Norðurland - 18.07.1908, Síða 3
197
Nl.
mörg ár ánauðugur dáti. Fyrir 20 árum
síðan hóf hann að rita í dagblöðin og eftir
það skifti fljótt um fyrir honum. Varð
hann þegar alger ritsnillingur, og er honum
safnaðist fé, stofnaði hann blað mikið í
Lundúnum er hann kallaði »Glarion«; það
þýðir lúður, og því næst hinn alkunna
Cindarillu-klúbb. Og þá gaf hann út hinar
áðurnefndu fyrstu bækur sínar, og síðan
margar aðrar. Aðrir siðbótaskörungar lands-
ins, eins og þeir W. Morris, Carlyle og
John Ruskin áttu þar að fagna nýjum
liðsmanni og það ungum garpi, sem eng-
an jafningja virtist eiga á Englandi. Ekki
hcfir Blatchford hingað til sózt eftir
völdum eða þingmensku, heldur starfar
enn sem fyr með ritum og ræðum. Síðasta
rit hans heitir >Non guilty< (o: ekki sekur).
Úr því riti, sem átakanlegast þykir lýsa
hinum mikla ójafnaði, er hinar lægstu
stéttir þola, set eg hér til smekks fáeinar
setningar:
»Þ>egar eg heyri einhvern bróður hempu-
skrýddan tala um hina einu sönnu trú,
fer eg að hugsa um hina fornu stjörnu-
skoðara, eða um fornu goðin og fornu
garpana, sem ormarnir átu fyrir öldum
síðan; svo og um smyrðlingana á forn-
gripasöfnunum, líkin, sem legið hafa undir
klettum í 30 þúsund ár. Og þegar eg
heyri háttvirta þingmenn þrefa um lands-
ins gagn, er þeir kalla pólitík, detta mér í
hug hinar hungurmorða saumastúlkur, hin-
ir vinnulausu burðarkarlar við skipahróf-
in, eða aumingjarnir með krabbann í hálfu
andlitinu heima í kjördæmi hins .virðulega
þingmanns«. Þegar eg les um hið mikla
veraldarríki landa vorra, kemur mér í
hug öreigakirkjugarðurinn með dýkjunum
löngu.------Þegar eg heyri kórsöngvana
í kirkjunum, heyri eg stunurnar frá Fen-
eyjabrúnni og sé í iljar örvinglaðra kvenna,
sem steypa sér í heldimt djúpið, og horfi
á litla fátæka barnið, sem ól upp músina
til að elska. Og þegar eg heyri klerkinn
þruma um spillingu mannkynsins, minnist
eg ótal karla og kvenna, meðal annara
stúlknanna við hermannaskálana, hvað þær
voru kvenlegar i niðurlæging sinni og mikil
valkvendi þrátt fyrir skömm sína, eða
hverju skyldi klerkurinn svara þeim, ef þær
töluðu eins við hann og þær oft töluðu
við mig. Eg fullvissa yður um það, að
hinn vesælasti ræfill, aumasti betlari, ó-
svífnasti þjófur, afleitasti ofdrykkjumaður,
versti flækingur og fyrirlitlegasta skækja
hefðu öll getað orðið heiðursfólk og til
nytsemdar landi og lýð, ef auðnan hefði
boðið þeim betri kjör.----Konur góðar:
ef þér hafið nokkurn tíma fundið ungbarnið
lcggja hendur um háls yðar, þá hugsið
um, hvað fyrir muni liggja milliónum af
börnum í stórborgum vorum! Og góðir
menn: ef þér virðið konuna, ef þér elskið
dætur yðar og húsfreyjur, minnist þá
kvennanna og ungu stúlknanna á stræt-
unum, á mörkunum, í fangelsunum og í
fabrikuþrældómnum, og skimið svo um-
hverfis yður unz þér finnið þeim hjálpar-
mann. — — Menn og konur: litlu börnin
eru nú það sem skjækjurnar voru einu
sinni; það sem skjækjurnar nú eru, munu
miljónir smábarna á síðan verða, ef þér
hreyfið yður ekki þeim til hjálpar. Það er
ekki nóg að horfa upp í himininn, vér
verðum að líta til jarðarinnar til þess að
hjálpa, finna og frelsa. Það er ekki nóg
að biðja Guð að duga, vér verðum að
duga sjálfir.----
Sakir þeirra góðu manna, sem eru betri
en guðir þeirra, sakir góðu kvennanna,
sem eru sómi og gleði landanna, sakir
hinna ástúðlegu barna, sem oss eru dýr-
ari en blómin og sólskinið, sakir hinnar
uppvaxandi kynslóðar, sem ekki er enn
þá glötuð, sakir ófæddra kynslóða, sem
halda eiga á síðan uppi sóma þjóðarinn-
ar, sakir réttar og réttvísi, sannleiks og
kærleika bið eg yður um að kveða upp
dóminn ,og segja: Ekki sekur!<
í þessum orðum birtist höf. allur:. sál
hans, trú hans, pólitík hans, áhugi og
æfistarf. (M J}
t
Ólafur Sigurðssoij
dbrm. í Ási í Hegranesi andaðist í
hárri elli á laugardaginn var hjá syni
sínum Guðmundi bónda í Ási.
