Norðurland - 10.06.1905, Side 4
Nl.
156
— — Hana, sem var nýbúin að
lesa bókina
Glugginn var lokaður. Þokan lá
enn á tindinum. Vornóttin andaði
þungt við rúðurnar, og öldurnar stundu
við ströndina eins og andvakan, sem
sat við rúm hans og seiddi að hon-
um svipi lífsins.
Oeysir.
%
Jón Jónsson,
bóndi á Munkaþverá, andaðist 27. apríl,
eins og áður er frá sagt í blaði þessu.
H.ann var fæddur á Hrfsum í Eyjafirði 15.
dag ágústmán. 1827, en fluttist með for-
eldrum sínum að Munkaþverá 1832, 5 ára
að aldri, og átti þar heima alla ævi síðan.
Faðir hans bjó lengi á Munkaþverá; hann
var af eyfirzkum ættum, tilkvæmdarmaður
mikill í héraði og við mörg mál riðinn,
mentaður vel eftir því sem bændur gerð-
ust í þá daga, og merkismaður í hvívetna;
kona hans var Þorgerður, systir Stefáns
alþingismanns á Steinstöðum og þeirra
bræðra, kvenna fríðust og gáfuð vel. Jón
sonur þeirra ólst upp heima, og var eigi
annað til menta settur, en það sem faðir
hans kendi honum, nema hann lærði söðla-
smíði á æskuárum. Þegar hann var tvítug-
ur, kvæntist hann, og gekk að eiga Kristínu
Sigurbjörgu Jakobsdóttur frá Litla-Eyrar-
landi, og reisti þá bú á parti af Munka-
þverá; þessa konu sína misti hann eftir
tveggja ára sambúð. Sonur þeirra er Jakob
málari, sem nú um fjöldamörg ár hefir átt
heima í Dakota í Norður-Ameríku. Haustið
1851 kvæntist hann aftur, og gekk þá að
eiga Þóreyju Guðlaugsdóttur frá Svínár-
nesi. Lifir hún mann sinn, voru þau 53V2
ár í hjónabandi; bjuggu þau jafnan ágætu
búi á Munkaþverá, og voru ætíð samhent
í því, að gera heimilið þannig, að það
var öllum yndi og ánægja þar að koma
og þar að vera.
Eftir að faðir hans flutti vestur að Ár-
bakka í Húnavatnssýslu, og tók þar við
umboði Þingeyraklausturs 1857, fór Jón
að taka þátt í sveitarmálum; var hann þá
lengi hreppstjóri Öngulstaðahrepps, og
síðar, er sveitastjórn breyttist, sýslunefnd-
armaður og m. fl. Sáttamaður var hann í
Hrafnagilssáttaumdæmi frá því það var
stofnað 1862 og til dauðadags; var hann
sérlega laginn sáttamaður, og lipur að
jafna úr misklíðum. Ýmis mál hafði hann
og önnur á hendi sem ekki þykir taka
að vera að telja hér upp.
Jón sál. var í mörgu einkennilegur mað-
ur. Hann var allra manna fjöllesnastur sem
eg hefi þekt ólærðra manna; enn það var
ekki nóg með það að hann lcesi bækur,
heldur las hann hverja bók, er honum
fanst þess verð, svo oft og svo vel, að
hann gat krufið efnið til mergjar. Hann
las vel dönsku og sænsku, en ekki aðrar
tungur. Gáfur hafði hann ágætar, en eigi
fljótskarpar. En frá æsku hafði hann beitt
við þær þeim aga, að eg hefi engan þekt,
sem betur kunni að hugsa, eða nákvæm-
ara hefir kunnað að einangra og rekja
hugmyndir og skoðanir en hann. Hann
var ágætlega að sér í sögu, ekki sízt
sögu íslands, ættfræði, landafræði, lög-
fræði og guðfræði, auk margs annars. Hann
átti gott bókasafn, svo að slíkt er sjald-
séð í sveitum, og er sumt af því fágætt,
bæði bækur og handrit. Síðasta bókin
sem hann las var rit Jóns prestaskóla-
kennara Helgasonar um sögulegan upp-
runa Nýja Testamentisins, með nákvæm-
um samanbarði við biflíuna og önnur heim-
ildarrit, sem hann gat náð tii. Þekking
hans var þannig bæði fjölbreytt og djúp
um marga hluti, og skoðanir hans fastar
og rökstuddar; en oft voru þær aðrar en
skoðanir almennings; hann hafði Iíka oft
gaman af verja sérstakar skoðanir, er hann
átti orðastað við aðra; en á sínum skoðun-
um v^r hann dulur, og fárra manna með-
færi var að fá þær upp allar fyrri en eftir
margra ára viðurkynningu.
