Norðurland - 25.02.1905, Síða 3
lagi á þann hátt, að vinna að útrým-
ingu áfengisins úr landinu; að þessu
takmarki verða þau öll að vinna í sam-
einingu. Afenginu verður ekki útrýmt
úr landinu nema meiri hluti þjóðar-
innar óski þess. En hvenær vér höf-
um þann meirihluta á voru máli, verður
ekki séð, nema að bindindisfélögin vinni
í sameiningu, sem eitt félag, að útrým-
ingunni.
Vér vitum nú að fjöldi fólks hér á
Norðurlandi (sem vér tölum hér ein-
göngu um), er bindindismenn og vilja
útrýming áfengisins, en vér vitum ekki
um það, nálægt neinni vissu, hve mikill
partur þjóðarinnar það er. Það er ekki
einusinni að vér vitum hvað mörg bind-
indisfélög Norðurland á.
Bindindisfrömuðurinn Magnús sál.
Jónsson prestur í Laufási kom á fót
» Norðlenzku bindindissameiningunni«
og var það tilætlun hans að hún næði
yfir alt Norðurland og er sennilegt að
svo hefði verið nú, hefði hans ekki
mist við svo fljótt. Við fráfall hans
kom, sem eðlilegt var, nokkur aftur-
kippur í viðgang og starfsemi Sam-
einingarinnar. Hún var of ung hug-
sjón til þess að missa forvígismann
sinn svona í byrjun, hafði lítið fé til
þess að starfa með og bindindisfélög-
unum var svo óljós nauðsyn þessa sam-
bands sín á milli. Þrátt fyrir það hefir
sambandið haldist við milli flestra fé-
laga í Suður-Þingeyjarsýslu og nokk-
urra félaga í Eyjafjarðarsýslu. Hafa
henni frekar aukist kraftar nú á síð-
ustu tveimur árum, bæði í fylgi áhuga-
samra og mentaðra bindindismanna og
svo hefir hún fengið fjárstyrk á síð-
asta alþingi úr landssjóði. Vitanlega er
starfsfé Sameiningarinnar of lítið til
þess að geta unnið samkvæmt tilgangi
sínum, en vér getum heldur vænst
þess að styrkur landssjóðs fari vax-
andi, ef vér sýnum það með vaxandi
áhuga og starfsemi að Sameiningin
eflist og vinni tilætlað gagn.
Vér sem nú veitum Sameiningunni
forstöðu, skorum hérmeð á öll bind-
indisfélög á Norðurlandi að ganga inn
í sambandið og taka höndum saman
við oss til eflingar þessu mikilsverða
velferðarmáli þjóðarinnar.
Inntökubeiðni skulu félögin senda
til Bjarna bónda Arasonar á Grýtu-
bakka í Höfðahverfi.
Ennfremur beiðumst vér þess að
öll bindindisfélög sendi oss fyrir að-
alfund Sameiningarinnar, sem hald-
inn verður í miðjum júní, skýrslur um
félög sín. Skal þar tekið fram heiti
hvers félags og stofnunarár, tala fé-
lagsmanna karla og kvenna, sjóðeign
og fundartala á árinu. Æskilegast væri
að þau sendu sem flest fulltrúa á fund-
inn, með heimild til þess að segj fé-
lögin inn í Sameininguna og kunn-
gerðu stjórnarnefndinni það í tíma
hver vildu senda fulltrúa á fundinn,
til þess hún gæti hagað sér eftir því
með fundarstað. Skal það tekið fram
að Sameiningin mun að einhverju leyti
taka þátt í kostnaði við sendingu þess-
ara fulltrúa, eftir því sem efnin leyfa.
Vér vonum að ekkert félag sé svo ó-
þroskað í anda, að það ekki sjái nyt-
semi sambandsins, að það láti sér nægja
að starfsemi þess sé hálfverk og að það
ckki viti og sjái að bindindið er þjóðmál.
Fyrir hönd stjórnarnefndar Norð-
lenzku bindinbissameiningarinnar.
Porsteinn Gíslason.
\
87
Nl.
Fyrirmyndarbóndi dáinn.
