Norðurland


Norðurland - 13.06.1908, Side 1

Norðurland - 13.06.1908, Side 1
NORÐURLAND. Ritstjóri: Sigurður Hjörleifsson, læknir. 45. blað. Akureyri, 13. júní 1908. J VII. ár. 8. ár^y^orðurlands kostar á íslandi kr. 1.25 í öðrum Norðurálfulöndum kr. 1.75 í Vesturheimi 60 Cent. Nýir kaupendur fá auk pess ókeypis pað sem ókomið er út af 7. árg. GJALDDAGI á 7. árgangi Norðurlands er fyrir miðjan júni. Sambandslögiri. Undirtektirnar. — Sjálfsíæðiskröf- unum fullnægt- — ísland fullveðja konungsríki í ríkjasambandi við Danmörk. L. Ekkert hefir komið mér eins ó- vart eins og undirtektir þær, sem tillögur sambandslaganefndarinnar hafa fengið hér heima. Eg hafði búist við því, að flokksbræður mín- ir tækju þeim fagnandi, en stjórnar- menn létu sér yfirleitt fremur fátt um finnast, en að því sem enn er kunnugt hefir hið gagnstæða að miklu leyti orðið uppi á teningnum. Margir hinna vitrustu og ágætustu manna í flokki stjórnarandstæðinga hafa að vísu tekið tillögum nefndarinn- ar tveim höndum, og þeim mönn- um fjölgar áreiðanlega dag frá degi, sem hallast á þá sveifina, en mót- spyrnan hefir þó aðallega komið frá þeirri hlið, stjórnarandstæðingar hafa fundið nefndartillögunum flest og mest til foráttu. Pegar betur er að gáð er þetta ekki svo undarlegt. Þessi flokkur hafði undanfarið haldið sjálfstæðis- merkinu hæst á lofti. Óánægjan með hið núverandi stjórnarfyrirkomulag (ríkisráðssetan, undirskriftin o. fl.) varð þess valdandi, að menn fóru að hugsa um að fá breytt hinum veila og ótrausta grundvelli, sem stjórnarskipun vor hvílir á. I þing- mannaförinni 1906 var þessu hreyft við Dani og tóku þeir því líklega. Svo kom Mblaðamannaávarpið“ um haustið 1906, sem öll stjórnarand- stæðinga blöðin auk Þjóðólfs undir- skrifuðu. Upþ frá því urðu sjálf- stæðiskröfurnar hærri og ákveðnari eftir því sem á leið veturinn og hæst komust þær á Þingvallafund- inum síðastliðið sumar. Svo var sambandsnefndin skipuð. Þegar hún lagði af stað munu þeir hafa verið teljandi, sem gerðu sér vonir um mikinn árangur af þeirri för og kölluðu þetta hreina for- sending. Sumir voru þeir og sem ekki höfðu neitt á móti því að svo yrði. Vildu helzt að engir samning- ar kæmust á, bráður skilnaður var þeirra innilegasta ósk. Þegar svo tillögur nefndarinnar birtast, verða auðvitað þessir menn æfir, finna þeim alt til foráttu og gera alt til þess að telja mönnum trú um að frumvarp nefndarinnnar sje með öllu óhafandi, nefndarmenn hefðu svlkið ættjörðu sína. Slæmur hefði Oissur verið, en hann næði þó ekki með tánum þar sem þeir hefðu hælana, nafnar hans 6 hinir nýju. — Þeir eru þó tiltölulega fáir er láta sér slík orð um munn fara. Aðrir voru þeir af stjórnarand- stæðingum, og þeir voru margfalt fleiri, þar á meðal flestir þjóðræðis- menn og hinir gætnari landvarnar- menn, sem fegnir vildu að hag- kvæmir samningar kæmust á, samn- ingar sem fullnægðu að öllu leyti sjálfstæðis kröfum þeirra. Þegar þeir litu á tillögur nefndarinnar varð þeim auðvitað fyrst fyrir að athuga grandgæfilega hvort ekkert væri þar, sem kæmi í bága við kröfur þeirra og þegar þeir svo þóttust finna eða var bent á eitthvert atriði, sem var- hugavert virtist, fyltust þeir gremju við okkur flokksbræður sína í nefnd- inni, og varð það á að einblína svo mjög á gallana, er þeir þóttust sjá, að kostirnir hurfu þeim sýn, þeim varð dimt fyrir augum. Fyrir þetta eiga menn ekkert ámæli skilið, þvert á móti. Sjálfstæði ættjarðarinnar var orðið þessum mönnunum svo hjart- fólgið áhugamál, að undir eins og þeir fá grun um, eða þeim virðist í fljótu bragði, að frumvarp nefndar- innar fullnægi eigi hinum ýtrustu sjálfstæðis kröfum, verða þeir frá- hverfir því í bili. En menn átta sig brátt og við rólega yfirvegun og nýjar skýringar opnast augu þeirra smásaman og svo fer vonandi að lokum, að þeir og yfirleitt mikill meiri hluti þessarar þjóðar sér og skiiur að frumvarp nefndarinnar fel- ur í sér svo stórvægilegar réttar- bætur fyrir land vort og þjóð, að það væri blábert óvit að hafna því, eða stofna því í voða. Menn munu sannfærast um að fyrirkomulag það, sem frumvarpið gerir ráð fyrir, er eigi að eins auðsóttasta, heldur líka beinasta leiðin að því sjálfstæðis hámarki, er staðið hefir svo skýrt fyrir oss síðustu missirin og sem vér aldrei megum missa sjónar á. II. Eg skal nú reyna að gera mönn- um ljóst að öllum meginsjálfstæðis- kröfum vorum er fullnægt, ef frum- varpsuppkast þetta verður samþykt. Til þess að gera