Norðurland


Norðurland - 05.12.1903, Page 3

Norðurland - 05.12.1903, Page 3
43 N1 þykir þeim tilvinnandi að kli'fa þrítug- an hamarinn til þess að sækja hingað auðinn. A sama tíma heyrast ekki annað en æðruorð frá útgerðarmönnunum í höfuðstað vorum. Þeir keppast um að bjóða skip sín til sölu. Þeir telja auðsjáanlega þennan atvinnuveg í voða, þrátt fyrir hátt verð á fiskinum. Og þeir ráðgera tilraun með stórkostlega breyting á öllu fyrirkomulagi útgjörð- arinnar — tilraun, sem óvíst er með öllu, hvort unt er að fá framgengt. í sambandi við þetta getur sá, er þetta ritar, ekki annað en minst sam- ræðu, sem hann átti fyrir fáum árum við einn mesta útgjörðarmanninn í Rvík. Útgjörðarmaðurinn var nýkom- inn utan af frönsku fiskiskipi og hann var sem agndofa af því, er hann hafði séð — þeirri snildar-umgengni, sem þar var á öllu og þeirri fyrirtaksvöru, sem þar var framleidd. Hann gat ekki komið orðum að þeim mismun, sem var á þeirri vöru og íslenzka fiskin- um. Fiskinn höfðu Frakkar dregið hér við land innan um íslendinga. Önnur eins dæmi og þetta eigum vér að taka til rækilegrar íhugunar og láta þau verða oss að kenningu — ekki að eins í fiskiveiðum vorum, heldur og í öllum vorum atvinnu- greinum. Af engu getur þessari þjóð meiri háski stafað en því, að hún láti undir höfuð leggjast að gera sér grein fyrir, hvernig ástatt er um hana í samanburði við aðrar þjóðir. Þeir menn, sem eru að fylla eyru vor með kenningum um, að vér stöndum öðr- um þjóðum jafnfætis í þeirri þekk- ingu, sem að haldi kemur í lífinu, og ilskast, þegar að oss er fundið, eru vorir óþörfustu menn. En að hinu leytinu megum vér ekki láta það verða oss til örvílnunar að lúka augunum upp fyrir því, sem oss er ábótavant. Til þess er ekki nokk- ur minsta ástæða. Vér eigum land, sem áreiðanlega gæti gert alla þessa þjóð að auðmönnum, og það þótt hún væri miklu mannfleiri. Og jafn-víst er hitt, sem hr. Havstad tekur líka svo afdráttarlaust fram, að þjóðin er búin nægum hæfileikum til þess að færa sér í nyt gæði landsins. Hér er ekki um neina hnignun mannanna að tefla, eins og hjá ýmsum suðrænum þjóð- um. Þeirri þjóð er ekki aftur farið í raun og veru, sem átt hefir að búa við önnur eins kjör og íslendingar, og heldur samt uppi í öllu fámenn- inu sjálfstæðum, merkilegum bókment- um og gefur út árlega 25 sinnum meira af prentuðu máli, að tiltölu við mannfjöldann, en þær stórþjóðirnar, sem mesta lestrarfýsn hafa, eins og prófessor W. Fiske hefir nýlega bent á. Nýjafesfamentiö, sem Mr. Fr. H. Jones hefir gefið út á Englandi á síðastliðnu sumri, er einkar snot- Urt, og auðsjáanlega sérstaklega hentug jóla- gjöf. Bókin er skreytt einstaklega fallegum myndum eftir tvo fræga enska málara, Har- per og Clark. Þeir höfðu ferðast til Austur- landa, áður en þeir bjuggu til myndirnar, til þess að sjá lífið þar eigin augum, svo myndirnar gefa mönnum rétta hugmynd um lífið þar, það sem þær ná. Frágangur allur á bókinni er hinn vandaðasti. lCtrýming fjárkláðans á Jlusfur/andi. Fjárkláðalæknir Davíð Jónsson ritar með síðasta austanpósti, 21. nóv. síð- astl.: »Þegar eg kom hingað austur, var eg svo heppinn að hitta báða sýslu- mennina á Seyðisfirði, og gat því tal- að við þá í sameiningu. Þeir fóru þess á leit við mig, að eg frestaði böðun þangað til í desember, og gekst eg undir það. »Síðan hefi eg ferðast um Norður- Múlasýslu og Suður-Múlasýslu alt suð- ur að Hofi í Álftafirði, til að kynna mér ástandið og undirbúa málið. Fundi hefi eg haft með skoðunar- og böð- unarmönnum: í Vallanesi þ. 13. þ. m., á Eiðum þ. 16. og Hallfreðarstöðum þ. 18., og svo hefi eg boðað fund á Eskifirði þ. 23. í Eydölum og Búlands- nesi ætlaði eg að halda fundi um daginn, en það fórst fyrir vegna veð- urs. Hefi eg því ákveðið fund 1' Ey- dölum þ. 30. þ. m. og í Geithella- hreppi þ. 3. desember. Þaðan fer eg suður í Skaftafellssýslu. »Á þessu ferðalagi mínu hefi eg rekið mig á ýmsa agnúa því til fyrir- stöðu, að