Norðurland


Norðurland - 27.02.1904, Blaðsíða 1

Norðurland - 27.02.1904, Blaðsíða 1
NORÐURLAND. Ritstjóri: Einar Hjörleifsson. 22. blað. Akureyri, 27. febrúar 1904. III. ár. 5{áðið uið fátæktinni. m. (Síðasti kafli.) Vér bentum á það í miðkafla þessarar ritgjörðar og færðum þess nokkur dæmi, hvar þungamiðjan er lögð um þessar mundir í menta- málsumræðunum í öðrum löndum — að aðalmergurinn er sá, að koma vísindunum í sem nánast samband við Iífið, láta þau styðja hvern al- þýðumann í atvinnurekstri sínum, lífsbaráttunni. Svo virðist, sem þetta meginatriði hafi farið fram hjá mörgum skyn- sömum mönnum hér á landi. Þess vegna hættir þeim mönnum við að tala um málið nokkuð út í hött. Sérstaklega hættir þeim við að am- ast við skólunum. Geri þeir það ekki beint og afdráttarlaust, þá gera þeir það óbeinlínis og vantrausts og ó- þolinmæði kennir í orðalaginu. Þeim verður þá tíðrætt um það, að að- sóknin að skólunum sé mikil, og ekki sé laust við, að mörgum bónda þyki nóg um þann straum — æskan vilji í skóla, einhverja skóla og alla skóla, en gagnið verði oft lítið að skólagöngunum o. s. frv. Þeir kann- ast við það í orði kveðnu, að ment- unin sé minni en hún þyrfti að vera og ætti að vera. En þeir segja í sömu andránni, að þess sé alls ekki brýn þörf að hróþa á þjóðina að menta sig; henni liggi miklu meira á öðru en aukinni mentun. Henni liggi miklu meira á því að geta unnið betur sín daglegu störf, geta aukið framleiðsluna í landinu. Alt þetta stafar af því, að mönn- unum hefir enn ekki orðið ljóst það samband, sem nú er í menningar- löndunum milli mentunarinnar og atvinnuveganna, framleiðslunnar — það samband, er vér vonum, að lesendur vorir hafi fengið ofurlitla hugmynd um - þeir, er ekki hafa haft hana áður - við það að lesa miðkafla þessarar ritgjörðar. Og það er ekki heldur nein furða, þó að menn hafi ekki getað áttað sig á þessu máli tafarlaust. Sú þekk- ing, sem mönnum hefir lengst um verið veitt hér á landi, hefir verið sniðin eftir alt öðrum hugsjónum en þeim, er nú vaka fyrir fulltrúum hins nýja tíma í menningarlöndun- um. Allir vita, hvernig fyrirkomulagið hefir verið við helztu mentastofnun vora, lærða skólann í Reykjavík. Þungamiðja kenslunnar hefir þar verið lögð á tungur, sem löngu- löngu eru dauðar. Skólinn hefir fjarlægt nemendur lífinu, í stað þess að gera mentunina lífinu samfelda. Alþýðumenn hafa alloft rekið sig á það, að eftir allan lærdóminn stóðu mennirnir, sem gengið höfðu skóla- veginn, ver að vígi í baráttu lífsins en þeir sjálfir, eða þá engu betur. Og um alþýðumentun vora er það að segja, að naumast er til þess ætlandi, að menn hafi fengið veru- legt traust á henni. Hún hefir nú fyrst og fremst ver- ið af skornum skamti. Flestum inun kunnugt um það, að umferðakensl- an nær skamt. Auðvitað hefir hún gert gagn; ekkert vit væri í að neita því. Hún hefir verið, er og verður um stund ómissandi millilið- ur milli heimiliskenslunnar, sem áð- ur átti sér stað, og væntanlegra lýð- skóla. En börnin fá lítið að læra. Sviþað má segja um kvennaskólana. Vitaskuld gera þeir gagn, sem vér megum vera þakklátir fyrir, meðan ekki er völ á öðru betra. En mikið vantar á, að þeir, með því fyrir- komulagi, sem á þeim hefir verið, hafi getað veitt alla þá mentun, sem ástæða er til að sækjast eftir. Gagn- fræðaskólarnir hafa