Norðurland - 21.12.1907, Síða 2
Nl.
76
af því að síldveiði innlendra manna
sé spilt af útlendingum en einmitt eg.
Sem sænskur konsúll hefi eg enga á-
stæðu til að halda með ólöglegri veiði
útlendinga, því sænska stjórnin ætlast
ekki til að konsúlar sínir stuðli til þess
að lög landsins séu brotin.
Otto Tutinius.
Áskorun.
Allir munu játa það, að heimilis-
iðnaður sé i afturför hér á landi, en
hver orsökin eða orsakirnar eru, munu
menn ef til vill ekki eins ásáttir um.
Margir munu kenna það vinnufölks-
eklunni, og hefir það við mikið að
styðjast, þó víðar megi finna orsak-
irnar, og er ekki œtlan vor með þess-
um línnm að tína þœr allar til. Eitt
af því, sem vér teljum skilyrði fyrir
þvi, að iðnaður geti tekið framförum,
er hentugur markaður fyrir það, sem
unnið er.
Síðastliðið vor kom nokkrum kon-
um á Akureyrl saman um, að stofna
félag i því skyni, að koma á fót út-
sölu á íslenzkum iðnaði hér á Akur-
eyri. Félag þetta hefir ákveðið að
taka til starfa næstkomandi sumar,
og skorar því hér með á konur og
karla, vlðsvegar um land, einkum Norð-
ur- og Austurland, að nota sér tœki-
færið og búa sig undir að senda muni
til félagsins með vorinu Munir þessir
mega vera af ýmsu tœgi svo sem út-
saumur, vefnaðarvara, prjónasaumur,
smiðisgripir úr málmí, tré, leðri og
öðru efni og fleira þessháttar. Félagið
áskilur sér 10 % i sölulaun. Ætlast
er til að útsala þessi verði bæði mið-
uð við þarfir landsmanna og útlend-
inga, sem hingað koma.
Vér, sem ritum nöfn vor hér undir,
og vorum kosnar i stjórn áðurnefnds
félags, erum fúsar á að gefa upplýs-
ingar viðvíkjandi hinni fyrirhuguðu út-
sölu og veitum munum móttöku. Nán-
ari augiýsingar þessu viðvikjandi koma
siðar i blöðunum.
Akureyri 14. desember 1907.
Hólmfríður Árnadóttir.
Svafa Jónsdóttir.
Þóra Matthíasdóttir.
Þórdís Stefánsdóttir.
Þuríður Hjörleifsson.
Verzlunarfréttir.
Þær eru alt annað en góðar að
því er íslenzkar vörur snertir og ekki
bætir heldur verðið á kornvörunni hin-
ar horfurnar upp.
Kornvörur eru í óvanalegu háu verði,
hærri en þær hafa áður verið til margra
ára og íslenzkar afurðir hafa flestar
fallið í útlöndum. Til þess eru vitan-
lega margar orsakir, sérstakar fyrir
hverja vörutegund en ein aðalorsök
hefir þó haft áhrif á verðfallið á þeim
öllum og það eru hin miklu peninga-
vandræði erlendis.
Stór ísl. saltfiskur seldur í Kaup-
mannahöfn í f. m. fyrir 68 — 75 kr.
skippundið. í svipinn voru horfurnar
fremur góðar með Spánarfisk, og það
þakkað því að Frökkum gangi svo
illa að verka fisk sinn í Bordeaux
vegna ótíðar. Hafa þá fleiri mátt af
því kenna en útvegseigendur hér norð-
an og austan síðastliðið sumar.
Ull hefir fallið um 8—10 a. pundið.
Haustull seld fyrir 57 a. hvít og 45
a. mislit. Aðrir segja að fyrir hvíta
haustull fáist ekki nema 52 a.
í saltaðar gærur er að sögn ekki
boðið nema kr. 5,70 — 5,90 fyrir 16
pund og í hertar gœrur í líku hlut-
afli.