hægt sé að framkvæma al- menna böðun á sauðfé, og eru þeir einkum fólgnir í því, að heybirgðir bænda eru yfirleitt litlar og víða stórskemdar; þar af leiðandi mikil hætta að menn leggist undir höfuð að hafa fé sitt inni hinn ákveðna tíma, enda sumstaðar ekkert hey til að gefa sauðfé; að hús eru víða léleg og leka hverj- um dropa, sem kemur úr loftinu; sum- staðar eru þau garðalaus og þvf ó- hæfileg til innigjafar, sumstaðar er féð hýst í hellum og á einum bæ að minsta kosti (Urðarteigi við Berufjörð) er, að sögn, ekkert fjárhús til á heim- ilinu, og ekki einu sinni fjárrétt; og að mótspyrna er gegn almennri böðun, sérstaklega í þremur hreppum Suður-Múlasýslu, svo eigi er annað fyrirsjáanlegt en til og frá þurfi að gera valdböðun, sem eg álít mesta neyðarúrræði. »Eftir nákvæma umhugsun og með það sérstaklega fyrir augum — eftir því, sem fram kom í vor — að kláð- inn sé ekki almennur, hefi eg neyðst til að hverfa frá því að gera almenna böðun að svo stöddu, heldur viðhafa sömu reglu eins og Myklestad hafði við útrýmingu fjárkláðans í Noregi, að gera nákvæmar skoðanir og baða að eins hið sjúka og grunaða fé; því eins og eg hefi bent á hér að fram- an, er almenn böðun illframkvæman- leg. Þessu hafa bændur tekið. fegins hendi. »Skoðun hefi eg ákveðið að byrja 1. desember á öllu Héraði, Jökuldal og í fjörðunum suður að Breiðdal; önnur skoðun byrjar 11. jan. og þriðja skoðun 29. febr. Ef mér þykir ástæða til þesi, læt eg gera fjórðu skoðun í apríl á hinu baðaða fé, og að sjálf- sögðu á grunsömu. »Eg hefi sent Pál frá Hvanná til Vopnafjarðar til þess að gera ráðstaf- anir þar, hefi falið honum að gera þar almenna böðun, ef fjárkláða hefir orð- ið vart að mun næstl. vetur, eða ef nokkuð hefir borið á honum í haust;' annars að fylgja sömu reglu eins og eg hér eystra.« í þessu horfi er þá málið þar eystra. Davíð Jónsson hefir leitað álits amt- manns og Myklestads um það, hvort ekki skuli halda þessari útrýmingar- aðferð áfram. Amtmaður skrifaði Mykle- stad vestur í Skagafjörð með póstin- um, sem lagði á stað í fyrradag, og lagði málið algerlega á hans vald, eins og sjálfsagt var. Búast má við því, að þeim bænd- um, sem alt kapp vilja leggja á það að útryma nú fjárkláðanum og einskis vilja láta ófreistað, til þess að því megi framgengt verða, þyki mjög varhugaverð þessi aðferð, sem í ráði er að taka upp í Múlasýslunum. Hér á Norðurlandi, þar sem kláðinn er svo magnaður víða, hefði hún að sjálf- sögðu verið hið mesta óráð og orðið margfalt kostnaðarmeiri en almennar baðanir. En það, hvort hún er hæfi- leg á Austurlandi og henni verður þar bót mælt, virðist algerlega leika á því, hve mikil brögð eru í raun og veru að fjárkláðanum eystra. Sé fjár- kláðinn þar örlítill, ætti þessi aðferð að geta lánast þar, eins og í Noregi. Sé hann aftur á móti meiri en orð hefir verið á gert, má búast við því, að menn eftir á iðri þess á Austur- landi, að þar var ekki klifinn þrítug- ur hamarinn til þess að koma almenn- um böðunum á eins og í Norðlend- ingafjórðungi. X Jlígr sauöamarkaour. Herra Garðar Gíslason hefir 17. okt. ritað formanni Landsbúnaðarfélagsins á þessa leið: »Því miður eru hér daufar horfur með sölu á kæfu og niðursoðnu keti. Gunn. Einarsson sendi mér nokkurar 2 pd. dósir af kjöti og I pd. dósir af kæfu. Verð áleit hann hæfilegt hér 1 sh. 2 pence pr. kjötdós og 10 pence pr. kæfudós. Fyrst og fremst er þetta verð alt of hátt, samanborið við sams konar vörur hér. Hingað er mikið flutt inn Australíu kjöt (mest niðursoðið í Sydney) sem þykir í alla staði gott, og er það selt í 1 pd. dósum (í stór- kaupum), 8 V2 pence pr. dós, yrði því erfitt að keppa við það, ef ekki mætti selja fsl. kjöt í 2 lbs. dósum á 8 pence pr. dós. í Antwerpen er mikið selt af niðursoðnu kjöti til skipa, sem er bæði frá Australíu og Ameríku, og er það vanalega í 6 pd. dósum og tólf dósir í kassa, sem kostar þar (í stórkaupum), 30 franka. Sama er að segja um kæfuna, hún