Norðurland - 11.07.1908, Síða 4
NI.
194
Verksmiðjufélaqið
á ftkureyri.
í verksmiðjunni verður, eins og að undanförnu tekið á móti
ull til kembingar og spuna, og afgreitt fljótt og vel.
Vefnaðardeild verksmiðjunnar tekur par á móti ekki til starfa
fyr en nánara verður auglýst par um.
Oífo Monsfed5
danska smjörliki
_____________________er bezt.
Sveifamennirnir
ættu að kaupa
Ijáblöðin með fílnum.
Þau kosta að eins 75 og 85 aura í
Sdinborg.
KVENFÓLKIÐ,
sem þarf að kaupa
Álnavöru
ætti fyrst að koma í
EDINBORO.
Karlmannafataefni
Langbezt og fjölbreyttust í
Vefnaðarvöruvet zlun
Gudmanns Efterfl.
Von á miklu í viðbót á næstu dögum.
Þar er einnig
STÆRST ÚRVAL
af allskonar annari álnavöru tilbúnum
fatnaði, skótaui, höfuðfötum
og mörgu fleira, og Öllum, ber sam-
an um að þar sé
LÆGST VERÐ.
UNGFRÚRNAR
fá bezt og ódýrast svuntuefni og
tilbúin slifsi
í Edinborg.
Svendborgar
ofnar og
eldstór.
Eg hefi nú fengið miklar birgðir
af þessum ágætu steypivörum; sér-
staklega vil eg leiða athygli að hin-
um síbrennandí „DANOFNUM“,
sem aldrei þarf að hreinsa, þeir
brenna jafnt kolum sem sverði og
kosta að eins kr. 55.00 til 75.00. Á
þeim má sjóða.
ELDSTÓR með vatnspotti og
bökunarofni, hefi eg fengið frá 35
kr. til 150 kr. verðhæðar.
Um hina miklu yfirburði þessar-
ar steypivöru fram yfir aðrar sem
hér hafa þekst, leyfi eg mér að
vitna til áðurprentaðra vottorða frá
læknunum Guðm. Hannessyni og
Sigurði Hjörleifssyni, húsasmiðum
Guðm. Ólafssyni, Guðbirni Björns-
syni, prentstjóra Oddi Björnssyni,
söngkennara Sigurgeir Jónssyni og
m. fl.
Akureyri, 4. júlí 1908.
Eggert Laxdal.
Húsmæðraskólinri
við Akureyri byrjar sitt annað skólaár
14. október 1908 og varir til fyrsta
maí 1909. Frá 14. október til 1.
nóvember verður kensian mest verk-
leg, svo sem niðursuða á kjöti, ýmis-
konar pylsugerð, matreiðsla úr ýmsu
kálmeti, syltaber o. fl. Aðgöngu að
þessu tímabili geta fengið jafnt giftar
sem ógiftar konur.
Nánari upplýsingar gefur undirrituð.
Tilraunastöðinni við Akureyri.
Jónína Sigurðardóitir.
Aðvörun.
Hérmeð er skorað á alla þá,
sem skulda mér, að greiða eða
semja um greiðslu á skuldum
sínum, fyrir 1. okt. n. k. Þeir
sem skeita ekki aðvörun þessari
mega búast við lögsókn.
ÍSLAND
hefir það veðráttufar að mönnum er
hætt við innkulsi og sjúkdómum
þeim, er af því leiða, svo sem lungna-
pípubólga, gigtveiki, influenza, maga-
kvef o. fl.
Bezta lyfið við öllum sjúkdómum
er China Livs Eliksir Waldemars
Petersen í Fredrikshavn, Kjöbenhavn.
Hefir það hlotið verðlaun á sýning-
um heimsins og meðmæli læknanna;
það lyf ætti því að vera á hverju
íslenzku heimili.
Brjóstljimnubólga.
Eg var tengi sjúkur rf brjósthimnubólgu
og leitaði mér lœknishjálpar, án þess að
haldi kœmi. Reyndi eg þá China Livs El-
iksir Waldemars Petersen og með þvi að
neyta þessa ágœta heilsubitters um lengri
tima hefi eg fengið heilsuna aftur.
Hans Henningsei),
Skarerup pr. Vordingborg.
Gigtveiki.
Undirituð heýir til margra ára þjáðst
mikið af giktveiki, en reyndi China Livs
Eliksir Waldemars Petersen og eftir að
hafa neytt hans daglega um langan tima
er eg aftur orðin heil heilsu.