Saltket. Fyrir það hafa nýlega ver-
ið borgaðar 55 — 56 kr. fyrir tunnuna
en verðið fer að sögn lækkandi. Lin-
^/Iargt oýtt og nauðsynlegt -&■
•I til jólanna -*•
kom með Ingólfi og Agli til verzlunar
■Sn. Jónssonar-
Oíío Monsíed
danska smjörlíki
er bezt.
satlað ket hefir verið í hærra verði en
hitt, saltað með gamla laginu, en sem
stendur er að sögn lítill sem enginn
munur á því gerður.
Hraðskeyti til Nls.
Reykjavík »/ia '07 kl. 3 e. h
Þjóðbankinn i Höfn hefir hækkað út-
lánsvexti sína uppl 8—8'li °/o. Vextirnir í
Reykjavík hœkkaðir i 8'h »/*. *
íslandi er œttuð deild á gripasýningu,
sem á að halda l Árhúsum 1909.
AtlantshafsflotiBandamannafarinn vest-
ur til Kyrrahafs.
Púðurverksmiðja i Barnsley á Englandi
sprakk i loft app og biðu 70 manns bana.
Nálœgt Pittsburg í Pennsylvaniu í Banda-
rlkjunum varð sprenging i námu einní;
vlð það luktust inni í ndmunni 400 manna
og eru þeir liklega dauðir.
Jarðarför Óskars Sviakonungs fór fram
i gœr. Konungshjónin l Danmörku voru
viðstödd við hana.
Hjálti Jónsson skipstjóri flutti blautfisk-
* Hér tckur fslandsbanki nú 8'/i •/• af víxlum og sjálf-
skuldardbyrgöarlánum
102
hana dapur og niðurlútur og var ennþá gagntekinn af
ótta yírr því, sem hann hafði gert — þá tók móðir
hans hann í fang sér og hrópaði: »En guð minn góð-
ur, — hafa þeir skammað þig fyrir þetta! Attirðu að
sitja rólegur og horfa á þá kvelja bezta vininn þinn?
Þetta var drengilega gert, AbrahamU
En hann leit 6 hana hræddur og hikandi, og hún sá
það nú í fyrsta skipti sér til mikilar sorgar, að hann
bar nú ekki lengur fult traust til hennar.
Á sama augnabliki sá hún h'ka hve óvænlegt það var,
að leggjast þannig afdráttarlaust á móti manni sínum,
að kenna syninum þveröfugt við það. sem faðir hans
hafði gert, — að hrósa honum fyrir það, sem hún vissi
að valdið hafði föðurnum hrygðar og ótta.
Frú Wenche hafði oft búist við þvf að hún hlyti
að koma, sú stund, þegar drengnum yrði Ijóst hvílíkt
djúp var staðfest milli foreldra hans í mestu alvöru-
málum.
En hún hafði vandlega fhugað ýms meginatriði í
trúarefnum og þar var hún undirbúin. Hún ætlaði sér
að segja Abraham afdráttarlaust og hreinskilnislega,
þegar hann yrði svo gamall að hann þyrfti að vakna
til meðvitundar um slík málefni, að hún tryði hvergi
nærri öllu því, sem aðrir trúa.
Hún hafði líka byrjað á þessu og talað nokkurum
sinnum við hann í þá átt. Orðugt var það; en hún
vonaði þó altaf, að sér mundi takast að gera honum
það ljóst með hegðun sinni og ráðvendni, að hann
mætti öruggur treysta henni f hvívetna, þó að hún hefði
ekki alveg sömu trúarskoðanir og aðrir.
Henni fanst það ekki rétt að benda honum á alla þá
hræsni, sem hún sá og lifði við. Prófessorinn lét Abra-
103
ham fara með sér til kirkju. nefndi stundum guðs nafn
o. s. frv.; en þó vissi hún glögt, að hjá honum var
ekki snefill af sönnum kristindómi.
Þetta gat hún auðvitað ekki skýrt fyrir syni sínum,
og þar voru miklir örðugleikar í vegi að því er trúar-
brögðin snerti. Og trúarbrögðin sýndust ckki heldur
hafa önnur áhrif á Abraham, en að maður ætti að
kunna þau vel eins og hverja aðra skólagrein, og að
það væri viðeigandi og ætti svo að vera að ganga í
kirkju með sérstöku yflrbragði og tala f vissum rómi.