að sjálfsögðu verið fullkomnastir og gert mest gagn, enda leynir það sér ekki, að ávöxtur hefir af þeitn orðið. En til- tölulega fáir eru þeir, sem hafa get- að fært sér þá í nyt, í satnanburði við allan hinn fjöldann. En svo mikill skortur, sem verið hefir á alþýðumentun í þröngum skilningi, þá hefir hitt þó verið enn tilfinnanlegra, að hin æðri þekking mannkynsins hefir svo örlítið náð til alþýðu vorrar í baráttu hennar fyrir tilverunni. Vísindin hafa á síð- astliðinni öld gert ógrynnin öll fyrir alþýðu manna í menningarlöndun- um. Þau hafa uinturnað iðnaðinum og landbúnaðinum, og nú eru þau farin að taka fiskiveiðarnar fyrir af miklu kaþþi. Samt er þess stöðugt krafist, að þau geri tneira og meira. Þessi hreyfing hefir farið fram hjá oss þar til nú á síðustu árum — farið svo mjög fram hjá oss, að jafnvel sumir helztu gáfumenn þjóð- ar vorrar virðast ekkert í því botna, þegar verið er að tala um hana. Búnaðarskólar vorir hafa vitaskuld átt að stefna í þessa áttina. Og ekki getur neinn vafi á því leikið, að þeir hafa gert gagn, þó að mikið hafi verið í þá hnjátað. En þeir hafa verið svo úr garði gerðir, að þeir hafa ekki getað gert nándar- nærri það gagn, sem vér höfum þurft á að halda. Þeim hefir ekki tekist að hefja nýtt tímabil í at- vinnusögu þjóðarinnar á neitt svip- aðan hátt og það hefir tekist í öðr- um löndum. Fyrir því hafa þeir ekki öllu fremur en aðrar menta- stofnanir þjóðar vorrar fengið veru- legt traust manna; og fyrir því hafa þeir oft orðið fyrir ómildum og — þegar gætt er að atvikum öllum — fremur ósanngjörnum dómum. En nú er að vakna hér á landi sams konar hreyfing sem sú, er umturnað hefir landbúnaðinum með öðrum þjóðum. Hún kemur fram í starfsemi Landsbúnaðarfélagsins, í stofnun Ræktunarfélagsins, í rann- sókn fóðurjurta, í breytingunni, sem orðið hefir á Hólaskóla og hinni miklu aðsókn að honum, í trjá- plöntunartilraununum, í ræðum og ritum manna um alt land. í hverju er nú þessi hreyfing fólg- in? Hvaða afl er það, sem stendur bak við rjóma- og mjólkurbúin, kyn- bótaviðleitnina, fóðurjurtarannsókn - irnar, tilraunir með tilbúin áburðar- efni, matjurtir og trjáplöntur, plæg- ingar, grasfræsáning og alt þetta nýja, sem nú er að komast á dag- skrá í landbúnaði vorum? Vitan- lega er það eftirsóknin eftir meiri þekking, miklu meiri mentun, en vér höfum áður átt kost á að öðl- ast og færa oss í nyt. Eftirsókn eftir hinu sama, sem mönnum verður nú tíðræddast um í öðrum löndum: sam- vinnu vísindanna og atvinnuveganna — eftirsókn eftir því, að vísindin styðji atvinnuvegi þjóðarinnar og gagnsýri alla starfsemi alþýðumanna. Eftir er þessi hreyfing er vöknuð og mönnum er farið að skiljast, hvað er á seiði, hættir það að ná nokkurri átt, sem ýmsutn hættir enn við hér á landi, að tala um mentun þjóðarinnar sem eitthvað fjærskylt eða jafnvel andstætt daglegum störf- um hennar og framleiðslunni í land- inu. Menn fara þá að krefjast ment- unarinnar eigi hvað sízt í því skyni, að þjóðin geti lifað sómasamlega af sínum daglegu störfum, af því, er hún framleiðir. Og þá fara menn að hætta að ónotast út af því, þó að einhverj- ir af búfræðingum vorum setjist að í höfuðstaðnum og fái embætti, eins og Guðm. Friðjónsson kemst að orði. Sannast að segja virðist oss tími til þess kominn, að menn hætti slíku tali. Eða mundi