Norðurland - 02.04.1904, Blaðsíða 2
Nl.
xo6
sagt, að Sigtryggur Jónsson hafi farið
suður og gæti hann þá komið með
uppdráttinn til undirboðs svo snemma,
að nógur tími væri til að leiða málið
til lykta, áður en ferð fellur til út-
landa. Bezt væri að annaðhvort ráð-
herrann eða landritari kæmu sjálfir.
Samkvæmt báðum þessum upp-
dráttum er ætlast til að hita skólann
með ofnum. Það ætti stjórnarráðið
aldrei að fallast á, og eg vona, að
það breyti skoðun sinni á því við
nánari íhugun. — Sé gert ráð fyrir
að húsið fengist bygt með ofnum
fyrir 56 þúsundir, þá ætti að mega
koma því upp með miðstöðvarhitun
fyrir 60 — 62 þús. og er þó nóg fé
eftir til muna. Hrökkvi féð ekki, er
sjálfsagt að fá aukafjárveitingu, því
ekki er að sjá í 1—2 þúsund til að
gera skólann sem bezt úr garði. —
Þó miðstöðvarhitun sé dýrari í bili,
þá verður hún miklu ódýrari, þegar
fram í sækir. Það verður frekasta
mannsverk að sjá um alla hina mörgu
ofna auk þeirra óþæginda og óhrein-
inda, sem þeim fylgir jafnan. í öll-
um, hverjum einasta nýjum skóla,
sem eg kom í, þegar eg var seinast
erlendis, bæði í Danmörku, Noregi
og Svíþjóð, var miðstöðvarhitun og
vóru þeir margir, engir smákofar,
sumir fyrir 3 — 4000 börn. í sambandi
við hitunina var svo mjög fullkom-
in vindeyging. I einum nýjum skóla
í Bergen, sagði skólastjórinn mér,
að endurnýja mætti loftið í kenslu-
stofunum 25 sinnum á klukkustund,
enda var loftið eins hreint eins og úti
væri. Líklega hefðu menn ekki al-
ment tekið upp miðstöðvarhitun,
nema hún þætti hafa yfirgnæfandi
kosti, og hvaða líkindi eru til að
hún reynist ekki eins vel hér eins
og ytra.
Eg hefi ekki getað stilt mig um
að fjölyrða nokkuð um þetta áhuga-
mál mitt og allra Norðlinga. Eg hefi
haft málið með höndum á síðustu
þingum, og barist fyrir því, að skól-
inn yrði sem bezt úr garði gjörður.
Nú var málið komið í viðunanlegt
horf, þrátt fyrir allmikla mótspyrnu,
sérstaklega gegn heimavistunum og
nægilegri fjárveitingu, og því er mér
ekki láandi, þótt mér sárni, ef skóla-
byggingin tækist miður en skyldi.
En eg verð eindregið að treysta stjórn-
inni til þess að ráða heppilega fram
úr þessu.
Því miður nær þessi grein ekki
til stjórnarráðsins áður en málið verð-
ur til lykta leitt syðra, en eg skrif-
aði landritaranum að mestu leyti allar
hinar sömu athugasemdir, sem eg
hefi komið fram með í greininni,
og vænti þess fastlega, að hann taki
þær til greina. En sérstaklega hefi
eg ástæðu til að vænta hins bezta
af ráðherranum í þessu: hann var
formaður í nefndinni á síðasta þingi
og mér fyllilega sammála um fyrir-
komulag skólans.
Að endingu skal þess getið, að
þeir menn eru til, sem kenna mér
um það, að skólinn er ekki kominn
upp, því ef eg hefði ekki verið að
streitast við að koma að heimavist-
unum, þá mundi laridshöfðingi, sem
ásamt skólastjóra var mjög á móti
þeim, hafa látið reisa skólann í sum-
ar sem leið. Getur verið. En þá hefð-
um við fengið heimvistalausan skóla,
og til þess að samþykkja slíkt hefði
eg orðið að ganga á móti sannfær-
ingu minni og svíkja kjósendur mína
og allan almenning hér á Norður-
og Austurlandi, sem er mér fyllilega
sammála í þessu máli, eftir því sem
eg frekast veit, ,og er sannarlega hart
að krefjast slíks af mér eða nokkur-
um öðrum manni.