Eiríkur Einarsson, Jónssonar vef-
ara í Bót f Hróarstungu í Fljótsdals-
héraði, 57 ára gamall, andaðist 25.
janúar eftir fárra daga legu í lungna-
bólgu.
Um hinn látna merkisbónda er Nl.
skrifað á þessa Ieið að austan: »Hann
byrjaði búskap með litlum efnum vorið
1875 á Setbergi f Fellum og bjó þar
1 ár. Næstu 2 ár bjó hann á Egils-
seli í sama hreppi. Þessi 3 ár var hann
hreppstjóri í Fellnahreppi og fór það vel
úr hendi. Vorið 1878 flutti hann að
Bót 1' Hróarstungu og bjó þar síðan
til dauðadags. Jörðina keypti hann 1883
og lagði sfðan mikla stund á að bæta
hana. Þannig bygði hann upp flest hús
á jörðinni: baðstofu portbygða 15 álna
langa, þiljaða í hölf og gólf, -— þver-
hús á hlaði 12x7 ál. með kvisti og
áföstum skúr með járnþaki IOX7 ál.
Fjárhús reisti hann að nýju yfir 300
fjár og bætti og stækkaði eldri fjár-
hús, 10 nýjar heyhlöður, auk umbóta
á 6 hlöðum eldri, og taka þær um
800 hesta alls. — Túnið ræktaði hann
út og stækkaði úr 8 í 16 dagsláttur,
sléttaði því nær 4000 Q faðma í því
og var langt kominn að girða það. Fjár-
bæli hafði hann búið til tvö með 150
faðma löngum vel hlöðnum grjótgarði,
og bætti jörðina á ýmsan annan hátt,
með matjurtagörðum o. fl.
Eiríkur sálugi var sönn fyrirmynd
í dugnaði, reglusemi, sparsemi, gest-
risni og hjálpsemi og oft bjargvættur
í vorharðindum. Vorið 1899, þegar jarð-
leysi og fóðurskortur var um allt Ut-
hérað, tók hann af öðrum 500 fjár á
hús og hey í hálfa þriðju viku og gaf
auk þess daglega hey fjölda fjár, er
rekið var þar um til uppsveitanna og
fargaði heyi þess utan.
Þótt Eiríkur væri lítt til menta
settur í æsku, kostaði hann kapps
um að menta börn sín sem bezt og
varði til þess miklu fé, enda eru þau
hin mannvænlegustu.
I hreppsnefnd Tunguhrepps sat Ei-
ríkur í 20 ár (1879—1899) og hafði
jafnan á hendi gjaldkerastörf hrepps-
ins. í stjórnarnefnd Eiðaskólans var
hann í 17 ár og formaður hennar
sfðustu árin. Hreppstjóri Tunguhrepps
varð hann árið 1900 og hafði þá sýslan
á hendi sfðan. Öll störf sín leysti hann
af hendi með hinni mestu samvizku-
semi, reglusemi og hagsýni. Hann var
maður mjög löghlýðinn og óvæginn við
þá, er óhlýðnast vildu; átti hann góð-
an þátt í því, að fyrirskipunum um út-
rýmingu fjárkláðans var svo rækilega
hlýtt í Fljótsdalshéraði. — Búhygni Ei-
ríks sál. er viðbrugðið og yfirleitt var
var hann sæmdarmaður hinn mesti og
prýði bændastéttarinnar.«
\
Nýtf þingmannsefni.
Sjálfsagt er það mörgum hér í bæ
fagnaðarefni að Guðmundur Hannes-
son héraðslæknir hefir nú gert kost
á sér til þingfarar. Strax þegar frétt-
ist um lát Páls heitins Briems leituðu
ýmsir kjósendur bæjarins til hans og
báðu haiin að gefa kost á sér, og var
hann þá ekki fáanlegur til þess. Það
er fyrst nú, eftir að öllum er orðið
kunnugt að þingmannsefni það, er
áður var í boði, hefir gerst stuðn-
ingsmaður Gjallarhorns og með því
breytt frá þeirri stefnu, er hann hafði
skuldbundið sig til að fylgja, að Guð-
mundur læknir hefir unnist til þess að
bjóða sig fram, fyrir þrábeiðni margra
kjósenda.
Húsbruni á Vopnafirði.