Jón var allra manna skemtilegastur og
kurteisastur heim að sækja, enda var
heimili hans heimsótt af fjölda manna,
bæði útlendra og innlendra. En framgjarn
var hann aldrei, og gaf sig lítið fram í
þjóðmálastapp það, er hér hefir um lang-
an aldur legið í landi, og hafði hann þó
manna bezt vit á þeim málum.
Hann var alla æfi hraustur til heilsa;
á yngri árum, og lengi frameftir tamdi
hann sér bæði glímur og sund, og var
ágætur í hvorutveggju. Seint í fyrra sum-
ar fekk hann heilablóðfall; andaðist hann
af afleiðingum þess eftir ianga og þunga
legu.
Börn hans og Þóreyjar eru 4 á lífi:
Kristína Sigurbjörg, ekkja Júlíusar heitins
Hallgrímssonar á Múnkaþverá, Jón, húsa-
smiður í Grand Forks í Dacota, Stefán
og Þorgerður, bæði ógift heima. Auk þess
ólu þau hjón upp mörg munaðarlaus börn
og mentuðu þau eins og sín eigin.
J J-
í
Rifstjóri Norðurlands
kom vestan úr Húnavatnssýslu í gær.
Hjörleifur Einarsson
prófastur á Undirfelli er nú á góðum
batavegi eftir áfelli það, er hann fekk
í vetur, getur þó ekki en veitt prest-
þjónustu.
Sfefán Stefánsson
alþingismaður á Möðruvöllum kom
heim til sín í fyrradag vestan úr Skaga-
fjarðarsýslu.
Mannaláf.
Dáinn er Jðn Pálsson á Helgastöðum
í Eyjafirði, 85 ára gamall, faðir Páls
kennara á Akureyri. Jón sál. var prýði-
lega greindur, og góður búmaður, vand-
aður maður og mikilsvirtur af öllum,
sem hann þektu.
Leiöréftina.
Undir ritdómnum um >Samband við
framliðna menn« í síðasta blaði Nl. átti
að standa nafn ritdómarans: Guöm. Hann-
esson.
##### .......
Hvergi
befri vörur
en í
Höepfners verzlun.
Búnaðarrit, Búnaðarfélags ís-
lands 3. og 4. hefti fyrir ár-
ið 1904, sem vantað hefir,
er nýkomið. Sömuleiðis fyrsta heftið
af þessu ári, það hefir inni að halda
12 lagafrumvörp frá landbúnaðarnefnd-
inni. — Búnaðarritið ættu bændur að
kaupa. Verðið er I kr. 50 aurar ár-
gangurinn.
Frb. Steinsson.
SKANDINAVISK
EXPORTKAFFE SURROOAT
Kjöbenhavn.
fF. Jfjorth & Co.
The
North British Ropework Coy
Kirkcaldy
Contractors to H. M. Government
búa til rússneskar og ítalskar
fiskilínur, færi,
Manila Cocos og tjörukaðal,
alt úr bezta efni og sérlega vandað.
Biðjið því ætíð um Kirkcaldy
fiskilínur og færi hjá kaupmanni
þeim, sem þér verzlið við, því þá
fáið þér það sem bezt er.
„PERFECT“ sKilvindaq
er tilbúin hjá BURMEISTER & VAIN, sem
er mest og frægust verksmiðja á Norður-
löndum og hefir daglega 2500 manns í
vinnu.
„PERFECT" hefir á tiltölulega stuttum
tíma fengið yfir 200 fyrsta flokks verðlaun.
„PERFECT" er af skólastjórunuin Torfa
í Ólafsdal og Jónasi á Eiðum, mjólkurfræð-
ingi Orönfelt og búfræðiskennara Ouðmundi
Jónssyni á Hvanneyri talin bezt af öllum skil-
vindum og sama vitnisburð fær „Perfect"
bæði í Danmörku og hvervetna erlendis.