landinu vera nokkuð meira gagn að því, að þeir Sigurður Sigurðsson og Guðjón Guð- mundsson færu eitthvað í vinnu- mensku eða settust að búhokri upp í sveit, en að þeir stofni rjómabú um Iand alt og kynbótafélög? Þessi hreyfing, þekkingarhreyfing- in, mentunarhreyfingin nýja, er í vorum augum langvænlegasti ný- græðingurinn, sem nú er sjáanlegur í þjóðlífi voru. I raun og veru er oss ókunnugt um, að á nokkurt annað skynsamlegt ráð hafi verið bent við fátækt landsmanna, að und- anskilinni viðleitninni við að koma peningaverzlun hér á landi í við- unanlegt horf — viðleitni, sem vænt- anlega ber mikla ávexti, þegar þeir standa í sambandi við atorku og djúpsetta þekking á atvinnuvegum vorum, en geta ekki að öðrum kosti koinið að nægu haldi. Eða hvað er það annað, sem mönnum hefir hugkvæmst til að bæta hag þjóðarinnar og efla atvinnu- vegi hennar? Dettur nokkurum skyn- sömum manni í hug, að nokkur árangur verði af því að skipa mönn- um að sætta sig við minni lífsþæg- indi? Gerir nokkur meðalgreindur inaður sér í hugarlund, að unt sé að skylda verkafólkið til að vinna fyrir lægra kaup? Eða trúir nokkur því í alvöru, að takast muni með atyrðingum og ósannindum, eða með staðlausu gumi af þjóðinni og landinu, að kyrsetja þá menn hér á landi, sem finst þeir ekki eiga við sæmileg kjör að búa hér og kost eiga þess að flytja bústað sinn? Öllum virðist koma saman um, að ástandið sé ískyggilegt, eins og það er. Framleiðslan yfirleitt lítil og léleg. Vinnukrafturinn afardýr í sam- anburði við afraksturinn. Eyðslan vaxandi. Og önnur heimsálfa með miklumlandskostumogágætrireynslu íslendinga togar á hverju ári burt af landinu fjölda efnilegra og nýtra manna. Hverra ráða vilja menn leita til að hlynna að landi og þjóð, ef menn vilja hafna því ráðj að gera mennina, sem á landinu búa, að færari mönnum, vitrari mönnum, meiri mönnum? Ef menn vilja ekki efla þekkinguna á atvinnuvegunum, sem þeir eiga að lifa á? Ef menn vilja ekki leita við að komast að raun um, á hvern hátt aðrar menn- ingarþjóðir, sem standa oss framar, efla velgengni sína, og vilja ekki fara að dæmi þeirra? Jngib/örg Jorfadóttir. i. Nú er sú brúður fallin frá á forlaga miðju skeiði, er fólkið augun festi á sem framtíðarljós í heiði. Sárt er að taka þá gjöfina Guðs og grafa hér undir leiði. Ó, flýtið ykkur, þið fræðilið, að forða þeim kynja-voða. Guðs forsjón hafið í hendi þið, ef haldið þið veg hans boða. Því Guð hann veit, að oss verður þungt þá vínpressuna að troða. Með djúpri sorg þig syrgjum vér; hvar sjáum vér nú þinn lfka ? Þvf margur hugsar í hjarta sér: við hljótum ei aðra slíka. En samt með ljómandi sigri fer þín sálin og hjartað ríka. Þú kvennaskari, sem kominn ert með kransinn á þetta leiði, nú sérðu forlagasverðið bert og sólina blikna í heiði. En gættu nú að, því grafin er hún, sem greiddi þitt æskuskeiði. Og hér var meir’ en lipurt lag, er laut hún að kenslustörfum; hún hugði nótt og nýtan dag að nemenda sinna þörfum; og rækti sitt verk með rögg og dygð, með röksemd og vilja djörfum. Alt gott og satt, alt hreint og hátt í hvívetna lét hún skarta, og margt eitt stráið, lítið og lágt, hún lagði við móður hjarta.

x

Norðurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurland
https://timarit.is/publication/203

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.