Stundum spurði hann t. d.:
»Hversvegna ferðu aldrei til kirkju, mamma?« Með
þessu feklc hún að heyra, að hann hafði orðið fyrir á-
hrifum frá öðrum; hún fann, að aðrir — hún vissi ekki
hverir — vöktu eftirtekt hans á þessu hjá henni.
Og þó hafði altaf lifað hjá henni vonin um það, að
þetta mundi takast. Henni fanst jafnvel stundum, að
það hlyti að vera gott fyrir Abraham, þegar trúarefinn
legðist á hann, sem einhverntíma hlaut að verða, að
móðir hans sjálfs væri meðal vantrúarmanna; — það
hlyti — áleit hún — að kr.ýja hann til að velja í fullri
alvöru og forða honum frá því að hverfa sem raggeit
f hræsnaragrúann.
En þessi viðburður í skólanum, — svo lítilfjörlegur
f samanburði við mikilvægari málefni, en þó svo þýð-
ingarmikill af þvf að hann sýndi svo skýrt djúpið milli
þeirra tveggja, er saman áttu þetta eina barn — hvern-
ið átti hún að greiða úr þeim vanda, sem af honum
leiddi.
Sjálf var hún hjartanlega sannfærð um það, að þetta
hefði verið drengilega gert af Abraham og líkaði við hann
hið bezta fyrir það. En auðvitað gat hún ekki hrósað
farm til Englands — isvarinn — og œtlar
að sœkja annan.
Vesta kom t gœr og var ráðherrann
með henni.
Taugaveikl
hefir gengið á ýmsum bæjum í Húna-
vatnssyslu austanverðri. Látist hafði úr
henni einn maður í Vatnsdal (Emil
Benediktsson í Ási), einn maður f
Laxárdal og enn einn á Skagaströnd-
inni.
Haraldur Þórarinsson
hefir verið kosinn prestur að Hof-
teigi á Jökuldal.
Júlíus Halldórsson
læknir á Blönduós slasaðist nýlega
á ferð utan af Skagaströnd. Hafði
viðbeinsbrotnað og rifbrotnað.
Leikfélas: Akureyrör
lék á sunnudaginn var og leikur
aftur í kvöld tvo leiki: „Apann" eftir
Heiberg og „Milli bardaganna“ eftir
Björnstjerne Björnson. Leikirnir takast
ekki aðeins eftir vonum, heldur Ifka
fram yfir það, fullkomin ánægja að
horfa á suma leikendurna og góð við-
leitni hjá hinum.
Mönnum er óhætt að sækja Ieikina,
því fólk skemtir sér ágætlega við þá.
Chr. Fr. Nielsen & Co.
sem sagt var um í vetur að væru orðnir
gjaldþrota, eða þi nálægt því, biðja Norð-
urland að geta þess að frásögnin um það
sé ekki annað en tilhæfulaus uppspuni.
MessaO
verður hér í kirkjunni á morgun kl. 12
á hádegi.
Messur um hátíöarnar:
Aðfangadagskvöld kl. 6 e. h. Akureyri.
Jóladag - 9V2 f. h. —
s. d. - 12 á h. Lögmhlíð.
Gamlaárskvöld - 6 e. h. Akureyri.
Nýjársdag - 12 á h. —
í verzlun
Páls Jónssonar
fást Hrísgrjðn, miklu betri tegund en
hér hefir áður þekst. Enginn ætti að
leggja sér til munns önnur grjón á
jólunum og öðrum tyllidögum
Haframjöl, fyrirtaks gott.
Sagógrjön, ágæt.
Flórmjöl, bezta sort.
Rúsínur, Möndlur, Fíkjur, Valhnetur,
Laukur, Epli ameríkönsk. Alls konar
krydd.
Skjaldborg
heldur fund á föstudaginn 27. þ. m. kl.
B3/4 e. h. í sal Boga Daníelssoríar. — Skor-
að á alla félagsmenn að mæta.