Akureyri 28. marz 1904.
Stefán Stefánsson.
\
„Kong Inge“ strandaður
á Bakkafirði.
Konsúll Jóh. Vigfússon, einn af farþegun-
um á uKong Inge", eins og getið var um í
síðasta blaði voru, hefir sýnt Norðurl. þá
góðvild að senda því eftirfarandi frásögn af
atburðinum og ferðalaginu, þvf sem af var.
p. t. Höfn við Bakkafjörð.
Heiðraði ritstjóri!
Eg sendi yður fáar línur í flýti með
sendimanni, sem eg sendi inn á Akureyri.
Við fórum af Akureyri kl. 12 sunnu-
dagskvöldið þann 20. marz og byrjuðum
við ferðina með að sigla upp á Toppeyrar-
grunn og sátum þar fastir IV2 tíma.
Þaðan fórum við að Hrísey og tókum
fisk. Á Húsavík komum við kl. 3 mánu-
daginn 21. í bezta veðri og biðum við
tæpa kl.stund og fengum indælisveður. Allir
voru glaðir og ánægðir; bæði var skipið
hraðskreitt og gott og skipstjóri og öll
skipshöfn hin þægilegasta.
Veðrið hið bezta alt kveldið. Við sátum
dálitla stund við spil, Jón í Múla, Ole Möller,
Friðbjörn á Orýtubakka og eg, en fórum
að sofa kl. 11.
Þegar kl. var tæplega 3, vakna eg við, að
skipið pípar einu sinni, en mjög stutt, og
kalla eg til Jóns f Múla, sem var í sama
herbergi og eg, hvað þetta mundi vera. Eg
hljóp svo upp, og í því heyri eg, að skipið
nemur stað. Eg sá ekki neitt fyrir hríð og
hljóp niður, en f því brunaði skipið yfir
flúðir og hélt eg fyrst, við hefðum rekið
okkur á ísjaka, en fljótlega vissi eg, að það
var ekki, því skipið hjó hvað eftir annað
niðri. Eg vakti svo þá farþega, sem voru
ekki vaknaðir á 1. farrými. Við vorum 7,
þar af 1 kvenmaður. Á öðru farrými voru
9 farþegar, þar af 1 stúlka og 2 ung börn
á 1. og 2. ári.
Allir farþegar af báðum farrýmum voru
nú komnir upp á þilfar. Eg held að sumir
hafi flýtt sér meira, en þó bjöllunni hefði
verið hringt til máltíða. Var nú beðið dags-
birtunnar; skipið hjó alt af í grjótinu. Við
vorum komnir svo langt upp í grjótið, að
auðvelt var að fara á kaðli þurrum fótum
niður í klungrið; en í myrkrinu sýndist
sem við hefðum lent undir hömrum og
var <a. stýrimaður sendur í land með kaðal
til þess að hægt væri að bjarga fólki, ef á
þyrfti að halda. Hann átti mjög ilt með að
komast upp fyrir hamrabeltið.
Þegar kaðallinn var kominn á Iand, var
mesta hættan búin, enda var ekki mjög
mikill sjógangur. Voru nú menn sendir
austur og vestur til að leita bæja, því að
skipstjóri sagði okkur, að þetta væri ein-
hverstaðar við Bakkafjörð, og þóttist eg
líka þekkja það, því eg hefi verið hér áður
um 1V2 ár; var því kunnugur landslaginu.
Þegar bjart var orðið, þektum við, að
við vorum rétt skamt innan við Hafnarbæ-
inn. Bátar komu nú fram, og farþegar
sendu með þeim alt dót sitt, og var samið
við Halldór kaupmann Runólfsson í Höfn
um, að hann lánaði húsrúni fyrir flutning-
inn, og eins fyrir farþega og skipshöfn,
samtals um 40 manns. jafnframt var afráð-
ið, að brytinn tæki það, sem álitið væri
nauðsynlegt af matvælum, í land handa
þessum hóp til hér um bil 14 daga og
matreiddi í húsinu handa fólkinu. Þá var
nú byrjað að bollaleggja og ráðleggja, og
urðu menn á það sáttir, að bezt væri að
fá skipstjóra tii þess að senda mann til
Seyðisfjarðar til þess að reyna að fá Ceres
til að koma hingað og taka fólkið og
póst, og er sá maður farinn.