Hann var einn af allra merkustu
bændum þessa lands og verður æfi-
atriða hans getið síðar hér í blaðinu.
%
Einar Hiörleifsson
skáld og ritstjóri kom hingað til
bæjarins á miðvikudaginn var, ásamt
frú sinni og dóttur. í gær las hann
upp í Templarasalnum kafla úr sögu
sinni Ofurefli fyrir fjölda áheyrenda
og var gerður að hinn bezti rómur.
Hann les upp aðra kafla úr sögunni
á morgun kl. 6 e. h.
Guðlauzur Guðmundsson
bæjarfógeti býðursig fram til þingmensku
fyrir Austur-Skaftafellssýslu.
Jón Hiaitalín
skólastjóri hefir fengið lausn frá em-
bætti sínu.
Lœknishéruð veitt.
Steingrími Matthíassyni er veitt Akur-
eyrarhérað en Þórði Edilonssyni Hafnar-
fjarðarhérað.
Búpeningssýtiingarnar
í Eyjafjarðarsýslu.
Þrjár búpeningssýningar hafa nú ver-
ið haldnar hér í sýslunni á þessu sumri.
Fyrst héldu Svarfdælir sýningu á Þverá
í Svarfaðardal 23. júní, þá Hörgdælir
25. júní á Arnarnesi og loks héldu 3
hreppar sýslunnar innan Akureyrar sýn-
ingu á Grund í Eyjafirði 2. júlf. Hafði
sú sýning áður verið ákveðin 27. júní,
en var þá frestað vegna óvenjulegra
vatnavaxta. Til þessara sýninga veitti
Búnaðarfélag íslands 450 króna styrk
alls. Af þeim fór til sýningar Svarf-
dæla 100 kr., til sýningar Hörgdæla
150 kr. og til sýningar Eyfirðinga
200 kr.
Eins og að undanförnu var þessi
styrkveiting bundin því skilyrði, að
jafnmikið fé væri lagt fram annarstað-
ar frá. Veitti sýslusjóður Eyjafjarðar-
sýslu nokkurn hluta fjárins, en sumt
var veitt af hreppssjóðum á sýningar-
svæðinu og loks lögðu nautgripafélög
Svarfdæla og Hörgdæla fram fé til
sýninganna hjá sér. Búnaðarfélag ís-
lands hafði ætlast til, að ráðanautur
þess, Guðjón sál. Guðmundsson, mætti
á sýningunum, en við fráfall hans ritaði
það Ræktunanfélagi Norðurlands og
fór þess á leit að það léti búfróðan
mann mæta á sýningunum, er gæti
leiðbeint f að dæma gripina. Var Ingi-
mar búfr. Sigurðssyni falið að gegna
því starfi.
Á sýningu Svarfdæla og Hörgdæla
voru að eins sýndir nautgripir, enda
til þeirra stofnað aðallega fyrir ötula
Iramgöngu formanna nautgripafélag-
anna. Nautgripafélögin hafa efalaust
að stórum mun aukið áhuga félags-
manna fyrir þessari grein búnaðarins
sérstaklega. En að hinu Ieytinu er erf-
itt að koma á almennum sauðfjársýn-
ingum á þessum tíma árs, þegar margir
hafa slept fé sínu.
Á sýningu Svarfdæla á Þverá var
komið með um 50 kýr og 7 naut.
Flestir voru eigendur gripanna félags-
menn nautgripafélagsins, en nokkurir
utanfélagsmenn komu með gripi sína
°g gengu þeir í félagið sýningardag-
inn.
Formaður félagsins er Þorsteinn
Baldvinsson á .Böggversstöðum.
í dómnefnd voru kosnir auk I. S.
þeir Tryggvi Jóhannsson bóndi á Hvarfi,
Sigurður Ólafsson bóndi á Þverá, Jó-
hann Þórðarson bóndi á Hnjúki og
Vilhjálmur Einarsson bóndi á Bakka.
Alls fengu verðlaun 4 naut og 29
kýr. Eru nöfn eigendanna prentuð hér
síðar.