„PERFFCT" er bezta skilvinda nútímans.
„PERFECT" er skilvinda framtíðarinnar.
Utsölumenn: kaupmennirnir Gunnar Qunn-
arsson í Reykjavík, Lefolii á Eyrarbakka, Hall-
dór í Vík, allar Orams verzlanir, allar verzlanir Á. Ásgeirssonar, Magnús Stef-
ánsson á Blönduósi, Kristján Oíslason á Sauðárkróki, Sigvaldi Þorsteins-
son á Akureyri, Magnús Sigurðsson á Grund, Stefán Steinholt á Seyðis-
firði, Fr. Hallgrímsson á Eskifirði.
Efnkasali fyrir ísland og Færeyjar
JAKOB GUNNLÖQSSON,
Köbenhavn, K.
Olgeir Júlíusson
bakari
bakar og selur allskonar brauð
fyrir eigin reikning í Oddeyrar-
bakaríi (brauðgerðarhúsi konsúls
Havsteens). Hann fratnleiðirvand-
aða vöru, og óskar eftir að haida
sínum góðu viðskiftavinum áfram,
samt að fá fleiri nýja skiftavini. —
Kaupir egg og smjör.
WHISKY
Wm. Ford & Son
stofnsett 1815.
Einkaumboðsmenn fyrir ísland og
Færeyjar
F. Hjjorth & Co.,
Kjöbenhavn, K.
Crawfords
Ijúffenga
BISCUITS (smákökur)
tilbúið af CRAWFORD & SONS
Edinburgh og London
stofnað 1813.
Einkasali fyrir ísland og Færeyjar
F. Hjorth & Co.,
Kjöbenhavn, K.
jl/fa-cCava/shi/uincluo/íá
er bezta og ódýrasta olían.
Jakob Gíslason.
Margarine
er altid den bedste
Hið bætta seiði. Hér með vott-
ast, að sá Elixír, sem nú er farið að
búa til, er töluvert sterkari, og þó að
eg væri vel ánægður með hina fyrri
vöru yðar, vildi eg samt heldur borga
hina nýju tvöföldu verði, með því að
lækningakraftur hennar hefir langtum
fljótarf áhrif og eg var eftir fáa daga
eins og nýr maður.
Svenstrup, Skáni.
V. Eggertsson.
Meltingarörðugleikar. þó að
eg hefi ávalt verið sérstaklega ánægð-
ur með yðar alkunna Elixír, verð eg
kunngera yður, að eg tek hið bætta
seyði fram yfir, með því að það hefir
mikið fljótari áhrif við meltingarörðug-
leika og virðist langtum nytsamara.
Eg hefi reynt margs konar bittera og
lyf við magaveiki, en þekki ekkert
meðal, sem hefir jafn-mikil áhrif og
þægileg og kann því þeim, sem hefir
fundið það upp, mínar beztu þakkir.
Fodby skóla. Virðingarfylst
kennari J. J e n se n.
EKTA KÍNA-LÍFS-ELIXÍR. Á eink-
unarmiðanum á að vera vörumerkið:
Kínverji með glas í hendi og með
nafn verksmiðjueigandans: Waldimar
Petersen, Friðrekshavn, Kjöbenhavn,
og sömuleiðis innsiglið ■ grænu
lakki á flöskustútnum. Hafið ávalt eina
flösku við hendina, bæði innan og ut-
an heimilis. Fæst hvarvetna fyrir 2 kr.
flaskan.
*»NorÖtjríand “ ketrmr út á hverjum laugardegi
52 blöð um árið. Verð árg. 3 kr. á íslandi, 4 kr
öðrum Norðurálfulöndum, H/2 dollar í Vesturheimi
Gjalddagi fyrir miðjan júlí að minsta kosti (erlendis
fyrir fram).
Uppsögn sé skrifleg og bundin við árgangamót;
ógild iiema komin sé til ritstjóra fyrir 1. júlí.
Auglýsingar teknar í blaðið eftir samningi við rit-
stjóra. Afsláttur mikill fyrir þá, er auglýsa mikið.
Prentsmiðja Odds Björnssonar.