Norðurland - 27.06.1908, Page 3
i85
Nl.
6tlen Xey.
Hinn mesti kvenskörungur á Norður-
löndum í framfaramálum þykir Ellen
Key. Hún er nú vel hálf sextug og
fyrir löngu orðin kunn um allan hinn
mentaða heim. Hún er dóttir læknis
og stjórnmálamanns mikils f Svíþjóð,
er var af skozkri ætt, og er því kyn-
blendingur eins og Ibsen, sem hún
þykir svipa til hvað frumleik snertir
í siðlegum kröfum og einförum í rit-
hætti. En miklu er hún einarðari, ber-
mæltari og óbrotnari. Ensk kona hefir
nýlega ritað um hana í smáriti í Lund-
únum og skal hér geta um aðaldrætt-
ina í æfistarfi og stefnu þessarar
sænsku stúlku, sem meðal djarfra og
djúpsettra rithöfunda markar miklu
stórfeldara spor en Selma Lagerlöf
annar frægasti kvenhöfundur Svfþjóðar
á vorum dögum.
Faðir Ellenar Key sá snemma að
eitthvað mikið bjó í dóttur hans, og
með því hann var frelsisvinur mikill
lofaði hann henni sjálfri að sjá fyrir
báti sínum frá þvf er hún var 12 ára
að aldri,* þau bjuggu nærri Stokkhólmi
og síðan í borginni sjálfri, því að ung
varð hún að vinna fyrir sér sjálf og
kenna í skólum. Þó undi hún því ekki
lengi heldur stofnaði sjáif skóla og
kendi meyjum og mannskonum og alt
eftir sfnu lagi; gerði engan manna-
mun eftir stéttum og þótti þegar vera
hinn mesti skörungur. Hún kyntist
ung kenningum þeirra Darwins, Mills
og Spencers, en þótti þó mjög fara
sinna ferða, enda vöktu ýmsar skoð-
anir hennar og beryrði mikil storm-
köst og það víðar en í Svíþjóð. Gift-
ast manni vildi hún ekki, og ekki
heldur undi hún alllengi í flokki kven-
frelsis kvenna í landinu. Var kenning
hennar, og er enn sú, að þær gleymdi
aðalefninu og berðist fyrir tilteknum
réttarbótum, sem fiestar væri auka-at-
riði, enda mundu reynast aðalfram-
förum kvenna fremur til tálma og nýrra
vandræða en verulegrar eflingar, fyr
en búið væri að undirbúa jarðveginn
handa því sjálfstæði og þeim réttind-
um, sem hið sanna kveneðli útheimti.
Um langan tíma stóðu á henni nálega
öll járn, enda varði hún harðfengilega
alla þá ofurhuga og víkinga í frelsis-
málum þjóðarinnar, sem lögin og lands-
venjan ofsóttu. Um þær mundir sagði
hún sig úr lögum við trú hinnar
sænsku kirkju og bar henni djarflega
á brýn fornar syndir og nýjar og eink-
um þá, að hún breytti gagnstætt kenn-
ingu þess kristindóms, er þó væri lög-
skipaður og kendur. Bættist svo það
við, að Ellen Key var talin guðleys-
ingi. Samt átti hún marga vini, enda
bar henni hver maður hið bezta orð.
»Menn og konur«— segir Ellen Key
—,»eiga að setja markið hátt og leita
jafnan farsældar sinnar — ekki til hálfs,
heldur H1 algerðrar farsældar*. Hún
kennir, að eðli mansins sé ávalt und-
ir niðri gott, og fái hver maður óhindr-
aður sjálfum sér að ráða, kemur mann-
gildið í ljós að lokum. »Frjáls maður
verður ósjálfrátt félagsmaður«, segir
hún. »Anægja og lífsgleði er alger-
leiki,« er önnur setning hennar.
