Norðri


Norðri - 18.06.1910, Qupperneq 2

Norðri - 18.06.1910, Qupperneq 2
9 NORÐRI. NR. 23 Sauðaketið frosið. Eg hefi aldrei lastað nýbreytnistilraunir ef þær bygg- jast á einhverju viti, svolíkurséu til að þær geti orðið að gagni. Fimbulfainb Olafs í þá átt er því vindhögg út í loftið. Hinsvegar verð eg, enn sem komið er, að telja tvísýnt hvað mikill ágóði þrð verði fyrir okkur íslendinga að leggja mikla áherzlu á útflutning á frostnu sauðakéti. Og sé eg ekki bet- ur en að dæmi það sem Ólaíur færir til um verð á frosnu kéti sanni þar frekar álit m.'tt en hans. Er ekkert eins- dæmi þó svo leiðinlega vilji til fyrir Ólafi, heldur á það sér oft stað, að þegar gasparar eru að bulla um mál- efni sem þeir bera ekkert skynbragð á, að þeir rubba fram hinu og þessu er verður tíl að slá sjálfa þá á munninn.— Auðvitað veit Ólafur ekki hvað það kostar að senda héðan sauðaket fros- ið á útlendan markað. Og skal eg því fræða hann lítilsháttar. Er þá fyrst að telja, að auk allra áhalda og kostnaðar við ketið, verður ís’iúsgjald hér, áður en það kemst á skip, 5 aurar á pdnd- ið þó ketið sé ekki geymt á íshúsi nema einn eða tvo daga. En sá kostn- aður er óumflýjanlegur, því allir heil- vita menn sjá að ekki verður unt að slátra sauðfénu samdægurs og ketinu er «skipað um borð». Rá er flutnings- gjald til skipanna fyrir vörur í ísklefa eða þó ekki sé nema í kæligeymslu, 5 aurar fyrir pd., og svo annar auka- kostnaður, umbúðir og fleira er þarftil meðferðar á frosnu kjöti um fram salt- ket og verður tæplega metið minna en 4 aura fyrir pd. Oeta svo þeir sem vilja reiknað út hagnaðinn, sé verðlag Ólafs lagt til grundvallar. Er það þó athugavert, því það er í fyrsta lagi nokk- uð ofan við meðalverð á frosnu Astral- íuketi (sbr. Danske Consulatberetninger) og ennfremur varla líklegt að frosið íslenzkt sauðakjöt geti kept við þá varn- ingstegund sem seld hefir verið um fjölda ára og er neytendunum kunn. Verzlun við P*ýzkaland. Rað átú að vera aðalefni greinar Ólafs, eftir því að dæma, hvað mannalega hann tekur til orða í upphafinu, en það áform snýst alveg öfugt í höndum hans og höfði og er afsakanlegt vegna þess að Ólafur mun lítið vita til þýzkra við- skifta og getur því ekkert um þau sagt. Hefði honum verið betra að bulla minna um þau og lofa Voga-Bjarna einum að verða til athlægis í þeim efn- um. Sýnist það vera nægilegt að einn íslendingur sé erlendis í einu, handa verzlunarfróðum mönnum að henda gaman að, og er óþarfi af íslendingum einum og öðrum að trana sér fram til þess að «spila fávita» erlendis í verzl- unarsökum meðan Voga-Bjarni dvelur ytra fyrir landssjóðsfé. — Ólafur vitnar mikið til manns er hannnefnirP. And- resen og hefir sinn vísdóm frá hon- um. Er það um það að segja, að þó tilraunir hans á sölu íslenzkra afurða í Rýzkalandi séu virðingarverðar þá munu viðskiftafróðirmenn varla verjast brosi, er Ólafur hefir ekkert annað að byggja á vísdóm sinn í sölu á íslenskum af- urðum t Pýzkalandi! — Pá er og al- kunnugt, að ýmsar þýzkar iðnaðarvörur verða keyptar ódýrara af heildsölu um- boðsmönnum í Khöfn, en hægt er að kaupa þær í Pýzkalandi hjá t. d. sjálf- um framleiðendunum, og veldur því, að Þjóðverjar gera þjóða mestan mun á heildsölu og smásölu («Engros« og «Detail«). Danskir heildsölu umboðs- menn kaupa í gríðarstórum skömtum og fá því mun betri kjör en t. d. ís- lenzkir kaupmenn, jafnvel þó peninga hafi og geti keypt «kontant« oger það vegna þess að þeir geta aldrei keypt eins mikið og umboðsmennirnir. — Ólafur segir að «stærstu þýzk verzlunar hús geti borgað bezt íslenzkar afurðir< og efast