Norðurland


Norðurland - 13.06.1908, Blaðsíða 4

Norðurland - 13.06.1908, Blaðsíða 4
Nl. 178 Skóvinnustofan ,Surfshellir‘ * er vel birg af ágætu efni og afgreiðir allar pantanir fljótt og vel, með vægu verði. XI1 1J ♦ ♦ ♦ i i.ifl 1 i.l f Mannalát. Jóhann Jóhannsson bóndi á Möðru- völlum í Eyjafirði andaðist hér á sjúkra- húsinu síðastliðinn miðvikudag. Hann var hinn mesti dugnaðar og atorku- maður og er sveitarfélagi hans mjög mikill skaði að fráfalli hans. AOstoDarlœknar eru þessir skipaðir: Cand. med. Valdemar Steffensen á Akureyri og cand. med. Eiríkur Kérulf á ísafirði. Laaraskólinn. Lárus H. Bjarnason er skipaður for- stöðumaður hans frá 1. júlí n. k. TrúIofuO eru Guðmundur Björnsson landlækn- ir og ungfreyja Margrét Stephensen, elzta dóttir Magnúsar Stephensen, fyrr- um landshöiðingja. Þlnzmálafundir í Eyjafjarðarsýslu. Hannes Hafstein ráðherra hefir hald- ið þingmálafundi í þessari viku á þrem stöðum í sýslunni, á Grund, Möðruvöll- um og f Dalvík. A fundum þessum hefir það verið samþykt að ganga að frumvarpi milli- landanefndarinnar óbreyttu. Ekki hundsterkt. (Aðsent úr Eyjafirði.) Sagt er að Stefán Stefánsson hafi Iýst yfir því á Grundarfundinum, að hann væri eindregið með sambandslagafrum- varpinu, en þó hefði hann kosið að það væri öðru vísi orðað, á nokkur- um stöðum, en vafalaust mundi þing- ið geta lagað það. A þá ráðherra að hafa sagt á þá leið, að eigi mætti róta nokkuru orði, þvi bæði væri það að Danskinum kynni að mislíka og eins hitt, ef rótað væri einu orði, svo mundi alí gliðna í sundur. Kváðu þá nokkurir lausamenn, sem stóðu utan vébanda fundarins, að eigi mundi það >hundsíerkt helvíti« að tarna, úr því að Stefán mætti eigi við það koma, enda annað hljóð í stroknum nú, en í fyrra á Akureyrarfundinum fræga, þar sem ráðherra taldi fyrirhugaða nefnd valdalausa og þinginu mögulegt að sníða alt til á eptir. En herrann getur líka snúið snæld- unni sinni! X Eftirmæli. Þann 27. aprílmánaðar þ. á. andaðist á Reykjavíkurspítala ungfreyja María Magn- úsdóttir frá Frostastöðum í Skagafirði. — Dauðamein hennar var tæring. — María sál. hafði góða heilsu, þar til skömmu áður en hún andaðist. Hún var á æsku- skeiði, aðeins 17 ára gömul, alin upp hjá foreldrum sínum Magnúsi hreppstjóra Gísla- syni og Kristínu Guðmundsdóttur; hafði dvalist í Reykjavík nú síðastliðinn vetur, ásamt einkabróður sínum Gísla. María sál. var greind og stilt stúlka og hin siðprúðasta í allri framgöngu. Hún var yndi og eftirlæti foreldra sinna, og elskuð af öllum er þektu hana. Margur mun því sakna hennar, bæði vin- ir og vandamenn, og finna sárt til þess að hér sem oftar hefir tæringin helzt til fljótt kipt burtu einni af okkar fegurstu æskurósum. Skagfirðingur. Ljáblöð, Brýni, Ljáir ódýrast i verzlun Sig. Sigurðssonar. Hús m lTog SOlU hjá Heill mais ágætt hænsnafóður nýkomið í EDINBORG. E Niðursoðið kjöf B °g OSTAR ' EDINBNRG. D „Corn- flour“ I O í pökkum ágæt sjúklingafæða í Edinborg RgI N Skipskex tekex og Caffebrauð af mörg' um teg. í Edinborg. Súpujurtir, östar«fylsur í verzlun Sig. Sigurðssonar. Oíío M^nsted8 danska smjörliki er bezt. S. Jóhannesst/ni Akureyri. Qott saltað sauðakjöt, rullupylsur tólg °s saltfiskur fæst í verzlun Sn. Jónssonar. Ennfremur fæst oftast nýr fiskuf. Ljáaklöppur áreiðanlega Iangbeztar í verzlun Sig. Sigurðssonar. Trjáviður af ýmsum tegundum og girðingarstólpar nýkomið í Höepfners verzlun. Mitt innilegasta hjartans þakk- læti votta eg öllum þeim, sem með nærveru sinni, við jarðar- för minnar ástkæru eiginkonu Nönnu Arngrímsdóttur, heiðruðu minn- ingu hennar, prýddu kistuna, og sýndu mér á einhvern hátt hluttekningu sína, í hinni þungu sorg minni. Dalvík 6/6 ’o8. Tryggvi Kristinsson. Stríðið gegn sóttum og sjúkdómi eyði- leggur oft velgengni margra heim- kynna, af pví réttu meðulin eru ekki við höfð. Meðal sem yfirunnið hefir þúsundir sjúkdóma og þjáninga er hinn verðlaunaði og af læknum ráð- Iagði Chlna Livs Eliksir frá Waldemar Petersen, Frederikshavn, Köbenhavn. 8 ára veiklun. .^Aílir vifa^_ að hvergi fást eins góð kaup og í VEFN/tÐARVÖRUVFRZLUN Sudmanns Cfterfl. á Jtkureyri því þar er ætíð stærst úrval lcegst verð. Kenslustörfin sem fyrsti og annar kennari við barnaskóla Búðahrepps í Fáskrúðsfirði eru laus. Kenslutími frá 1. október til 30 apríl. Laun fyrsta kennara eru 600 krónur, annars kennara 400 krónur og sjái þeir sér sjálfir fyrir fæði, hús- næði ljósi og hita. Skrifleg umsókn ásamt prófvottorði og meðmælum sendist skólanefnd Búða- hrepps fyrir 15. ágúst n. k. Prentsmiðja Odds Björnssouar. í hérumbil 8 dr þjáðist eg af mjög mikilli veiklun i öllum llkamanum, sam- fara magaþrautum, uppköstum, lélegri meltingu og svefnleysi. Við að neyta China Livs Eliksírs frá Waldemar Pet- ersen, fekk eg fljótt bata, svo að nú er eg orðinn albata og er það sann- fœring mín að með bitter þessum geti eg ful/komlega haldið heilsu minni við N- P- Christenseij. Vogn pr. Tolne. 10 ára jómfrúgula. Eg hefi i 10 ár þjáðst af jómfrú- gulu og samkvœmt ráði læknis míns reyndi eg China Livs Eliksir Walde- mars Petersen og hefir hann nú lækn- að mig að fullu. Sofie Guldmand, Randers. Merkið á China Livs Eliksir Walde- mars Petersen er Kínverji með glas í hendinni á einkunnarmiðanum og enn fremur nafn verksmiðjueigand- ans Waldemars Petersen Frederiks- havn, Köbenhavn og stafirnir á flöskustútnum.1

x

Norðurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurland
https://timarit.is/publication/203

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.