Ársnyt beztu kýrinnar var 8400 pd.
Eigandi hennar er Jóhannes Jónsson
bóndi á Syðra-Hvarfi.
Á sýningu Hörgdæla á Arnarnesi
var komið með 45 kýr og 3 naut. Af
þeim voru verðlaunuð öll nautin og
34 kýr.
Formaður nautgripafélagsins Stefán
alþm. Stefánsson í Fagraskógi stjórn-
aði sýningunni, en í dómnefnd voru
skipaðir auk I. S. þeir Tryggvi Kon-
ráðsson bóndi í Bragholti og Jóhann
P. Jónsson bóndi á Skriðulandi.
Hæsta ársnit, 6886 pd., hefir gefið
kýr, sem Tryggvi Konráðsson í Brag-
holti á.
Til sýningarinnar á Grund stofnaði
Fundafélag Eyfirðinga. Kaus það 5
manna nefnd í vetur til að annast
framkvæmdir hennar.
Formaður nefndarinnar var kosinn
Kristján Benjamínsson bóndi á Ytri-
Tjörnum. Meðnefndarmenn hans voru
þeir Magnús Sigurðsson R. af dbr. og
kaupmaður á Grund, Hallgrímur dbr.
Hallgrímsson hreppstjóri á Rifkelsstöð-
um og Jóhann Jónasson bóndi á Hól-
um. Fimti nefndarmaðurinn lézt í vor
Jóhann sál. Jóhannsson, sem bjó á
Möðruvöllum.
Sýningin var allfjölsótt af bændum
af sýningarsvæðinu. Alls var komið
með á sýninguna 5 naut, 26 kýr, 5
graðhesta, 55 hryssur, 30 hrúta og
178 ær. Til þess að dæma nautgrip-
ina voru kvaddir Jóhann Sveinbjarn-
arson bóndi á Botni, Páll Jónsson bóndi
á Þórustöðum og Júlíus Gunnlaugsson
bóndi 1' Hvassafelli. í hrossadómnefnd
voru þeir Helgi Steinberg bóndi á
Hrafnagili, Sigurgeir Sigurðsson bóndi
á Ongulsstöðum og Jóhann Jónasson
bóndi á Hólum. í fjárdómnefnd voru
Jón Gunðlaugsson búf. í Hvammi, Níels
Sigurðsson bóndi á Æsustöðum og
Jónas Jónasson bóndi á Stórahamri.
Fyrir hönd Búnaðarfélagsins mætti
I. S. eins og á 2 hinum fyrnefndu sýn-
ingum. Uudirritaður var þar einnig við-
staddur.
Alls voru verðlaunuð 3 naut, 8 kýr,
4 graðhestar, 14 hryssur, 12 hrútar
og 39 ær.
Yfir höfuð má segja að sýningin
færi vel og skipulega fram. Þó gerðu
sumir sig seka í því að reka kýr sín-
ar burt áður en leyfi var fengið hjá
forstöðunefnd syningarinnar, sem auð-
vitað alls ekki mátti eiga sér stað.
Mikið mein var það fyrir þá, er
kýrnar dæmdu, að hafa engar mjólkur-
og fóðurskýrslur að styðjast við, Er
vonandi að ekki lfði á löngu áður en
Eyfirðingar komi upp ’hjá sér naut-
gripafélagi og reynist ekki lengur eftir-
bátar sýslunga sinna í Hörgárdal og
Svarfaðardal f viðleitninni til að bæta
kúakynið.
Hrossin máttu heita fremur góð, eink-
um þegar tekið er tillit til þess hve
skamt er síðan, að menn alment fóru
að gefa kynbótastarfseminni nokkurn
verulegan gaum, Hingað til hafa menn
ekki gert glöggan aðskilnað á reið-
hestum og áburðarhestum, en það
mun vera alveg nauðsynlegt til þess
að framfara verði auðið með kynbótum.
Sauðfé hefir lengi verið álitið lak-
ara í Eyjafirði en í nærsýslunum. Er
víst nokkuð hæft í þvf, hvort sem or-
sökin er kynferði fjárins, lakari hagar
eða hvorttveggja í senn. Þó virtust
sumir hrútarnir vera góðir. En með
því að nokkurir þeirra eru af blönd-
uðu kyni, en aðrir aðfengnir, þá verð-
ur varla sagt með vissu hversu mikla
þýðingu þeir kunna að hafa fyrir kyn-
bæturnar hér f sýslunni. Mætti helzt
ráða það af alkvæmum þeirra, ef hægt
væri að sýna þau í fleiri liði.
Við verðlaunaveitingar kynbótadýra
ætti að taka sérstakt tillit til afkvæma
þeirra, að svo miklu leyti sem því
verður við komið.