Um konuna segir hún ávalt hið sama:
Frelsi fyrir hjartað! Því að í ríki kær-
leikans á konan öndvegissætið. Sakir
* Við skólalærdóm undi hún lítt, heldur
nam mest og bezt um leið og hún kendi
yngri systkinum sínum.
hjartans í konunni heimtar hún hið
fylsta frjálsræði, sem kostur er á að
fá. Konan má ekki skoða frelsismál
sin frá öfugri hlið (eins og oftast er
gert); hún þarf framar öllu að efla
og stækka sálina — læra frjálsan stór-
hug. Konan á 6. skilningarvitið, eða
vísi þess að minsta kosti, og kven-
skörungar hafa því jafnan farið fram-
ar en almenn forskrift hefir fyrirlagt
(og hún nefnir ýms nöfn afbragðskenna).
Hvenær sem kona hefir gert uppreisn
hefir hún skapað nýmæli í mannfélag-
inu (og hún nefnir Elizabet Fry, Flor-
ense Nightingale, Jósefínu Butler og
H. B. Storre).*
Hinn innri frumkraftur og kjarkur
konunnar, hefir of lengi verið í ljót-
um fjötrum. Það á ekki að byrja á
jafnræði milli karla og kvenna eða á
því hvað hvort sé öðru líkt, heldur á
því, sem sé ólíkt í eðlisfari beggja.
Jafnræðið má misskilja og er misskil-
ið. Það er móðernið, eða konan sem
móðir og fóstra, sem Ellen Key legg-
ur áherzluna á, en ekki jafnræði í sam-
kepni. Hún krefst þess að vísu, að
konur verði einráðar um sig og sjálf-
ráðar. Hjónabandið hefur hún ýmist
til skýanna, eða vísar því til neðri
bygðanna — alt eftir því, hvernig það
er skilið eða gengur í lífinu. Bækur
hennar: »Astin og hjúskapurinn«, og
»Öldin og barnið* eru aðalrit hennar
og geyma dýpstu og beztu hugsjónir
hennar. »Hún hefir þar ritað nýjan
lagabálk fyrir öll hjónabönd veraldar-
innar, sem óðara mundi, væri honum
hlýtt, leysa margar hinar svo nefndu
ráðgátur í samförum karla og kvenna,
og stórlega styðja heimilisfarsæld þeirra
og greiða fyrir réttu uppeldi komandi
kynslóðar.«
M.J.
X
!Fundarskýrs/a.
Húsavik 14/6 ’08.
Herra ritstjóri Norðurlands.
Hinn 10. þ. m. var hér haldinn
pólitískur hreppsfundur, eftir fundar-
boði frá sýslumanni Steingrími Jóns-
syni. Fundurinn var venju fremur fjöl-
sóttur, bæði af þorpsbúum og úr öðrum
hlutum hreppsins. Til fundarstjóra kaus
sýslumaður Aðalstein kaupmann, en
hann tók sér til aðstoðar sem skrifara
Benedikt Jónsson frá Auðnum og Sig-
urð Sigfússon sötustjóra. Verkefni fund-
arins var: Sjálfstœðismálið.
Hóf sýslumaður fundinn með snjallri
og langri tölu, sem varaði nærfelt í
tvo klukkutíma. Gerði hann ítarlega
grein fyrir störfum sambandslaganefnd-
arinnar frá upphafi til enda. Síðan
útskýrði hann frumvarp nefndarinnar
grein fyrir grein og sagði hver sinn
skilningur væri á þeim orðum og at-
riðum frumvarpsins, sem torskilin þættu.