Eg vorkendi mest aumingja litlu börn-
unum, sem voru með föður sínum, nýbúin
að missa móðurina. Við réttum þau hönd
úr hendi niður í bátinn eins og smábögg-
ulsendingar, sem hvorki mega blotna né
brotna.
Skipstjóri kennir því um, að kompásinn
sé vitlaus, og muni um 15 — 16 gráður frá
réttvísun. Þess vegna höfum við lent hing-
að á tangann í stað þess að ná Vopnafirði.
Enginn ótti sást á farþegum, og erum
við enn, kl. 11, margir úti á skipinu. Enda
var þegar auðséð, að hér var eigi um neinn
lífsháska að tefla, veður stilt og sjógangur
nær enginn. Skipið liggur grafkyrt, rótast
hvorki né ruggar, skortir heldur ekki kjöl-
festu, þar sem vatnið f afturendanum, þeim
er til hafs veit, er orðið nokkurra feta djúpt.
Skipstjóri hefir sýnt mestu stilling, rósemi
og nærgætni við farþegana og öll störf
hans ganga svo hávaðalaust, eins og ekkert
sé um að vera. Nú er byrjað að bjarga
farmi upp úr afturlestinni. Þar er einkum
rúgur, er fara átti til Kópaskers. — Hann
er þegar í kafi í sjó.
\
Sýslufundur Skagfirðinga
1.—7. marz.
(Agrip.)
Drangey.
Við eyna höfðu veiðst síðastl. vor
52,942 fuglar. Birni Björnssyni á Þor-
bjargarstöðum leigð eyjan naesta ár
fyrir 55 kr. Þorsteinn Jónsson á Sauð-
árkrók endurkosinn umsjónarmaður við
eyna. Oddvita falið að auglýsa, að
hverjum er vill sé heimilt að gera
tilraunir með kartöflurækt í Drangey,
undir umsjón og tilsjón sandgræðslu-
stjóra eyjarinnar, endurgjaldslausl um
6 ár. 50 kr. veittar til framhalds
sandgræðslu í eynni með sáningu, og
Jósef Björnssyni á Hólum falið að
annast starfið.
SUNDKEN SL A.
130 kr. veittar til sundkenslu í
sýslunni og oddvita falið að sækja
um jafnan styrk úr landssjóði
Ábyrgb á nautgripum.
»Þar eð undirtektir hreppanna hafa
yfirleitt verið mjög mótstæðar stofnun
ábyrgðarsjóðs fyrir nautpening, sér
nefndin sér eigi fært að sinna sjóð-
stofnunarmáli því, er hér um ræðir,
að svo stöddu.*
Kláfdráttur.
Samþykt að eftirláta kláfdrættinum
á Héraðsvötnum hjá Flatatungu, án
endurgjalds, vírstreng, er sýslan á.
Færsla á aukarétt.
Samþ. að aukaréttina við Kiðaskarð
megi færa ofan undir Svartá.
Meðmæli með verðlaunaveitingu.
Mælt er með því, að þessir um-
sækjendur fái verðlaun úr Ræktunar-
sjóði: Guðm. Sigurðsson í Ytra-Vall-
holti, Magnús Gislason á Frostastöð-
um, Jón Jónsson á Hafsteinsstöðum,
Jón Jóhannesson í Neðra-Lýtingsstaða-
koti, Konráð Magnússon á Syðravatni,
síra Sigfús Jónsson í Mælifelli og
Gunnl. Jónsson í Víðinesi.
Yfirsetukonur.
Guðbjörgu Sigurðardóttur veitt lausn
frá yfirsetukvennastörfum frá næstk.
fardögum. — Helgu Indriðadóttur og
Pálínu Björnsdóttur veitt 10 kr. launa-
hækkun, hvorri.
Heiðurslauna-mebmæli.
