Norðurland - 02.04.1904, Page 4
Nl.
108
>Foldarnegg og flyðruengi
er húsfreyju nafn, en heimili kallast:
Vinnulaun og vaxandi sorgin.
Faðirinn hafii heiti sama og s4,
er mei hreysti hremsur af álmi
fljúga lét á Fofni langa.<
Aðalfundur Verksmiðjufélagsins
á Akureyri var haldinn miðvikudag-
inn 30. marz. Þeir 10 hluthafar, sem
stofnuðu félag þetta fyrir 2 árum,
hafa nú þegar lagt fram 30 þúsund
kr., sem varið hefir verið til húsa-
bygginga, vinnuvéla og vatnsleiðslu;
og er svo til ætlast, að verksmiðjan
geti nú árlega kembt um 40 þúsund
pund ullar og spunnið nokkurn hluta
þess, og þannig fullnægt þeirri að-
sókn, sem frekast má vænta að hún
fái. Nokkuð hafði það dregið úr at-
vinnurekstri félagsins árið 1903, að
mikill hluti sumarsins gekk til þess
að koma upp byggingum og nýjum
vélum. Þó hafði verið kembt meira
en 20 þús. pund ullar og nokkuð af
því spunnið líka. Arangurinn af at-
vinnurekstrinum góður, eftir vonum,
þannig að hluthafar fá vexti aí fé
sínu og auka varasjóð sinn dálftið.
Aðalmark þessa félags er að koma
upp klæðaverksmiðju hér, og hefir
stjórn félagsins að undanförnu leitað
eftir fjárframlögum til þess hjá ein-
stökum mönnum, en lftið orðið ágengt.
Félagið heldur áfram tilraunum sín-
um með að koma klæðaverksmiðjunni
UPP °g ®un á sínum tíma leita að-
stoðar íslands banka til þess, hvað
fjárframlag snertir, en löggjafarvalds-
ins að því, er kemur til tollverndar
fyrir íslenzkan ullariðnað.
Mannaláf.
Þ. 30. f. m. andaðist hér í bænum
Jóhannes Halldórsson cand. theol., um
mjög mörg ár barnaskólakennari hér,
rúmlega áttræður. Æfiatriða þessa
merkismanns verður getið hér í blað-
inu.
Guðm. Hannesson
héraðslæknir hefir verið lasinn nokkura
daga, en er nú að miklu leyti batnað. Hann
hefir um mörg ár haft þrálátan hörunds-
kvilla í höndum, sem versnað hefir við þann
sífelda þvott, sem fylgir operationum. Eftir
að hann kom heim úr ferð sinni vestur,
gerði hann skurði dag eftir dag og versnaði
þá kvilli þessi svo, að bólga hljóp upp hand-
legginn og varð hann að hætta störfum
sínum nokkura daga. Hann býst við að geta
byrjað operationir aftur eftir hátíðina.
þilskipin.
Héðan eru lögð út 12 þilskip til þorsk-
veiða. Um miðjan þennan mánuð eiga há-
karlaskipin að leggja á stað, 13 að tölu.
X
VeOurathusanir
á Möðruvöllum í Hörgárdal. Eftir Valtý Stefánsson
1904. Marz. Um míðjan dag (kl. 2). Minstur h. (C) á sólar- hringnum.
bíÞ-v O—• 41- Hiti (C.) S h Skýmagn o JX o
Ld. 19. 73.9 -f- 4.2 N 2 10 -f- 6.2
Sd. 20. 75.o -f- 5.5 0 8 4- 8.2
Md.21. 75.5 -f- 4.o 0 6 4- 9.8
Þd. 22. 76.3 4-12.0 0 0 4- 21.4
Md.23. 74.8 + 5.4 s 1 9 4- 20.9
Fd. 24. 74.8 + 3.o sv 2 8 R O.o
Fd. 25. 75.6 + 5.o 0 8 + 0.5
Ld. 26. 75.2 -j" 8.6 s 1 9 + 0.2
Sd. 27. 75.i + 7.4 0 2 + 1.0
Md.28. 74.4 + 5.o 0 10 4- l.o
Þd. 29. 73.o -j- 4.9 0 10 4- 1.0
X
Spæjarinn.
Skáldsaga eftir Max Pemberton.
[Frarahald.]
Og þegar munkarnir voru komnir þarna
upp, kom annað fólk á eftir þeim, gamlir
karlar draghaltir, grátandi konur og jafn-
vel börn. Marian leit á andlitin og henni
fanst hjartað í brjósti sér ætla að hætta
að slá. Nú var gátan ráðin, og hún vissi
nú, hverjir þar voru á ferðinni.
