar um «stjórnmálaóskapn- aðinn íslenzka.« Bragð er að þá barn- ið finnur. Retta er sá mesti sannleikur er staðið hefir í Norðurlandi, frá rit- stjórans hendi, í langan tíma. Hafi blaðið þetta viljandi niælt og af ásettu ráði, þá er það annaðhvort orð- ið hreinlyndara en það hefir verið til þessa, eða augu þess eru loks tekin að opnast fyrir því, hvílíkan óskapnaðflokks- menn þess, og það sjálft af veikum mælti, hafa gert úr íslenzkri stjórnmálabaráttu. Ætla mætti því, að það vildi reyna að koma einhverjum skapnaði á þenn- an óskapnað, nota tækifærið til þess að láta í Ijós, hvérnig nú verði bezt ráð- in bót á þeim glappaskotum, er gerð háfá verið o£ kötnist tir þeirtl ógöngtl m er út í er komið. Ef hér væri um ein- læga yðrun og yfirbót að ræða, mætti eigi aðeins fyllilega gera ráð fyrir slíku heldur og jafnvel krefjast þess. En því miður: Hér kennir engra góðra grasa, fremur en vant er, heldur að eins sama, margtuggna moðsins, söinu fúnu synuþvælutinar, sömu snarrótarpuntstrá- anna og sömu horblöðkunnar. Hér er farið í geitarhús að leita sér ullar, eins og endranær. Með öðrum orðum, það verður ekk- ert af greininni ráðið um það, hvað blaðið vill og ekki einu sinni hvað það ekki vill. Að sönnu virðist greinilegt, að það sé nú eindregið á móti skiln- aðarstefnunni og ekki vill það láta ögra Dönutn með skilnaði. Þar stendur með- al annars: »Á meðan þeim samnings- tilraunum (o: um sambandsmálið) er ekki lokið, fást víst fáir menn með fullri á- byrgðartilfinningu til þess að takast á hendur ráðgjafastarfið, í því skyni að ögra Dönum, ekki sterkari bakhjarl en þeir hafa.» Á Þingvallafundinum fræga sumarið 1907 var Dönum ögrað nteð skilnaði, og sá er bezt gekk þar fram í því, var núverandi ráðherra með Norðurlands- ritstjórann aftan í sér eins og vant er. I deilunni um sambandslagafrumvarpið í fyrra létu þessir menn skilnaðinn alt af í veðri vaka og óbeinlínis hafa þeir hreint og beint að honurn stefnt með því að krefjast sambandsins í því formi, sein er ómögulegt og ósamrýmanlegt við þingbundnar stjórnir. Allir, sem nokkurt vit hafa á stjórn- málum hljóta að viðurkenna að persónu- samband eitt er ósamrýmanlegt þing- bundinni stjórn. Lendi tveim slíkum ríkj- um í ófriði saman, sem hæglega getur komið íyrir, verður konungur þeirra í raun og veru að berjast við sjálfan sig, og á líkan hátt getur farið með mörg önnur mál. Meirihlutinn er því að leika hinn herfilegasta skollaleik, er hann set- ur í frumvarp sitt frá síðasta þingi á- kvæði um, að vér getum krafist per- sónusatnbands eins að 25 árum liðnum. Eins og margsinnis hefir verið bent á, er þetta í raun og veru alveg sama sem skilnaðarkrafa. Hér er að eins ver- ið að blekkja þjóðina með því að nefna þetta eigi réttu nafni, því að þessum mönnurn er kunnugt um, að þjóðin vill ekki skilnað, enda vilja þeir hann ekki sjálfir, þótt þeir í raun og veru séu að heirnta hann. Leikurinn var gerður til þess að afla sér fylgis þeirra manna er ekki hafa næga þekkingu á því, hvað persónusamband er í raun og veru. Peim var talin trú um, að það væri bezta úrlausn málsins, haganlegasta og frjálslegasta sambandsfyrirkomulagið. Hvers vegna var ritstjóri Norðurlands með til þess að ögra Dönum með skil- naði 1907, en telur það nú ótímabært, þangað til öllum samningatilraunum við þá sé lokið? Og hvers vegna ögrar hann sjálfur Dönum með skilnaði í þess- ari sömu grein, er hér ræðir um? Rar stendm: »Og óneitanlega eru ekki mikl- ar horfur á að samningarnir takist, svo skilnaðarrhennirnir ættu að geta beðið rólegir í svipinn. Peir þurfa kannske, ekki að þreyja svo letigi úr þessu. Hvað ætli sé sennilegra, eftir því sem við- skiptum Dana og íslendinga hefir áður verið varið, en að Danir dragi það að unna oss réttarins til konungssambands- ins, þangað til skilnaðarstefnan er orð- in svo rík í landinu, að meiri hluti þjóðarinnar vill skilnað og annað ekki.« Er þetta ekki einmitt ögrun um skilri- að? Blaðið hefir eigi trú á að Danir muni vilja samþykkja persónusamband, fyr en þjóðin «vill skilnað og annað ekki.