Norðurland


Norðurland - 15.03.1902, Qupperneq 2

Norðurland - 15.03.1902, Qupperneq 2
lög um skólann og með þeirri breytingu helztri frá fyrri lögun- um, að skólastjóri þurfti ekki að vera búfræðingur. — 1881, þegar skólinn hafði staðið 1 ár, var lög- unum enn breytt — búfræðin num- in burt og þeirri skipun komið á skólann, sem hann hefir haft óbreyita nú um 20 ár. (I minning- arriti Möðruvallaskólans, sem er ný-útkomið, er nánar sögð saga skólans.) Hin volduga þjóðskólahug- mynd Norðlinga varð þannig í framkvæmdinni að 14 mánaða al- þýðuskóla, raunar með allmörgum skyldunámsgreinum, en óhæfilega stuttum námstíma, svo kenslan hlaut að verða kák eitt að meira eða minna leyti. En við þetta hafa Norðlingar unað fimtung aldar. Norðlenzkir bændur hafa horft á það þegjandi, að sonum þeirra hefir fækkað ár frá ári í þessum eina lærða skóla landsins, fyrir þá sök, að þeir höfðu ekki eftii á að kljúfa hinn sí-vaxandi skólakostnað í Reykjavík. — Á síðustu árum hafa að vísu heyrst raddir um það, að bæta skólann, lengja námstímann og koma honum í samband við lærðaskólann. Þessu hefir hvað eftir annað verið hreyft á fund- um hér í Eyjafirði, í blöðunum og jafnvel á alþingi, en hingað til setið við orðin ein. Þetta má ekki svo lengur ganga. Skal eg síðar færa rök að því. — Hér verður að geta skólastofn- ana, þótt skammlífar yrðu, sem skyldar voru Möðruvallaskóíanuin að því leyti, að þær voru almennir fræðsluskólar og kepþinautar hans um liríð. 1883 hóf Guðmundur Hjaltason kenslu í Laufási með dönsku lýðháskólasniði og vetur- inn eftir flutti hann sig til Akureyr- ar með skóla sinn. Var danskur lýðháskólamaður í félagi með hon- um og aðstoðaði hann við kensl- una. Var skólinn vel sóttur þann vetur, enda fór nú aðsóknin að Möðruvallaskólanum rénandi og ýmsir þeirra manna, sem mest höfðu gengist fyrir stofnun hans, snerust nú algjörlega móti hon- um. Um haustið 1886 kom eng- inn á lýðháskóla Guðmundar og féll sá skóli úr sögunni. En nú voru Þingeyingar farnir að hugsa um að koma upp hjá sér alþýðuskóla. Veturinn 1885 — 86 fór kensla fram í Laufási og haustið eftir var skólanum komið á Iaggirnar mest fyrir forgöngu Einars Ásmundssonar í Nesi, í nýju húsi, sem honum hafði verið reist í Hléskógum í Höfðahverfi. Þetta og hið næsta ár fengu færri en vildu aðgang að skólanum, en á Möðruvallaskólanum stóð neðri- bekkur tómur veturinn 1887 — 88. Það var því alt útlit fyrir, að Hlé- skógaskólinn ætlaði að ríða hón- um að fullu, enda mun sá hafa verið tilgangur sumra þeirra, er að honum stóðu. En sú varð þó ekki raunin á. Haustið 1888 kom að eins 1 eða 2 á Hléskógaskól- ann og næsta ár lagðist hann niður. En samtímis hófst aðsóknin að Möðruvallaskólanum af nýju og fór óðum vaxandi næstu ár á eftir. Síðastliðin 10 ár hafa fleiri æskt inngöngu árlega en húsrúmið hef- ir leyft. — Þegar búfræðiskenslan var af- numin á Möðruvöllum, fóru Norð- lingar að hugsa um, að koma sér upp sérstökum búnaðarskóla. Höfðu menn einkum augastað á biskupssetrinu forna, Hólum í Hjaltadal, sem nú var komið í hina mestu niðurlæging og órækt. Voru það einkum Skagfirðingar og Húnvetningar, sem gengust fyrir þessari skólastofnun og tókst þeim að koma á búfræðiskenslu joegar 1882. Llafði Jósep Björns- son búfræðingur kensluna á hendi. Árið eftir komu þeir skólanum á fastan fót og gengu þá Ey- firðingar í samband við þá um skólann. — Seinna bættust Suður- Þingeyingar við og stóð skólinn undir yfirstjórn sýslunefndanna í þessum fjórum sýslum, er kusu sérstaka skólastjórn, þangað til amtsráðið tók skólann að sér árið 18Q9. Síðastliðið vor ákvað amts- ráðið að breyta skólanum í vetrar- skóla með líku sniði og slíkir bú- fræðiskólar eru bæði í Danmörku og Noregi, þar sein bændaefni geta fengið sem bezta og praktísk- asta fræðslu í