víst enginn um að »miljóna- firma» geti borgað hátt verð fyrir þær, ef þau vilja, en það mun oftar verða, að þau kæri sig ekki um að kaupa vörurnar hærra verði en þau nauðsyn- lega þurfa, og er nú Ólafur farinn að gerast loftkendur í viðskifta fræðinni að mér finst. Pá er sú kenning Ólafs, að stór verzl- unarhús vilja ekki kaupa vörur er þær græða á eða verzla með, nema þær fái svo og svo mikið af henni í stórum mæli — er það sú firna fjarstæða að undr- un sætir að hún sktali sjást á prenti. Vita það allir sem nokkuð þekkja til viðskifta, að það er ófrávíkjanleg regla allra heilbrigða verzlunarhúsa, að þau skifta svo lengi sem nokkur ágóði er í aðra hönd á þeim varningi er þau verzla með og taka alt með, smátt og stórt. Nenni eg ekki að þræta frekar við Ólaf um það enda væri það óþarfi. Júlíus Júliníusson. er einn þeirra landa vorra, sem með atorku og elju hafa náð því takmarki sem hann þráði í æsku og lagði kapp á að ná, en það var skipstjórastaða. Þessari ósk hans er fyrir skömmu ftsll- nægt, því nú er hann skipstjóri strand- ferðagufuskipsins »Austri.« Júlíus er fæddur á Akureyri árið 1879 og því aðeins 31 árs gamall. Foreldr- ar hans voru fremur fátæk en þó bjarg- álna. Árið 1897 réðst hann sem há- seti á »Skálholt« og var þar til 1901, að hann gekk á sjómannaskólann á Bogö, sem nú er talinn fremstur af þesskonar skólum í Danmörku. Munu þeir skipstjórarnir Oodtfredsen og Lar- sen, sem hér eru flestum kunnir, frem- ur hafa hvatt hann til þess en latt. Samverkamenn hans og farþegar, sem kynntust honum meðan hann dvaldi á »Skálholt», ljúka allir loforði á lipurð hans og ástundun meðan hans naut þar við. Sjómannaprófi lauk hann með ágætiseinkunn eftir 16 mánaða náms- lil TIL ÞEIRRA SEM EKKI VERZLA VIÐ EDINBORG ykkur inn 1 IS J-|efir ykkur aldrei komið til hug- ar að þeir peningar, sem þið sparið, haf- ið þið unnið ykkur inn, og því reynið þið þá ekki að vinna PENIN GA Berið saman verð og gæði á vör- unum hjá okkur og öðrum kaupmönn- um hér í bæ og þið munuð sannfær- ast, að við stingum töluverðu fé í vasa ykkar í hvert sinn sem þið kaup- ið eitthvað. Auk þess getið þið líka sparað ykkur tíma, og tíminn er líka peningar — með því að senda pantanir ykkar með símanum, því það er okkur ánægja að flytja allar vörur — smáar og stór- ar, hvert sem er í bæinn, heim til ykk- ar alveg kostnaðarlaust. Hikiðþví ekki að hringja upp Tele- fon nr. 12, næst þegar ykkur van- hagar um eitthvað Virðingarfylst. G. Jóhannesson. MDNIÐ AÐ MARGT SMÁTT GJÖRIR EITT STÓRT. Fleiri ritgerðir í vœndum! Ólafur lýsir því yfir hátíðlega, að hann ætli að semja ritgerðir um þetta og þetta áður langt liði og geta þá lesendur Norðurlands glaðst yfir því hvað þeir eiga í vændum því þar birtast guð- spjöllitt væntanl. Og svo kemur þar von- andi löngromsa gegn þessum línum, en Ólafur verður að virða mér til vorkun- ar þó eg nenni nú ekki að fást við hann oftar en í þetta sinn, og kveðji hann fyrir fult og alt með þessum lín- um. Pykist eg hafa vel gert að hafa átt orðastað við hatin þetta sem orðið er —ekki skemtilegri en rembingur hans er viðfangs, enda hefi eg ritað línur þessar fyrir Torfa gamla vin minn, sem eigi var viðlátinn og bað mig í bráð- ina að gagnrýna mestu lokleysurnar hjá Lalla, þar til hann hefði tíma. Einn af kunningjum Torfa gamla. tíma við skólann á Bogö. Eftir það sigldi hann nokkurn tíma með Pjóð- verjum á stóru seglskipi og fór víða um, var hann þá stýrimaður þar. Segl- skipaferðirnar virtust honum tafsamar og réði sig þess vegna sem fyrsta há- seta(« Aspirant«)á stóru gufuskipi ,Palmö‘ sem er eign «Det