mönnum þetta sem ljósast tek eg hér upp fundar- ályktun' þjóðræðisflokksins á síðasta þingi um samningsgrundvöll I sambandsmáli íslands og Danmerkur. Valdir menn úr þjóð- ræðis- og landvarnarflokkunum höfðu samið tillögur til þessarar ályktunar. w \yrir hvöt ýmsra góðra M'* manna i sýslunni hefi eg afráðið að gefa kost á mér til þingmensku fyrir Eyjafjarðarsýslu við kosningar þær er fram eiga að fara 10. sept. þ. á. Ytri-Tjörnum 11. júni 1908. Kristján H. Benjamínssoi). a. „ísland skal vera frjálst sam- „bandsland Danmerkur i kon- „ungssambandi við hana með „fullveldi yfir öllum sinum mál- „um. b. „Fela má þó Dönum að fara „með ýms mál fyrir íslands „hönd, meðan um semur, þau „er eftir ástœðum landsins þyk- „ir gerlegt t. d. konungserfðir, „hervarnir, utanrikismál, mynt. c. „Öll önnur mál skulu íslend- „ingar vera einráðir um með „konungi, og verða þau að sjálf- „sögðu ekki borin upp i rikis- „ráði Dana. d. „Sérstaklega skal það tekið Jram, að auk þeirra mála, „sem nú eru talin islenzk sét- „mál, skal áskilinn íslenzkur „þegnréttur; semja má þó svo „um að Danir fái að njóta „þegnréttar á íslqndi gegn þvi að íslendingar hafi sama rétt „í Danmörku og Danir. e. „Fáni skal og vera sérstakur „fyrir ísland, en til samkomu- „lags má vinna að ákveðið sé 148 það krafði fyrir drengina á almúgaskólanum að læra undir yfirheyrslustundirnar og hvílíkur ógnakvíði gagn- tók þá við yfirheyrsluna, svo jafnvel ófyrirleitnustu drengirnir sátu fölir í framan og grafkyrrir og glentu upp skjáina. Það sem var nú fyrir þá merkasti viðburðurinn í lífi þeirra, — nálaraugað, sem þeir þurftu að brjótast í gegnum með því að neyta allrar þeirrar andlegu orku, er þeir áttu til, — það var fyrir hann að eins leikur einn, sem engin áreynsla fylgdi. í hæzta lagi gat það að eins orðið leiðinlegt fyrir hann. En nú var þvf einmitt alls ekki að skifta, úr því svona dátt gerðist með honum og prófasti; og þegar það vildi til að hann var yfirheyrður, þá létu þeir jafn- an Ponta eiga sig og þetta varð fremur samræða um guðfræðisleg efni milli eldra og yngra manns, en hinir sátu og góndu út í loftið, eða lásu í kverinu undir borðinu. — Sparre prófastur var að hlýða þeim yfir annan kaflann, um trúargreinarnar. »Óli Marteinn Petersen, geturðu sagt mér, hvað margir guðir eru til ?« »Tvenskonar, nefnilega góðir og vondir,< svaraði Óli Marteinn Petersen viðstöðulaust. »Nei, drengurinn minn, — það er ekki rétt. Þú svaraðir annari spurningu. Hvaða spurning var það, sem hann sváraði, — getur nokkur sagt mér það?« »Um englana,* hrópaði ofurlítill rauðhærður snáði, sem sat fram við ofninn. »Rétt, Jens HansCn! Englarnir eru tvenskonar, nefni- lega góðir og vondir; en guð er bara einn, — er það ekki svo, Óli Marteinn?« 145 ingardrengir latínuskólans og Abraham efstur, fast við hliðina á prestinum. Sparre prófastur hafði æfinlega mörg fermingarbörn, því hann var á orði hjá fólki fyrir það, hve sjaldan hann þurfti að »vísa frá«, — miklu sjaldnar en aðrir prestar í bænum. Dæmalausa kjána, sem oft höfðu reynst til einskis gagns, fermdi prófasturinn eins og ekkert væri um að vera. Og sannarlega var þó ekki hægt að segja það að hann væri vægur við þá og gengi ekki ríkt eftir kristindóms kunnáttu þeirra. Menn þurftu ekki annað en heyra ,til þessara kjána við yfirheyrsluna á kirkjugólfi, — þeir svöruðu alveg reiprennandi, og það jafnvel margsinnis allra þyngstu spurningum úr Ponta. Fyrir þetta vakti Sparre prófastur hina mestu aðdá- un hjá fólki, — meir en hann átti nú reyndar skilið f hreinskilningi sagt, því í þessu var fólginn dálftill leynd- ardómur. Svo var mál með vexti, að Sparre prófastur vissi alveg eins vel og hver annar prestur eða kennari, að meðal almúgabarnanna var enginn einasti piltur eða stúlka, sem vissi nokkurn skapaðan hlut í skýringum Ponta. Það var því alveg undir atvikum komið hvort nokkuð festist í minni gáfnatregra barna af því, sem lært var eins og þula utanbókar. Þeir, sem næmastir voru, gátu svarað sérhverri spurn- ingu f allri bókinni, ef hann gætti þess aðeins nákvæm- lega að spyrja öldungis orðrétt eftir því, er stóð í bók- inni. En hjá hinum, þó vesalir væru sumir, var þó einhver ræktaður blettur í andlegum efnum, enda þótt megnið af þessu væri reglulegur ormagarður eintómra spurningarmerkja.

x

Norðurland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurland
https://timarit.is/publication/203

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.