Norðurland - 20.04.1907, Side 4
Nl.
Mannalát.
Þann 14. des. s. 1. andaðist að Þórs-
höfn á Langanesi veitingakona Arn-
þrúður Jónsdóttir, fædd 10. janúar
1854, ekkja Jóhanns sál. Jónssonar
borgara á Þórshöfn. »Arnþúður heitin
var að allra manna dómi mjög vönd-
uð kona og góð, gestrisin og hjálpfús
við alla, sem til hennar leituðu.«
SparisióOur
er nýstofnaður í Hornafirði fyrir
forgöngu þeirra Þórhalls Daníelssonar
verzlunarstjóra, Þorleifs hreppstjóra í
Hólum og síra Benedikts Eyjólfssonar.
Hákarlsusrsrar sem verzlunarvara.
í febrúarheftinu af Norsk Fiskeri-
tidende er eftirtektaverð grein um sölu
hákarlsugga í Kína. Þar þykja þeir
sælgæti og eru í háu verði. Uggarnir
eru skornir af fiskinu eftir föstum regl-
um, vandlega þvegnir og hengdir svo
til þurks. — Norðmenn hafa gerl ráð-
stafanir til að útvega sér markað fyrir
þessa vöru í Kfna og er það á góðum
vegi. Verðið er hátt. — Vér vildum
benda hákarlaútgerðarmönnum vorum á
þessa grein. Tímaritið er á lestrar-
salnum.
Þunz kvefsótt
hefir gengið víða hér í bænum og
nágrenninu undanfarið. Ekki ósvipuð
Influenzu, en fer þó hvergi nærri eins
hratt yfir eða er eins næm. Þó nokkr-
ir hafa fengið lungnabólgu upp úr
kvefinu. Menn ættu að gera sitt ýtrasta
til að fara varlega með sig, einkum
forðast ofkælingu, meðan þeir hafa
þenna kvilla. Er það helzta vörnin
gegn því að fá lungnabólguna. Oðara
en hitaveiki gerir vart við sig, þó lítil
se', œttu menn að leggjast í rúmið.
SkipaferOir.
Egill fór héðan fyrra sunnudag. Meðal
farþega héðan voru Páll Stefánsson verzl-
unarfulltrúi, Einar Gunnarsson kaupmaður,
frúÞorbjörgFriðgeirssonogungfrúrnar Snjó-
laug Sigurðardóttir og Sesselja Guðmunds-
dóttir, Benedikt Björnsson kennari í Garði
í Kelduhverfi og Húsvíkingarnir flestir er
hingað komu með skipinu.
Kyalen kom í gær. Með honum voru:
Grímur Laxdal og skipstjórarnir Ingólfur
og Vésteinn Kristjánssynir frá Framnesi.
Mjölnir kom í morgun. Farþegi: Síra
Þorleifur Jónsson á Skinnastað.
Skálholt kom og í morgun með fjölda
farþega. Á meðal þeirra voru Helgi Guð-
mundsson héraðslæknir, Hafliði Guðmunds-
son hreppstjóri og Vilh. Jónsson kaupm.
af Siglufirði, Jón Jónsson héraðslæknir
Blönduósi, Benedikt Benediktsson Kálfs-
hamarsvík, Sigurjón Jónsson bóndi á Ós-
landi, Flóvent Jóhannsson á Sjávarborg
með konu sinni.
Fjármark
Sigurjóns Jónssonar á Óslandi
í Hofshreppi í Skagafjarðarsýslu er:
Sneitt a. h., biti n.
Kvenféiagíð „FRAMTÍÐIN“
leikur
og sýnir
Ta b1e au
í Goodtemplarahúsinu á laugardags-
kvöld og sunnudagskvöld,
til ágóða fyrir fátœka,
veika stúlku.
Nánar á götuauglýsingum.
136
Kutter
(76 smálesíir)
ágætlega hirtur og útbúinn, fæst leigð-
ur eða keyptur, ef um semur.
Sigfús Sveinbjörnsson,
fasteignasali.
Pilturf
sem vill læra skósmíði getur fengið
atvinnu á skósmíðaverkstæði undir-
ritaðs nú þegar.
Húsavík 11. apr. 1907.
Bened. S. Snœdal.
Kornmafur,
Kaffi,
Sykur
og ýmsar
nauðsynjavörur
nýkomnar i
Höepfners verzlun.