Mælt var með því, að Gísla Sig-
mundssyni á Ljótsstöðum verði veitt
heiðurslaun úr styrktarsjóði Kristjáns
konungs 9.
Hreppstjóraefni.
Þessir bændur voru tilnefndir hrepp-
stjóraefni í Akrahreppi: Magnús Gísla-
son á Frostastöðum, Rögnv. Björns-
son í Réttarholti, Gfsli Björnsson á
Stóruökrum.
Bryr.
Tveir smiðir lýstu bréflega yfir því
áliti, að brúin á Kolbeinsdalsá sé
hættulaus yfirferðar með lítilli viðgerð.
50 kr. veittar til endurbyggingar
brúar á Svartá hjá Reykjum.
Frestað að gera fullnaðarákvæði út
af beiðni um 500 kr. styrk til brúar-
gjörðar á Fossá, en æskt eftir lýsingu
brúarstæðis og áætlun um kostnað.
Brúarsjóðsgjald ákveðið næsta ár
20 aurar á hvert lausafjárhundrað og
hvern verkfæran mann í sýslunni.
SjÚKRAHÚS SJÓÐUR.
í sjóði voru við árslok 1903 kr.
3996,51. Sjóðnum hafði á árinu gefist:
Ágóði af samsöng og fyrirlestrum á
Sauðárkrók kr. 149,50; gjöf frá kven-
félagi Skagafjarðarsýslu 200; dánar-
gjöf Jóhanns Jónssonar í Vaglagerði
958,36; alls kr. 1307,86. Sjúkrahús-
sjóðnum veittar 200 kr. Kaupmaður
V. Claessen endurkosinn gjaldkeri.
Amtsráðsmenn.
Aðalamtsráðsmaður kosinn umboðs-
maður Olafur Briem og varaamtsráðs-
maður prófastur Zóphonías Halldórsson.
Ábyrgðarleyfi.
Hreppsnefnd Lýtingsstaðahrepps leyft
að ábyrgjast 600 kr. jarðabótalán handa
Sveini Gunnarssyni á Mælifellsá.
Hreppsnefnd Seiluhrepps leyft að á-
byrgjast 4000 kr. lán handa Garðytkju-
félagi Seiluhrepps.
Sóttvarnarnefnd.
Þessir menn kosnir í sóttvarnarnefnd
í kauptúnum sýslunnar: Þorsteinn Þor-
steinsson fyrir Haganesvík, Ásgr. Pét-
ursson f. Hofsós og Grafarós, Hartm.
Ásgrímsson f. Kolkuós, Jón Guðmunds-
son f. Sauðárkrók.
Sýsluvegir.
Ákveðið upp á væntanlegt samþykki
amtsráðs, að sýsluvegur í Fljótum verði
lagður frá Dritvík um Haganesvík að
Fljótárbrú. — Samþ. að veita alt að
800 kr. til vegagerðar í Fljótum. —
Hallgr. Þorsteinsson ráðinn verkstjóri
við vegagjörð í Fljótum. — Samþ. að
taka 2000 kr. lán til 10 ára og 1000
kr. bráðabyrgðalán til að framkvæma á
næsta sumri vegagjörð þá á leiðinni
frá Hofsós að Ökrum, sem veittar eru
2000 kr. til í núgildandi fjárlögum.
Túngirðingar.
Stefán Sigurgeirsson í Hvammi, Gísli
Björnsson á Stóruökrum og Stefán Jóns-
son í Vík kosnir til að skoða girðingar-
stæði um tún og unnar girðingar í
sýslunni. Ákveðið, að skoðunargerð á
girðingarstæðum skuli einungis fram
fara hjá þeim, er beiðast þess sérstak-
lega. Oddvita falið að útvega menn í
kauptúnum sýslunnar til að veita mót-
töku og geyma gaddavír til girðinga,
ef þörf kann að krefja.
Mebalmeðlag.
Meðalmeðlag með börnum ákveðið
næstu 5 ár: I Holtshreppi, Haganes-
hreppi, Fellshreppi,Lýtingsstaðahreppi,
Seiluhreppi og Rípurhreppi 60 kr.; í
Hofshreppi, Akrahreppi, Staðarhreppi