öllu, sem að bún- aði lýtur. En hér er ekki rúm til aðfjölyrðafrekarum þennan skóla; en brýn nauðsyn er á að taka bún- aðarskólamálið í heild sinni til rækilegrar íhugunar. Stæði Bún- aðarfélagi íslands næst að gangast fyrir því, enda komu fram tillögur í þá átt á síðasta búnaðarþingi. X Snepillinn úr Saurbæjarhreppi. Það lítur út fyrir, að það ætli ekki að ganga af fyrirhafnarlaust, að búa sig undir þingkosninguna hér í Eyja- firði á næsta vori, eftir því að dæma, hve mikið er samið af áskorunum, skuld- bindingum, yfirlýsingum o. fl. o. fl., sem alt af er að heyrast meira og meira af. Þessi ósköp dynja mest yfir úr einum hreppi — Saurbæjarhreppi, — enda hefir hann lengi verið fyrirmynd hvað félags- skap og einingu snertir! Hið síðasta, sem sést og heyrst hefir frá Saurbæingum, er prentuð yfirlýsing um, að J>eir, þ. e. a. s. tæpir % af kjósendum hreppsins, ætli ekki að kjósa Kl. sýslumann Jónsson til þings, á næsta vori, og hafa þeir verið að dreifa þess- um sk........miðum út um sýsluna, líklega öðrum til eftirbreytni, ]>ví ann- ars höfðu menn ekkert með snepla þessa að gera. Yfirlýsing þessi er annars dálítið skrítin, og sumstaðar ekki meira en svo sannleikanum samkvæm. — Það er t. d. ekki satt, að þeir hafi ekki sent á- skorun »út um sýsluna« —út úr hreppn- um—,því þeir sendu þó mann með á- skorun í Öngulstaðahrepp um, að fá skrifleg loforð bænda þar, að kjósa þá Guðmund á Þúfnavöllum og Stefán í Fagraskógi; þar náðu þeir 4 eða 5 nöfn- um, en leizt svo ekki að fara lengra, enda mundi það, að sögn, hafa orðið árangurslítið. í Hrafnagilshrepp kom líka ein áskorunin, en þó hún ef til vill hafi ekki komið þangað beint frá Saurbæingum, mun hún hafa komið frá þeim manni, er verið hefir þeirra stoð og stytta og aðal-sendil! í þessu máli í vetur. Þá koma ástæðurnar fyrir því, að þeir ætla að hafna Kl. J. við næstu kosningar og eru þær 3. Fyrsta ástæðan er sú, að þeir vilji ekki missa hann frá embættinu »lengri tíma af árinu«. Það er annaðhvort, að þeir hafa öðlast »æðri og betri þekk- ingu« síðan í fyrra, því þá kusu hann allir, sem mættu á kjörfundi úr Saur- bæjarhreppi, nema einn eða tveir, — eða þeir eru ekki sjálfum sér vel sam- kvæmir. Hann hefir þó sama embætti nú cins og þá, og vonandi ekki farið svo mikið aftur síðan, að hann. sé orð- inn afkastaminni í embættinu nú, en þá. — Að hann sem þingmaður, yrði í burtu lengri en styttri tíma af árinu, nær ekki nokkurri átt. — Önnur ástæðan er sú, að þeir vilji fjölga bændum á þingi, en fækka em- bættismönnum. Þetta hefir oft verið látið hljóma í eyrum manna, og er ekk- ert á móti því, ef maður hefir völ á nokkurn veginn eins hæfum bónda, eins og embættismanni; en sé það ekki, geri eg ekki svo mikið úr nafninu »bóndi«, því menn hafa haft dæmin fyrir sér, að sumir bændur á þingi hafa engan veginn haldið taum bænda, meira en embættjsmennirnir, og líka höfum við haft menn á þingi, sem ekki hafa ver- ið af bændaflokki, en enginn mundi hafa viljað kasta frá þingmensku. — Aldrei var Jón Sigurðsson skjalavörður bóndi, og mundu fáir hafa viljað hafna hon- um fyrir það, og svo mætti fleiri telja Hvernig ætli annars að þingið yrði, ef þar sætu eintómir bændur? Og hvernig mundi lagasmíð þess þá verða? Þá er þriðja ástæðan, sem Kl. J. á að vera rækur fyrir af þingi, að hann hafi ekki sömu skoðun og undirskrif- endur á bankamálinu. Ætli þessir 44 undirskrifendur hafi nú getað fengið svo fastan og staðgóðan skiluing á bankamálinu yfir höfuð, að þeir geti sagt við þingmenn sína: »Þetta skaltu gera, þetta er hið eina rétta« ? — Mér liggur við að efast um að þeir séu svo bankafróðir, Um valtýsku sýslumannsins segjast þeir vilja sem fæst tala, og segja, að sá »orðrómur« sé ekki fæddur né upp- alinn hjá sér. — Það er líklega satt, að hann er ekki »fæddur« þar, en að hann (»orðrómurinn«) sé ekki uppalinn þar að einhverju leyti, er ef til vill ekki eins áreiðanlegt, og vfst mun hann hafa komið fram á Saurbæjarfundinum í vet- ur, og verið þá í góðum holdum. Hvað sem þessum þremur »ástæðum« 1' yfirlýsingunni líður, sem nú eru gerð- ar gildandi, mun þó »orðrómurinn« í fyrstunni hafa koinið jábræðrunum í Saurbæjarhreppi til að hefja þessa ein- kennilegu baráttu gegn Kl. J., nema þá ef vera skyldi eitthvað persónulegt f þessu, þó ótrúlegt sé. Hvernig sem á mál þetta er litið, þá er öll aðferðin mjög óheppileg og ó- makleg og getur haft illar afleiðingar, bæði fyrir kjördæmið og landið alt, ef hún gæti orðið til þess, að Kl. J. færi eigi á þing. En það er vonandi, að hin- ir aðrir kjósendur kjördæmisins láti ekki þetta uppþot Saurbæinga blinda svo augu sín, að þeir hafni Kl. J., ef hann gefur kost á sér til þingfarar, — að þeir hafni ekki manni, sem bæði af flokksmönnum sínum og andstæðingum á þingi hefir verið álitinn einhver fjöi- hæfasti og duglegasti þingmaður. — Það sem heyrst hefir, að Kl. J. væri helzt fundið til foráttu á þingi, hefir verið það, að hann væri fullharður með fjár- kröfur úr landssjóði til kjördæmis síns, t. d. til akbrautarinnar, spítalans, auka- læknis og Hörgárbrúar; en það hélt eg að kjósendum hans mundi í síðustu lög verða að tilefni til að snúast gegn hon- um, enda trúi eg ekki öðru, en að flest- ir af þeim, sem léð hafa nöfn sín und- ir áskorunina til bændanna tveggja, hafi fundið og orðið að viðurkenna, að þær fjárveitingar úr landssjóði hafi verið héraðinu til mjög mikils gagns og prýði. Það er óefað, að allar þessar fjárveit- ingar til héraðs okkar eru mest dugn- aði 1. þingmanns okkar að þakka, en af því hefir leitt, að margur Eyfirðing- ur hefir fengið aftur krónur sínar í vasann, sem hann áður hefir verið bú- inn að borga í Iandssjóð. Geta nú þessir Saurbæjarhrepps- áskorendur í raun og veru búist við því, að þessir tveir menn, sem þeir hafa skorað á að bjóða sig fram til þingfarar, verði afkastameiri þingmenn fyrir hérað sitt og þjóðhollari, en Klem- ens sýslumaður? Að báðum þeim mönn- um alveg ólöstuðum, gæti eg ekki lát- ið mér koma til hugar, að taka þá fram yfir hann, eftir framkomu hans á þingi alt til þessa. Kjósendur kjördæmis þessa ættu alls eigi að láta neinar »læður« eða æsinga- seggi ginna sig eða hræða til að lofa atkvæðum sínum í því augnamiði, að koma 1. þingm. okkar frá þinginensku. Það er þegar nóg aðgert, og víst er um það, að þetta kosningauppþot, sem byrj- aði í Saurbæjarhreppi í vetur, hefir þeg- ar sett þann blett á héraðið, sem óvíst er að þvoist burtu á næstu misserum; en komist þessi flokkur svo langt, eða þeir, sem að honum standa, að Kl. J. nái hér ekki kosningu í vor, — þó að hann bjóði sig fram — þá verður það kjördæminu öllu til skaða og stór- minkunar. H. H. X Tekið af skarið. Eins og skýrt var frá í síðasta blnði „Norðurl.11, hefir stjórn Frainfaraflokksins tekið af skarið svo sem frekast var unt í stjórn- arskrármálinu, Rar sem hún hefir ritað íslandsráðherranum og tjáð honum afdráttarlaust, að tilboð stjórnarinnar muni „hafa öflugt fylgi flokksins, utan þings og inn- an“, og að flokkstjórnin muni „af fremsta megni leitast við að styðja þau úrslit stjórnbótarmálsins1'. Með engu öðru móti var betur unt að kveða niður getsakirnar og dylgjurnar um það, að flokk- urinn mundi í raun og veru ætla sér að samþykkja frumvarpið frá síðasta þingi. Vitanlega hafa slíkar getsakir engri átt náð, þar sem stjórniri býður allar þær miklu réttarbæt- yr, sem fólgnar eru í frumvarþi síðasta þings, og auk þess inn-

x

Norðurland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurland
https://timarit.is/publication/203

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.