(T&D <aÉ»
Laukur
<afási hvergi betri og ó- dýrnri en í Höepfners verzlíin.
CtÖð
Allir sem þurfa að kaupa
skófau
á Húsavík ættu að koma á skóverk-
stæði undirritaðs. Þar er búið til
vandað skótau og selt með góðum
kjörum.
Húsavík n. apr. 1907.
Bened. S. Snœdal.
Fjarmark
Sigurðar H. Sigurðssonar á Siglu-
firði er: Hálftaf aftan hægra, stúf-
rifað og vaglskora aftan vinstra.
Mark þetta finst i markatöflu Skagafjarðar-
sýslu, og muni menn það. Hreppstjórar
eru beðnir um að færa markið inn í töfl-
ur sínar. —
H. S.
Verzlun
Sr). Jónssonar
á Oddeyri
er mjög vel birg af allflestum vörutegundum — einstöku tegundir liggja
ennþá á Seyðisfirði sökum hindrunar af ís. — Sérstaklega skal þó henda
á að miklar og fjölbreyttar birgðir eru af ails konar
Korn vörum,
Njáenduvörum,
Skófatnaði
afar fjölbreyttum, allskonar Járnvörum, hvergi hér úr eins miklu að velja.
Karlmanna-fataefni,
Herða- og hálsklútar, Ferðatöskur
og ótal margt fleira. — Menn eru vinsamlegast beðnir að athuga vörur
og vörugœðin í verzlun þessari, áður en þeir kaupa nauðsynjar sinar hjá
öðrum. — Hvort verðið er hátt eða lágt, sannfœrast menn um með þvi
að bera það saman við verð annara verzlana. Reynið það, svo sannleik-
urinn komi sem bezt i ijós.
£CST Nánari auglýsing í næsfa blaði.
Akureyri þ. 19. apríl 1901.
jóhannes Stefánsson.
Fermingarkjólaefni
af mörgum tegundum og margt annað fleira er nú nýkomið í
VEFNAÐARVÖRUBÚÐINA.
Hallgr. Davíðsson.
öpinbert uppboð
verður haldið laugardaginn 27. p. m., við sjúkrahúsið á Akur-
eyri, og þar selt, samkvæmt ósk sjúkrahússráðsmanns Björns Ó-
lafssonar, allskonar innanhússmunir, svo sem: borð, stólar, fjaðra-
soffi, ruggustóll, borðstofuskápur, servant, rúmstæði, sængurfatn-
aður, svo og ýmiskonar búr- og eldhúsáhöld o. m. fl.
Uppboðið byrjar kl. 11 f. h. nefndan dag og verða söluskil-
málar birtir á undan uppboðinu.
Skrifstofu Eyjafjarðarsýslu, 11. apríl 1907.
Guðl. Guðmundsson.
Xven-si/furúr
hefir fundist á götum bæjarins. Eig-
andi snúi sér til ritstjóra þessa blaðs.
Undirritaður útvegar
ofna og
eldavélar
með verksmiðjuverði frá ýmsum beztu
járnsteypuverksmiðjum í Danmörku.
Akureyri, 20. apríl 1907.
Hallgr. Davíðsson.
m- Ferðamenq t*»
sem bíða eftir skipum eða í öðrum
erindum á Húsavík geta fengið fæði
og aðsetur í húsinu »SnæIand«. Sér-
stök herbergi leigð ef óskað er.
Húsavík 11. apr. 1907.
Bened. S. Snædal.
..NorOurland" kemur út á hverjum laugar
degi og oftar þegar sérstök ástæða þykir til, að minsta
kosti 52 arkir um árið. Verð árg. 3 kr. á Islandi, 4
kr. 1 öðrum Norðurálfulöndum, U/2 dollar f Vestur-
heimi. Qjalddagi fyrir miðjan júní að minsta kosti
(erlendis fyrir fram). - Uppsögn sé skrifleg og bund-
in við árgangamót; ógild nema komin sé ti! rit-
stjóra fyrir 1. júní og kaupandi sé skuldlaus við blað-
ið. - Auglýsingar teknar í blaðið eftir samningi við
ritstjóra. Afsláttur mikill fyrir þá er auglýsa mikið.
Prentamiðja Oddi Björnssonar.