Tók hann beinlínis fram hverja kosti
aðal ákvæði frumvarpsins hefðu í sér
fólgna; en hjá því varð eigi komist
að gallarnir komu óbeicdínis í Ijós um
leið. Að síðustu gat hann þess með
sterkum og áhrifamiklum orðum, að
hann áliti frumvarpið svo fullnægjandi
sjálfstæðiskröfum þjóðarinnar, að hann
teldi það misráðið, ef þjóð og þing
hafnaði frumvarpinu eins og það lægi
nú fyrir. Hann kvaðst mundi á öllum
* Þessar ensku konur hafa allar stórum
bætt kjör sjúkra og særðra manna, þjáðra
og þjakaðra.
manntalsþingum sýslunnar hafa sjálf-
stæðismálið til umræðu, ef tími leyfði,
að loknum almennum þingastörfum. —
Andmæli, gegn frumvarpinu og ein-
stökum atriðum í tölu sýslumanns,
hófu þessir: Gísli Iæknir Pétursson,
Jóhannes Þorkelsson á Fjalli og Páll
Jóakimsson; svaraði sýslumaður and-
mælum þeirra eftir því, sem honum
fanst þau gefa tilefni til.
Samkvæmt því, sem tekið var fram
í fundarboðinu, var þingmannsefni kjör-
dæmisins, Pétur Jónsson frá Gautlönd-
um staddur á fundinum. Gerði hann
grein fyrir afstöðu sinni gagnvart sjálf-
stæðismálinu og frumvarpi því er þá
lá fyrir til umræðu. Lét hann það í
ljós, að í þingmannaförinni 1906 hefði
komið til umtals flest þau aðalatriði,
sem í frumvarpinu stæðu, viðvíkjandi
sjálfstæði íslands, og hafði þingmönn-
um af öllum flokkum komið saman
um að fara eigi lengra í sjálfstæðis-
kröfunum, ef þeim yrði hreift við
Dani, en nefndarfrumvarpið gerði; og
áleit hann því, að nefndarfrumvarpið
hefði fullnægt því, sem þá hefði vak-
að fyrir sér og þeim þingmönnum,
sem í Danmerkurförinni voru. Fund-
urinn stóð yfir frá kl. 8 síðdegis til
kl. IV2 um nóttina.
Litlu á eftir fundinum fæddist þessi
staka:
Torvelt er að sjá í svip,
hvað séu traustir vinir,
þegar Dana gallagrip
gylla íslands synir.
Vestfirzkur Húsvíkingur.
X
Fundir í Skagafirði.
Stefán kennari Stefánsson kom heim
á fimtudagsmorguninn. Hafði hann hald-
ið þtjá fundi í Skagafirði um sam-
bandsmálið. Tveir fyrstu fundirnir, að
Steinstaðalaug og á Sauðárkrók, voru
allvel sóttir, en síðasti íundurinn á
Hofsós var heldur fámennur, 20—30
kjósendur, sökum þess að veður var
slæmt framan af degi, og fjöldi bænda
við Drangey úr þeim bygðarlögum,
er þangað sækja fundi.
Fáir (2—3) andmæltu frumvarpi milli-
landanefndarinnar á fundum þessum,
en ýmsum athugasemdum var hreyft
og fyrirspurnir gerðar um einstök at-
riði. Var auðheyrt á öllu að allur þorri
kjósenda bar þar ríkast fyrir brjósti
að fá sem glöggastan skilning á frum-
varpinu og taka ekki ákveðna stefnu
í málinu fyr en hann væri fenginn.
Nærfelt öllum sem töluðu var það
ljóst að stórkostlegar rjettarbætur voru
fengnar, yrði frumvarpið að lögum, og
þakklátir voru þeir nefndinni fyrir starf
hennar, og lýstu yfir því að þeir væru
sannfærðir um að nefndarmenn hefðu
gert alt sem í þeirra valdi stóð til
þess að komast að sem beztum samn-
ingum fyrir íslands hönd, sem framast
var unt.
Eftir framkomu manna á fundunum
og hinum rólegu og skyns.,mlegu um-
ræðum sem fram fóru um sambands-
málið, má telja víst að yfirgnæfandi
meiri hluti Skagfirðinga verði þeim
megin í þessu stórmáli er betur
gegnir. * *
X
TrúlofuO
eru Arni Jóhannsson verzlunarmað-
ur og ungfrú Nikólína S. Sölvadóttir,
Kaupangi.