»Þetta eru holdsveiku mennirnir!« sagði
hún, og hún reyndi að hopa á hæl frá
þeim, eins og hún vænti þess, að guð lyki
upp klettinum fyrir aftan hana og byrgði
þessar hræðilegu sýnir fyrir augum hennar.
XXI
Undirheimurinn á öldunum.
Prósessían fór hægt; því margir komu
á eftir prestunum. Mínúturnar, sem stúlk-
an beið þarna, yfirkomin af angist, fund-
ust henni eins og klukkustundir. Oft féll
bjarminn frá blysunum beint á hana. Hún
vissi ekki, hvaðan þeir höfðu komið, né
hverjir þetta skip áttu. Hún vissi ekkert
um munkana í norðurhöfum né um starf-
semi þeirra með aumingjunum í eyjunum.
Henni fanst fremur eins og þetta væru
andar. Sorgarsöngurinn varð söngur um
þrautir lifsins, og henni fanst sem fram-
liðnir hefðu gengið úr gröfum sínum, til
þess að vitja hennar. Hún þráði að flýja,
út í sjóinn jafnvel, ef annars yrði ekki
auðið, en hún komst ekkert burt frá klett-
unum fyrirþessum draugalegu verum.Kvein-
stafir sjúklinga runnu saman við raunaleg-
an niðinn í öldunum. Hún sá ofstækisfulla
kæti örvæntandi manna; þeir hlógu eins
og fífl eða fleygðu sér froðufellandi í gras-
ið eða hrópuðu til guðs að veita sér þá
miskunn að mega deyja. Langt uppi á
hæðunum grófu munkarnir gröf handa
manninum, sem látist hafði úti á sjónum.
Blíðlegur söngur þaðan ofan að heyrðist
innan um óp og öskur neðra. Hún sá sárt
eftir því, að hún hafði ekki fundið mann-
inn, sem hún hafði séð við lindina. Hún
mintist þess, að hún var kona, alein inn-
an um þetta úrkast manna, sem virtist
hafa orðið fyrir reiði guðs.
Á þessu augnabliki fann hún ekki til
neins óróleika út af hugsuninni um hætt-
una við það að vera þar í eyjunni. Hún
hugsaði ekkert um það framar, að hún
kynni að verða skilin þar ein eftir; hins
óskaði hún, að sjúklingarnir sneru sem
fyrst aftur til skips síns og skildu hana eft-
ir í kyrðinni og náttmyrkrinu. Henni fanst
óratími Iíða áður en munkarnir komu aftur
ofan af hæðinni. Henni sýndust blysin
dansa uppi í brekkunni. Hún sagði hvað
eftir annað við sjálfa sig. »Nú koma þeir;
eg heyrði til þeirra*. En þá heyrðist söng-
urinn aftur og hásir hlátrar og grátstunur
nálægt henni gerðu von hennar að engu.
Hún fór að telja eins og barn og sagði
við sjálfa sig, að skipið færi sjálfsagt, þeg-
ar hún væri búin að telja til þúsund; en
brátt fór henni að leiðast þetta, mjakaði
sér óþolinmóðlega ofurlítið burt frá hæli
sínu og lét allra-snöggvast goluna frá sjón-
um leika um heitt andlitið á sér. í sama
bili tók einn af holdsveiku mönnunum eft-
ir henni og spratt upp með há« orgi til
þess að þrífa um úlnliði hennar og draga
hana ofan að sjónum. Henni fanst, sem
einhver óumræðilegur voði hefði komið
út úr myrkrinu og tekið hana í ógurlegan
og andstyggilegan faðm sinn.
Hún þorði ekki að líta framan í mann-
inn. Talað gat hún ekki, og allir limir henn-
ar voru eins og Iamaðir; en hún sá greini-
lega, að hann var í ræfilslegum, grænum
einkennisbúningi og að hnífur hékk í belti
hans. Hún heyrði, að hann Iét dæluna
ganga, en hún kunni ekki nógu mikið í
rússnesku til þess að skilja hann. Einu
sinni fanst henni, sem maðurinn væri að
merja hana sundur í gráðugum faðminum,
og þá vissi hún, að hann hafði sagt: »Þú
ert eins og sú, sem eg misti.« Svo gat
hún rekið upp óttalegt hljóð, og þá komu
hinir holdsveiku mennirnir til þeirra. Inn-
an skamms var heill hópur kominn utan
um þau, og þeir æptu, að hún væri spæj-
ari. Tuttugu munnar öskruðu í einu:
»Drepið þið ensku drósina; fleygið þið
henni í sjóinn!*
\
að eg undirskrifaður hefi áform-
að að byrja á verzlun nú í sumar
með allt, sem til myndasmíði
heyrir (Verkfæri og efni), svo
framarlega sem eg fæ svo marga
fasta viðskiftamenn að þetta fyrirtæki geti borið sig, þá tilkynnist það
hér með öllum myndasmiðum hér á landi, sem eg þykist viss um
að muni styðja að því, að hérlend verzlun í þessari grein geti þrifist og
gerist viðskiptamenn hennar, þar eg sé mér fært að selja alt, sem til
myndamsmíði heyrir, með sama verði og stærri verzlanir erlendis, því
eg hefi komist í samband við stærstu verzlun í Danmörku í þessari
grein: „Budtz-Muller's Efterfölgere'1, og mun selja alt með sama verði og
þeir, en áðurnefnt verzlunarhús er alþekt fyrir sínar vönduðu vörur og
þeir hafa sjálfir pappírs- og plötuverksmiðju.