Pöntunarfélagshúsið þar brann til
kaldra kola 21. janúar. Veður var
hvast af suðri og varð verzlunarhúsi
Jörgen Hansens með naumindum bjarg-
að. Er talið víst, ef í því hefði kvikn-
að, að mikill hluti kaupstaðarins hefði
brunnið. — í húsinu rak Grímur kaup-
maður Laxdal verzlun sína og brunnu
vörur hans allar. Vörurnar voru vá-
trygðar, að sögn, fyrir 17,000 kr.
Maður horfinn.
Með manni, sem kom í tyrradag
utan úr Höfðahverfi fréttist þetta: Al-
bert Hallgrímsson á Svæði við Greni-
vík, sem 'nér var á ferð í bænum í
læknismripium síðastliðinn mánudag,
er taIiA,ndruknaður. Hefir síðast spurst
til hans f Nesi í Höfðahverfi á heim
leið nálægt kl. 2 á þriðjudaginn. Er
talið víst að hann hafi druknað í
Lónunum fyrir utan Nes. A miðviku-
daginn var hans leitað af sjö mönn-
um og fanst þá ekkert, en í fyrradag
var aftur leitað af tíu mönnum, en
ekki eru fréttir komnar af þeirri leit.
Albert heitinn var frábær iðjumað-
ur og að því leyti hefði yngra fólkið
mátt taka hann sér til fyrirmyndar.
Mannaláf.
Eiríkur Halldórsson bóndi á Veiga-
stöðum, er fylgdi Jóni í Múla til Reykja-
víkur kom aftur 21. þ. m. Eftir honum
er haft að látin séu:
Halldór Bjarnason sýslumaður á Pat-
reksfirði, mun hafa verið nálægt fertugu,
góður drengur og vinsæll, og sýslu-
mannsfrú Sigríður Árnadóttir (Thor-
steinson) kona Páls Einarssonar sýslu-
manns í Hafnarfirði.
Landskjálftar
hafa gengið fyrir sunnan um síð-
ustu mánaðamót, mest brögð að þeim
í Hafnarfirði, en talsverðir í Reykjavík.
Hús höfðu skolfið en ekki orðið skemdir
til muna. 14 kippir voru taldir á ein-
um sólarhring, og hafði einn þeirra
verið talsvert mestur, á sunnud. 29.
f. m. um 11. stund. Landskjálftans
hafði orðið vart alla leið norður í
Hrútafjörð.
2 skipsfjórar
Erlendur Guðmundsson og Ingimund-
ur Jónsson komu hingað frá Reykjavík
með Eiríki Halldórssyni á Veigastöðum.
Verða í sumar með skip af Akureyri og
Siglufirði.
Taugaveiki
er mikil í Reykjavík, eftir því sem
ritað er hingað í bréfi. Spítalinn full-
ur af þeim sjúklingum og farið að
flytja fólk á franska spítalann. Ekki
vanþörf á vatnsleiðslunni.
Helgi Jóhannsson
í Múla er nú sagður albata. Full-
yrt var það reyndar hér fyrir skþmmu
að hann væri steindauður.
Um Sauöanes
sækja, að því er fréttist úr Þing-
eyjarsýslu, prófastarnir Arni Jónsson
á Skútustöðum og Jónas Jónasson á
Hrafnagili og ennfremur síra Eyjólfur
K. Eyjólfsson á Staðarbakka í Húna-
vatnssýslu. Enga ábbýrgð vill þó NI.
taka á fregn þessari.
Fundir í pingeyjarsýslu.
Kaupfélagsfundur Þingeyinga var
haldinn að Grenjaðarstað um síðastlið-
in mánaðamót. Sambandsfundur Kaup-
félaganna er ákveðinn að Yztafelli í dag,
en sýslufundur Þingeyinga hefst þar
27. þ. m.
Fjárkláöi í þingeyjarsýslu.
Eins og áður hefir verið drepið á
kom fjárkláði upp á Syðra- og Ytra-
Fjalli f Aðaldal. Böðunum er þar nú
lokið fyrir nokkuru. En rétt nýskeð
hefir orðið kláða vart á Tjörn, bæ þar
í grendinni.