« Af þessum kenningum blaðsins verður aðeius sú ályktun dregin, að skilnaðarvilji meiri hluti þjóðarinnar sé skilyrði fyrir því, að persónusamband fáist. Persónusamband er hið eina við- íinaniega og að dómi blaðsins, það sem róa á öllum árum að því að fá. Jafnframt fullyrðir það, að það sé»eigi annað en hégómamál, að svo stöddu, að ögra með skilnaðarstefnu, sem svo afarlítið ber á,» og þá má sennilega ekkert gera til þess að gefa þeirri stefnu vind í seglin. Með öðrum orðum: Per- sóntisambandi eigum vér að sækjast eftir af öilum kröf’um, en jafnframt forðast af fremsta megni að Iáta í Ijós skilnað- aróskir, sem eru eina skilyrðið fyrir því, að takmarkinu verði náð. Og hvað gagnar það, þótt Danir vilji þá fyrst samþykkja persónusamband, er meiri hluti íslenzku þjóðarinnar «vill skilnað og annað ekki«? Verði hér um sannanvilja að ræða, þá kemst persónu- samband auðvitað aldreiáafþeirrieinföldu ástæðu, að íslendingar vilja það ekki, þegar þekn loks gefst kostur á að fá það. Kenning «Norðurlands» verðurþáað síðustu sú, að skilyrðið fyrir því að Danir v i I j i persónusamband sé það, að íslendingar vilji það ekki. Og þó á að berjast fyrir því að fá persónu- samband en ekki skilnað!!! Hver skilur slíkan hugsanagang? Og hver getur annað 'en blygðast sín fyrir þann þingmann, er jafn vankalega snýst um sjálfan sig í því höfuðmáli, er hon- um var falið að ráða til lykta fyrir kjör- dæmisins hönd? Hann telur hégóma- mál að svo stöddu að ögra með skiln- aðarstefnu, en hefir þó sjálfur margsinn- is gert það og gerir það enn um leið og hann telur það hégómamál. Getur nokkur hugsað sér hégómlegri blaða- mensku, hégómlegri ritstjóra, hégóm- legri alþingismann og hégómlegri póli- tík? Er ur.t að breyta alvarlegasta máli þjóðarinnar í hégómlegra fíflskaparmál, og óskaplegri óskapnað? Undir Friðrik 6. og Friðrik 8. 2. Hinn einvaldi fjöldi. Le Bou lýsir fjölda-einveldinu heldur harkalega: xRegar margir koma saman á mót eða þrng, er engu líkara en að hinir einstöku menn hverfi, en ein sál verði úr öllum eða meiri hlutanum, eins- konar félags- eða fundarsál, þannig að skoðanastefna allra fari í sömu átt. Að vísu er sú sál ekki varanlegs eðlis, en á þó allglögg sérkenni. Hún myndar heild. Talan má vera stór eða smá, því hún ræður minstu; fáeinar sálir geta orðið eins og ein sál, en heil þjóð getur líka orðið það. Ekki ræður held- ur neinn stétta- eða vitsmuna munur. Fjöldinn (»massinn«) myndar ekki með- alverð allra meðalverða hjá félagsmönn-' um, eins og Spencer álítur, heldur nýja útkomu út af fyrir sig, Með því menn með ólíkum vitsmunum eru hver öðrum líkir að frum hvötum, ástríðum og til- finningum, og þar eð einmitt þeir eig- irtleikar snerta hvor annan hjá fjöldan- um, þá verður hver 'niðurstaða um al- menn efni, jafnvel þótt afburðamenn eigi í hlut, alveg eins og ályktun, sem gerð er á fundi fáfróðra manna, hvorki lakari né betri. Eins og limur fjöldans finnur hver einstakur, að hann á mikið undir sér vegna aflsmuna félaga sinna, og fyrir því fylgir hann öruggur frum- hvötum sínum, enda hverfur ábyrgð hans, að honum finst, inn í ábyrgð hinna, ef þeir skyldu verða hennar var- ir; því fjöldinn á ekkert sérstakt nafn, En aðaleinkunn fjöldans er þó næm- leiki hans gagnvart innskotum (sug- gestion), því gáfa hvers einstaks í rök- leiðslu hverfur, en öll áhrif verða bráða sóttnæmi. En dáleiddir menn trúa ná- lega .hverju sem vera skal, og er þetta alkunnug staðreynd, einkum á fjölda fundum og við sakaransóknir — —« »Fjöldinn efast aldrei um áreiðanleik skoðana sinna; hann gleymir og aldrei afli sínu og valdi, og við það glatast vægð hans og vorkunsemi. Einstakur maður þolir mótbárur og umræður, en fjöldinn aldrei. A stórfundum inætir hver ræðumaður, sem byrjar niótmæli, óðara uppnámi og rokna-skömmum, er stundum endar í handalögmáli. Einkum er því svo varið í rómönsku löndunum. í hinum norðlægari löndunum lætur ein- staklingurúin meira til sín taka, en suð- urþjóðirnar deila ávalt um mál heild- anna, flokka, stétta og þjóða, og ann- að frelsi kannast þeir ekki við, Rar sem múgurinn kemur saman, er hann ávalt gjarn til uppréistar móti

x

Norðri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norðri
https://timarit.is/publication/201

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.