Þess utan álít eg, að það sé að mörgu leyti heppilegra fyrir mynda-
smiði að geta fengið hér á landi það, sem þeir þurfa til iðnar sinnar,
einkum yfir sumartímann, þá samgöngur eru mikið tíðari hér á millum
hafna en frá útlöndum.
Allar nánari upplýsingar þessu viðvíkjandi verða gefnar, og vil eg
mælast til að þeir, sem vilja sinna þessu, skrifi mér sem fyrst.
Akureyri 2. apríl 1904.
H. Einarssori,
myndasmiður.
Mustads
smjörlíki
• er bezfa smjör-
t líki, sem hingað
• flyzt, og fæst hjá
w fleztum kaup-
• mönnum.
JVIeð
s/s „Kong Inge" komu miklar birgðir af alls konar
vörum til verzlunar undirskrifaðs.
Kramvara alls konar.
Kaffi, sykur og tóbak. —
Ostur ágætur á 32 aura pundiö.
Pylsur mjög góöar á 65 og 75 aiira pundiö. BSgf-
Mjög mikið úrval af alls konar járnvörum smáum og stórum.
Höfuðföt handa öllum þjóðum og kynkvíslum.
Sjöl fyrirtaksfalleg og von á meiru af því tagi síðar.
Leir- og glervörur betri og ódýrari en áður hefir átt sér stað o. m. o. m. fl.
jlppelsínur á 8 aura stykkið.
Oddeyri 18. marz.
Þorv. Davíðssoi)
FORTUNA
frá vindlaverksmiðju Otto Tulinius
er mest reykti vindillinn hér.
alsvert af dönskum
Hartöflum
fæst í
Höepfners verzlun.
Prjónasaum
kaupir mjög háu verði
Otto Tulinius.
ýtuglysing.
Undirskrifaður selur nú í vor verk-
færi til trésmíða, svo sem rennismiðju,
hefilbekk, hefla, sagir, sporjárn m. fl.
Einnig eldavél, saumavél og marga
aðra innanhúsmuni, svo og kvenn-
og karlmanns reiðtygi, 1 kú snemm-
bæra, unga og góða. Alt þetta selst
með mjög góðu verði gegn pening-
um. Grípið því tækifærið og snúið
ykkur til mín sem fyrst.
Espihóli.
Stefán Helgason.
W jlllir, sem $ku/da~&&
»Norðurlandi«, áskriftargjöld eða fyrir
auglýsingar, eru vinsamlegast beðnir
að borga svo fljótt, sem þeim er unt.
Gyllingogforsilfrut)
fæst hvergi ódýrari en í
Hafnarstræti 21.
JVlagnús Þórðarson.
Cil leigu.,
i herbergi fyrir i einhl. frá
maí hjá Sig. Sigurðss. bókb.
frá 14. maí
n. k. fæst
húsið
Lækjarbakki við Akureyri. Húsinu
fylgir eldavél og 2 rúmstæði. Þar
er hentugt að búa. 10 mínútnagang-
ur út í bæinn.
Akureyri, Hafnarstræti 12, 3lh 1904.
Matthías Hallgrímsson.
..Norðurland" kemur út á hverjum laugardegi.
52 blöð um árið. Verð árg. 3 lcr. á Islandi, 4 kr. í
öðrum Norðurálfulöndum, lVa dollar í Vesturheimi.
Ojalddagi ‘fyrir miðjan júlí að minsta kosti (erlendis
fyrir fram).
Uppsögn sé skrifleg og bundin við árgangamót;
ógild nema komin sé til ritstjóra fyrir 1. júlí.
Auglýsingar teknar í blaðið eftir samningi við rit-
stjóra. Afslattur mikill fyrir þá, er auglýsa mikið.
Prentsmiðja Norðurlands.