Ungfrú Emmy Truelserj.
Köbenhavn.
Taktu inn China Livs Eliksir, hvað
sem að þér gengur, því hann hefir
reynst óbrigðult meðal, þegar ekkert
annað hefir getað hjálpað, af því
hann hefir bætt meltinguna oghreins-
að blóðið. Biðjið berum orðum um
China Livs Eliksir Waldemars Peter-
sen. Varið yður á eftirstælingum.
Prentsmiðja Odds Björnssonar.
166
Hann stamaði og kom ekki upp nokkru orði, lagði
frá sér vindilinn og fór úr frakkanum.
Blóð hans hafði kólnað nokkuð þessa dagana. Ógeðs-
svipur prófessorsins hafði vakið þá hugsun hjá honum,
að þetta æfintýri væri nú reyndar full-alvarlegt. Frú
Wenche var víst líka altof alvörugefin, of bundin og
þungfleyg til þess að geta borið það líf, sem hann hafði
hugsað sér.
Nú kom hún þarna inn í stófuna til hans, settist í
legubekkinn hans og sagði: Hér kem eg nú! Hvern
þremilinn átti hann að taka til bragðs, — hvernig
skyldi hann eiga að taka í strenginn, — hvernig í
fjandanum átti hann að greiða fram úr þessu?
Falleg var hún; — hún var indæl þarna í legubekkn-
um hans, föl í andliti með úfið hár. En hvaða gagn var
að því — á þenna undarlega, hátíðlega hátt?
Hann helti víni í glas handa henni:
>Kæra frú Wenche,— hvað gengur að? Hefir nokk-
uð ilt komið fyrir?*
»Nei,« svaraði hún og brosti aftur til hans. »Yður
mundi nú jafnvel kanske finnast það vera gott, úr því
að það veitir yður uppfylling óska yðar nú í einni
svipan.
»Segið mér frá, — segið mér frá því!« hrópaði hann
ákafur og í þeim rómi, sem átti að gefa til kynna, að
hann væri frá sér numinn.
Hún varð einkis vör, því hún var með allan hug-
ann við það, sem hún ætlaði nú að fara að segja hon-
um, — við þetta augnablik, þegar hún sleit sig úr öllu
samfélagi við mann sinn til þess að stofna annað nýtt
með öðrum manni.
r
Asgeir Pétursson.
167
Hún byrjaði þvi rólega, eins og hún vildi biðja hann
að vera þolinmóðan; þetta yrði Iöng og alvarleg saga.
»Já, kæri Mordtmann! Eg hefi skilið við manninn
minn og er nú komin til yðar; en fyrst er þó dálítið
annað. —«
»Þér hafið, segið þér, skilið við, —. eg skil ekki
almennilega—«; hann sá í sama bili litla bæinn steyp-
ast á endum allan saman: Prófessorsfrú Lövdahl rokin
burt frá manni sínum til þess að setjast að um hánótt
í híbýlum hans!
Frú Wenche kiptist dálítið við, eins og hún kendi
alt í einu til; hún leit snöggvast á hann og sagði eins
og ekkert væri um að vera:
»Það er að segja, mér varð æði mikið sundurorða
við manninn minn, og þess vegna gekk eg nú hingað
til þess að leita hjá yður góðra ráða.«
»Ó, kæra frú, — eg vildi gera alt fyrir yður. Þér
gerðuð mig í fyrstu logandi hræddan. En það var held-
ur ógætilegt af yður að koma hingað á þessum tíma,
finst yður ekki?«—hann settist hjá henni í legubekkinn.
En frú Wenche varð undarlega hörð á svipinn, og
hrukkur, sem aldrei höfðu sézt áður, lögðust nú um-
hverfis munninn. Hún, sem ávalt sagði sjálf eins og
var í raun og sannleika, hafði fengið næmt eyra fyrir
því, sem viðsjált var og ekki að treysta; á þessu
augnabliki las hún hann niður í kjölinn skýrt og vægðar-
laust.
Ef hún hefði ekki gert það fyr, þá var það af því,
að ástin, sem þróaðist hjá henni sjálfri, gerði hana
blinda og fylti hana trausti og trú á hann; og auk
þess hafði, einkum seinast þegar fundum bar saman,
sterk og sönn ástríða komið í ljós hjá honum.