*
Ur ýmsum áttum.
Radium og Frakkneskur efnafræðingur,
gimsteinar. Fr- Bordas, hefir nýlega gert
þá uppgötvun,' að búa má
til dýrindis gimsteina, rúbína, safíra og
tópasa úr korundasteini, sem er ódýr, harð-
ur, gráleitur steinn, líkur tinnu. Til þess
notar hann hið nýja undraefni radium.
Hann hafði veitt því eftirtekt að glös, sem
radiumsölt voru geymd í, fengu einkenni-
legan skínandi litblæ, sem hélt sér vel á
glerinu. Honum kom þá til hugar að rann-
saka hvort radiumgeislarnir breyttu lit á
gagnsæjum steinum og fann þá að hann
gat gefið korundtinnu skínandi gimsteina-
lit, sem var að öllu samskonar og á nátt-
úrlegum gimsteinum. Gátu gimsteinasalar
á engan hátt greint þessa tilbúnu gim-
steina frá hinum, sem fundist höfðu í jörðu.
Það má telja víst að uppgötvun þessi
breyti öllu verði á þessum gimsteinateg-
undum, sem til þessa hafa verið afardýr-
ar. Kvenfólkið má hlakka til skartsins.
X
Fnjóskárbrúin hrunln.
Fnjóská óx svo afskaplega í gær,
að hún ruddi því burt, sem búið var
að byggja af brúnni, nema einhverju
af steinstöplunum við löndin. Brúin
átti að vera úr steinsteypu og var
boginn, sem hvíldi á stólpum f ánni,
kominn svo langt á veg og hann harðn-
aður svo, að menn töldu víst að brú-
in mundi hafa getað staðið, ef áin
hefði ekki vaxið fyr en viku seinna.
Menn geta sér til, að skaðinn muni
tæplega geta verið minni en um tíu
þúsund krónur.
Vatnavextir
voru óvenjumiklir hér norðanlands
í gærkvöldi og er viðbúið að þeir hafi
valdið miklum skemdum til og frá.
Gripasýnintrunni,
sem átti að verða á Grund í dag,
var frestað þangað til í næstu viku
sökum vatnavaxtanna.
Jóhannes Jósefsson
glímdi í Reykjavík að kvöldi þess
22. þ. m. grísk-rómverska glímu við
Svía, Godtfred Thoren að nafni, sem
áður hefir ferðast um sem glfmumað-
ur, bæði í Svíþjóð, Ameríku og Eng-
landi. Leikar fóru svo að Jóhannes
vann aMar glímurnar, sem þeir glímdu.
Qlímumennirnir
leggja af stað frá Reykjavík með
Ceres þann 28. þ. m. áleiðis til Lund-
úna. í Reykjavík sýndu þeir glímur
sínar fyrir húsfylli og lúka Reykjavík-
urblöðin lofsorði á glímur þeirra. Með-
an á glímunum stóð var leitað sam-
skota til fararinnar meðal áhorfend-
anna og voru undirtektirnar góðar.
Guðjón úrsrniður, sá sem áður hafði
gefið 200 kr. til þessa fyrirtækis, bætti
við 50 kr. það kvöld. Alls komu inn
um kvöldið 700 kr.
Formann fararinnar hafa þeir valið
Jóhannes Jósefsson, og Pál Guttorms-
son gjaldkera.
Fund um sambandsmáliO
ætla Húnvetningar að halda á Sveins-
stöðum 4. júlf n. k. Mjög eru skoð-
anir manna um það mál sagðar skift-
ar þar f sýslunni.
Halldór kennari Briem
hefir sótt um lausn frá embætti
sínu við gagnfræðaskólann frá 1. októ-
ber n. k.