Mafreiðsiukenslu
ungírú Jónínu Sigurðardóttur mælist
hið bezta fyrir í Þingeyjarsýslu. Kent
hefir hún eftir nýárið á Grenjaðarstað,
Einarsstöðum í Reykjadal og er nú á
Stóruvöllum í Bárðardal; næst verður
hún í Mývatnssveit og umsókn hefir
hún fengið um kenslu frá fjölda lcvenna
á Húsavík, búist við að hún verði þar
tvö kenslutímabil.
»Gjallarhorn«
er nú nýkomið í húsmensku í prent-
smiðju »Stefnis«; flutti um síðustu helgi
úr prentsmiðju Odds Björnssonar. Telja
sumir líklegt að þessi samdráttur þeirra
hjúanna muni vita á meiri og nánari við-
kynningu, er ef til vill leiði til löglegs
hjúskapar.
2 frollarar nýsfrandaðir
syðra, annar við Mýrdalssand, en
hinn vestanvert við Þjórsárós. Mann-
björg varð af báðum skipunum og
strandmenn komnir til Rvíkur er Ei-
ríkur Halldórsson fór þaðan. Skipið,
sem strandaði nálægt Þjórsárós var
hlaðið af fiski og búið til heimferðar,
er því vildi til þetta slys.
\
Staka
um kvaðratrætur af 2, 3 og 5.
1,4142,
1,732, það heyr,
2,236, hér sjá
setta í rætur 2, 5, 3.
Les:
Einn komma fjórir einn fjórir tveir,
einn komma sjö þrfr tveir, það heyr,
tveir komma tveir þrír sex, hér sjá
setta í rætur tvo fimm þrjá.
\
Leiörétting:.
I svari mínu til Magnúsar Kristjánsson-
ar, í tveim síðustu blöðum Stefnis, hefir
á tveim stöðum misprentast um tonnatal
skipanna hér við Eyjafjörð. Stendur þar
að tonnatalan sé sem næst 10,000, en á
að vera 1000. I síðara kafla greinarinnar
stendur eins og það er prentað í Stefni
»þá yrði skipastóll sá, er nú er, og er um
100,000 kr. virði, að borga 5 kr.« o. s. frv.,
en þar átti að standa: yrði skipastóll sá,
sem nú er til, sem er sem næst 1000 tonn,
að borga o. s. frv. Þetta bið eg lesendur
greinarinnar að athuga.
Akureyri 24. febr. 1905.
Bjarni Einarsson.
\
Vcðurathusanir
á Möðruvöllum í Hörgárdal. Eftir Sigtr. Þorsteinsson.
1904. Jan. Um tniðjan dag (kl. 2). Minstur h. (C) á sólar- hringnum.
o—. t E 2& Hiti (C.) 3 KO KO & ?■" Skýmagn Úrkoma |
Fd. 13. 73.6 8.o sv 3 10 - 18.i
Ld. 14. 73.6 2.3 sv 1 10 - 6.o
Sd. 15. 74.9 -4- 5.o 0 8 -h 3.o
Md 16. 73.6 4.5 0 8 - 7.9
Þd. 17. 74.3 2.5 0 10 1.0
Md 18. 73.9 -f- 0.6 SV 1 10 s - 3.5
Fd. 19. 74.i -7- 0.8 S 2 10 - 5 8
Fd. 20. 74.5 5.5 0 8 - 2.0
Ld. 21. 75.4 -4- 2.o 0 8 - 5.2
Sd. 22. 74.2 -f- 2.9 VSV 2 10 s - 5.5
Md.23. 73.9 -4- 4.4 VSV 1 3 S - 5.o
Þd.24. 74.9 -4- 6,o 0 8 - 6.o
Md.25. 76.9 -4-11.7 0 2 - 13.i
Fd. 26. 74.i 4.6 SV 2 8 R - 13.i
Fd. 27. 74.i -4- 0.4 VSV 2 10 S - 2.2
Ld. 28. 75.8 -f- 3.7 0 10 - 3.7
Sd. 29. 75.2 —f- 6.5 0 8 - 9.0
Md.30. 76.o -4- 9.3 0 10 - 9.8
Þd.31. 75.3 -4-12.4 0 2 c- 16.o
\