Eg efast ekki um að sýningarnar
hafi náð tilgangi sínum í því að vekja
eftirtekt og athygli manna á skapnaði
og útliti búpeningsins og að auka
eðlilega samkepni í að bæta hann. En
því að eins geta þær komið að full-
um notum, að hér sé ekki látið stað-
ar numið, heldur efnt til nýrra sýninga
á þessum sömu svæðum áður en mörg
ár líða.
Á sýningunum fengu þessir verð-
Iaun:
a. Á sýningu Hörgdœla.
1. Fyrir naut.
/. verðlaun 20 krónur.
Stefán Stefánsson, Fagraskógi.
II. verðlaun 15. krónur.
Nautgripafélag Hörgdæla.
III. verðlaun 10 krónur.
Jón Guðjónsson, Ytra-Kálfsskinni.
2 Fyrir kýr.
I. verðlaun 12 krónur.
Benedikt Guðmundsson, Svíra. Þorsteinn
Jónsson Möðruvöllum.
II. verðlaun 9. krónur.
Kristján Pálsson, Ytri-Bakka. Sveinbjörn
Björnsson, Hillum. Þorst. Jónsson, Möðru-
völlum. Þorsteinn Þorvaldsson, Krossum.
Friðrik Jóhannsson, Götu. Baldvin Þor-
valdsson, Hámundarstöðum. Pétur Jóhanns-
son, Hallgilsstöðum. Stefán Baldvinsson,
Kambhóli. Magnús Þorsteinsson, s. st. Sae-
mundur Oddsson, Grund.JónJónsson.Syðri-
Bakka. Ásgrímur Sveinsson, Þrastarhóli. Sæ-
mundur Sæmundsson, Stærra-Árskógi. Jó-
hann Sigurðsson, Brekku. Tryggvi Kon-
ráðsson, Bragholti. Friðrik Guðmundsson,
Arnarnesi. Guðmundur Magnússon, Ásláks-
stöðum.
///. verðlaun 5 krónur.
Stefán Stefánsson, Fagraskógi. Guttorm-
ur Einarsson, Ósi. Jón Jónsson, Syðri-Bakka.
Ásgrímur Sveinsson, Þrastarhóli. Tryggvi
Konráðsson, Bragholti. Guðmundur Árna-
son, Arnarnesi. Björn Bjartmannsson, Kú-
gili. Þorsteinn Þorvaldsson, Krossum. Ní-
els Jónsson, Syðra-Kálfsskinni. Baldvin
Þorvaldsson, Hámundarstöðum. Kristján
Jónsson s. st. Rósenkar Guðmundsson,
Kjarna.
b. Á sýningu Svarfdœla.
\. Fyrir naut.
/. verðlaun 18 krónnr.
Sigurður Guðmundsson, Helgafelli.
II. verðlaun 12 krónur.
Tryggvi Jóhannsson, Ytra-Hvarfi. Jón
Jónsson, Hrappsstaðakoti. Þorsteinn Bald-
vinsson, Böggversstöðum.
2. Fyrir kýr.
I. verðlaun 8 krónur.
Jóhannes Jónsson, Syðra-Hvarfi.
II. verðlaun 6 krónur.
Sigurður Guðmundsson, Helgafelli. Sigur-
jón Jónsson, Ytri-Mágsstöðum. Hallgrfmur
Kristjánsson, Ytra-Garðshorni. Sigurhjört-
ur Sigurðsson, Auðnum. Tryggvi Jóhanns-
son, Ytra-Hvarfi. Vilhjálmur Einarsson,
Bakka. Júlíus Sigurðsson, Syðra-Garðshorni.
Sigurður Ólafsson, Þverá.
III. verðlaun 4 krónur.
Sigurður Guðmundsson, Helgafelli. Sigur-
jón Jónsson, Ytri-Mágsstöðum, Árni Run-
ólfsson, Atlastöðum. Hallgrímur Kristjáns-
son, Ytra-Garðshorni. Sigurhjörtur Jóhann-
esson, Urðum. Gunnlaugur Jónsson, Klaufa-
brekku. Jón Björnsson, Hóli. Tryggvi Jó-
hannsson, Ytra-Hvarfi. Jóhannes Jónsson,
Syðra-Hvarfi. Sigurður Jónsson, Sælu. Jón
Hallgrímsson, Jarðbrú. Vilhjálmur Einars-
son, Bakka. Baldvin Jóhanrisson, Stein-
dyrum. Júlíus Daníelsson, Syðra-Garðs-
horni. Guðjón Daníelsson, Hreiðarsstöð-
um. Sigurður Ólafsson, Þverá.