er alt of dýr. fie'r er ekki til sauðakjötskafa til sarnan- burðar, heldur kæfa búin til úr svína- kjöti, nautakjöti og kálfakjöti. í seinni tíð hefir sú kæfa tapað áliti og um leið selzt ver, vegna þess að menn óttast svik í henni, og það máske ekki ætíð að ástæðulausu; þá vöru á einstaklingurinn óhægt með að rann- saka. Ef mögulegt yrði að finna kaup- endur að okkar kæfu, mundi hún þurfa að vera »hökkuð«, þannig að engar tægjur fyndust í henni. Lfka ætti hún að vera í mjög smáum dósum, sem sjálfsagt mættu vera mjög óvandaðar. lU pd. væri líkl. hæfilegt. — Eg sé ekki ástæðu til að láta prenta »etikett- ur« fyr en eg fæ sýnishorn, sem eg hefi von um að seljist. Fyrir skömmu brá eg mér til Ant- werpen til þess þar að forvitnast um, hvort ekki mundi vera þar sölustaðir fyrir einhverjar íslenzkar vörur, sér- staklega hafði eg í hyggju saltkjöt. En því miður eru sárlitlar líkur til að það seljist þar, þótt undarlegt megi virðast, þar sem á því er enginn inn- flutningstollur og kjöt í mjög háu verði. Samt geri eg ráð fyrir að senda þangað sýnishorn til frekari reynslu. Fé cí fœti selst þar aftur á móti mjög vel. Verðið var þá um 1 franka pr. 1 kilo í lifandi vigt. — Það álít eg að sé markaður, sem vert væri að reyna. Það er líka ágætur markaður þar fyrir harðfisk. Frekari upplýsingar þessu við- víkjandi er eg fús til að gefa þeim, sem óska.« X Bæjarsfjórnarfundur. Þriðud. 1. des. Rætt var um plan yfir brekkurnar og sér- staklega lóðakaup á Friðbjarnartúni í tilefni af byggingarnefndarsamþykt. Lagt var fram plan yfir brekkurnar fyrir ofan Oddeyri og inn að Torfunefslæk. Bæjarstjórnin samþykti planið. Þá var og lagt fram plan yfir autt svæði syðst á Friðbjarnartúni og kosin nefnd — Páll Briem, KI. Jónsson og Jón Norðmann — til að semja við Friðb. Steins- son um sölu á þeim parti túnsins, er þyrfti undir svæðið. Rædd reglugjörð fyrir hafnarbryggjuna grein fyrir grein og að síðustu samþ. í einu hljóði. Umsókn um bæjargjaldkerasýslanina hafði að eins komið fram frá umboðsmanni St. Stephensen. Bæjarstjórnin veitti umsækjanda sýslanina, en að eins til eins árs, af því að enn er eigi hægt að ákveða um, hvað mikið störf gjaldkera vaxa við kaup Nausta, sótaragjald o. s. frv. Björn Jónsson sótti um blett tíl erfðafestu í Hamarkoti; beiðninni vísað til Eyrarlands- nefndar til úrslita. Bæjarstjórnin synjaði í einu hljóði um að leigja skólastofu til leikfimi. Vatnsveitureikningum frá Þorv. Davíðssyni vísað til nefndarinnar. Fasfeignir Akureyrar. Þessar eru tekjur af fasteignum bæjarins árið 1903: Kr. Af erfðafestu....................... 26.54 — húsum.......................... 131.50 — túnum........................... 80.12 — hólmuin........................ 373.00 — mó............................. 290.50 — grjóti.......................... 63.50 — hestahögum..................... 332.77 — kúahögum....................... 318.50 — seldum lóðutn.........• . . . . 276.30 — leigðum —...................... 111.00 — Ýmislegu....................... 175.00 Sanitals . . . 2078.73. Amerískir plógar. Hr. Jón Ólafsson segir frá því í blaðinu „Reykjavík", að amerískir plógar, sem reyndir hafa verið í Reykjavík, þyki ágætir. Landbúnaðarfélagið keypti þá fyrir eitthvað þremur árum, og þá tókst í fyrstu ekki að nota þá. Menn höfðu ekki lag á þeim, og hugðu, að þeir ættu ekki við íslenzka hesta og jarðveginn hér. Nú hefir félagið fengið danskan plægingamann, Julius Jensen. Hann hefir reynt plógana amerísku, og telur þá ágæta, taka langt fram öðrum plógum, sem hér hefir verið kostur á að fá. Dagsláttuna kvaðst hann geta plægt með þeim á 9 kl.- stur.dum, ef hann hefði 4 hesta, 2 og 2 á víxl til hvíldar. „Fálm út í loftið.“ Mjög merkur maður á Austurlandi skrif- ar ritstjóra þessa blaðs með síðasta pósti;

x

Norðurland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norðurland
https://timarit.is/publication/203

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.