Kjöbenhavnske Dampskibs-Selskab: Skömmu síðar varð hann þriðji stýrimaður á 3000 tonna skipi «Gallia,» eign sama félags, síðan annar og loks fyrsti stýrimaður á því skipi eftir ótrúlega stuttan tíma; eru þó til þess starfa ekki valdir aðrir en þeir menn, sem áunnið hafa sér hylli yfir- boðara sinna, og reyndir eru að dugn- aði og stjórnsemi. Síðastliðinn veturréðsthann til «Thore« félagsins sem skipstjóri «Austra«: Atti heimþrá til bernskustöðvanna talsverð- an þátt í því. Hann hefir því óneitan- lega náð þvf takmarki, sem hann setti sér fyrir mörgum árum síðan, nðverða fyrsti íslendingurinn til þess að takast á hendur, lögum samkvæmt, að stjórna millilanda-farþegjaskipi. Pað sem af er ferðum hans með «Austra« hér við land, er óhætt að fullyrða að honum hafi farist ágætlega. Júlíus er giftur danskri konu frá Bogö og á með henni tvö börn. Hjónaband það er hið ástúðlegasta. Aldebaran. Samtíningur. Einteins járnbrautir Hin nýja uppfynding að láta járn- brautarlestir fara á einum brautarteini er búist við að fyrst komi til verulegra framkvæmda í Alaska. Par er áformað að leggja slíkar brautir hið bráðasta milli hinna ýmsu námustöðva. Amerískt kaupmannafélag hefir fengið einkarétt fyrir uppfyndingunni í Alaska, og hefir skuldbundið sig að leggja 100 mílna langa einteiningsbraut fyrsta árið. Lífið á Marz Þeir þræta um það, um þessar mund- ir, stjörnuspekingarnir hvort það muni vera lifandi verur á Marz. Sá heitir Lowell og er prófersor, sem heldur því öruggast frani að svo sé, og ver hann skoðun sína með miklum sönnunalíkum. Hann segir: Marz er hnöttur sem að vísu er að deyja út, en sem þóenn er byggður af stórvitrum verum, sem heyja harða baráttu fyrir lífinu. Það er eink- um vatnsleysið sem ætlar þá liíandi að drepa, því ekkert haf er í Mirs. Vatn- ið sem þar er hægt að ná í verður að fra nleiða á þann hátt, að láti heim- skautaísinn bráðna, og svo er það vatn leitt í skurðum eftir endilöngum hnett- imtm, þessir skurðir eru sjáanlegir í góðum sjónpípum og ligga allir frá skautunum, og nýr vottur um dugnað Marzbúa í slíkri skurðagerð er, að í fyrra bættust 4 nýjir skurðir, við sem eigi voru sjáanlegir áður. Hann náði Ijósmynd af þessum nýju skurðum í september í fyrra, og að Jjcir eru sjá- anlegir er einungis því að þakka að þeir hafa verið fyltir með vatn. Að mörgu leyti líkist Marz jörðunni, svo sú spurning vaknar ósjálfrátt hjá manni: Munu bau forlög bíða jarðar- búanna langt fram í aldahvarfi að verða að heyja harða og ef til vill á endan- um vonlausa baráttu vi5 vatnsleysið og þorstann. Prófessorinn hreyfir þessari spurningu en svarar henni ekki. Gamlir peningar fundusl í vor nálægt Bergen, þar sem verið var að grafa fyrir nýjum vegir Það voru 900 silfurpeningar frá tímum Magnúsar Eiríkssonar. Þeir voru send- ir á forngripasafnið í Bergen. Roald Amundssen, nafnkunnur norskur heimskautafari er um þessar mundir að leggja af stað norður í höf á hinu fræga skipi Nan- sens «Fram» skipið hefir verið nákvæm- lega eftii litið og endurbætt og allur út- búnaður svo góður sem föng eru á. Lagt út með nesti til fjögra ára og annað eftir því. Stgurvinningar í loftinu. Ný loftför. Loftfaratilraunir standa efst á dagskrá hjá öllum helztu þjóðuni; þeirra kann að gæta lítið um stund og gleymast vegna annara viðfangsefna; en þar kom- ast stöðugt efst á baug aftur. Ekkert er betur fallið til þess að gagntaka hugi manna af öllum stéttum eins og atburð-

x

Norðri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðri
https://timarit.is/publication/201

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.