Norðurland - 25.07.1908, Qupperneq 4
Aftur samþyktu þessir 42 menn
svohljóðandi tillögu:
>Fundurinn aðhyllist frumvarp sam-
bandslaganefndarinnar og skorar á
þingmannaefni kaupstaðarins að heita
því fylgi.«
Það munu flestir mæla að auðheyrt
hafi verið í salnum að Uppkastið átti
þar minni vinsældum að fagna, en
andmæli gegn því. Er því lítið að
marka þessa atkvæðagreiðslu, enda
greiddi ekki lls hluti kjósenda kaup-
staðarins atkvæði.
Um síðustu helgi hafði verið hald-
inn fjölmennur fundur í Arnesi í Stranda-
sýslu.
Þar hafði verið samþykt með mikl-
um meiri hluta atkvæða mjög ákveð-
in tillaga gegn frumvarpi millilanda-
nefndarinnar, er krafðist þess, meðal
annars, að öll sameiginleg mál skyldu
vera uppsegjanleg, nema konungssam-
bandið.
Fleiri fundir verða að sögn haldnir
þar í sýslunni bráðlega, um sambands-
málið.
Af fundunum f Snæfellsnessýslu eru
nú komnar nánari fréttir. A þeim
fundum voru greidd samtals 77 at-
kvæði með frumvarpinu en 99 á móti
því.
Ekki kvað það vera rétt hermt í
sfðasta blaði að Ingólfur Jónsson hafi
tekið aftur framboð sitt ( Dalasýslu.
En ekki hafði hann boðið sig fram á
fundinum í Búðardal, svo sem fast-
lega var búist við.
*
Ur ýmsum áttum.
.. . (eða Samúel Clemens) hinn fræei
Mark
Twain ' h'^g'sciguntari, heimsótti Eng-
land í sumar sem leið og fekk
þar hinar veglegustu viðtökur. Eru þó
sögur hans teknar við og við að verða
nokkuð bragðdaufar. Síðasta sagan um hann
sjálfan hljóðar svo:
>Mark Twain spurði um nýja bók hjá
auðugum bóksala. Bókin var til og skyldi
kosta 4 dollara. Það er rétt, segir M. T.,
en eg rita fyrir blöð og vænti þess að fá
afslátt. Já svo skal vera, segir afhending-
amaðurinn. Eg rita ýmislegt fyrir tímarit
líka, segir Mark, fæ eg ekki afslátt fyrir
það? Sjálfsagt, segir hinn. En eg er rit-
höfundur og hvað dregst frá fyrir það?
Fyrir það? segir hinn. Jú, rithöfunda-af-
sláttinn eigið þér. En svo á eg hlutabréf
í bóksölu ykkar, og það gefur mér, vona
eg, afslátt. Sjálfsagt—sjálfsagt, segir hinn.
Og svo vildi eg fá að geta þess, að eg
var skírður Samúel Clemens, og hvað gefið
þér eftir fyrir það? Hinn bretti brýrnar og
segir: Það var svona! Hvað skulda eg nú?
segir M. T. Við skuldum yður 80 cents,
herra minn, svaraði afhendingamaðurinn.
(Úr ensku kirkjublaði.)
%
SjálfstæOlsafsallQ.
Voss advokat, merkur stjórnmála-
maður í Kristjaníu, hefir ritað í Dag-
blaðið norska um Uppkastið og telur
það fela í sér sjálfstæðisafsal fyrir
íslendinga.
Jydsk Morgenblad hefir og ritað
um málið og samsinnir þessu.
Eftir símskeyti til Nls.
Albertl falllnn.
Hinn frægi og margumræddi dóms-
málaráðherra Dana veik úr völdunum
23. þ. m. og er heilsubilun um kent.
Mun hann ekki verða harmaður af
dönsku þjóðinni og ekki heldur íslend-
ingum.
Eflaust er það töluverður hnekkir
fyrir ráðaneyti Christensens, að það
hefir nú loks neyðst til að láta Ai-
berti fara frá, því það munu jafnvel
mótstöðumenn hans játa, að hann hafi
verið mestur atkvæðamaður í því ráða-
neyti.
Mannalát.
Þórdís Jónsdóttir, móðir Bjarna Ein-
arssonar skipasmiðs, andaðist hér í
bæ 16. þ. m. — Jarðarför hennar fór
fram í dag.
Samsæti
héldu um 50 Akureyrarbúar Einari
Hjörleifssyni á þriðjudaginn var. Ingi-
mar Eydal kennari flutti ræðuna fyrir
heiðursgestinum, en kvæði til hans
var sungið, er síra Matthías Jochums-
son hafði ort.
Skip strandar.
*Gwent<, gufuskipið, strandaði við
Langanes í síðustu viku. Menn björg-
uðust allir og var L. Zöllner á skip-
inu. Skipið var fermt kolum.
Sundpróf
verður haldið á tnorgun. Hinir yngri og
óæfðari sundmenn synda í sundstæðinu kl.
9 f. h., en hinir eldri og æfðari á höfninni
fram af nýju hafnarbryggjunni kl. 2 e. h.,
ef veður leyfir; annars í sundstæðinu.
-rvT'* má'iuui* rrrr
Ef þú skuldar
Norðurlandi
ertu vinsamlegast beðinn að borga
skuld þína.
Gjalddagi 7. (yfirstandandi) árgangs
var fyrir miðjan júní.
JÁVMÍRÍSGRJÓN
yfynvyffffvyyvvtvfvnvm
kosta aO elns 20 aura pd f verzlun
Páls Jónssonar.
Tilkynning.
Allir þeir, sem skulda verzl-
undirritaðs og lítil eða engin
skil hafa gert í sumarkauptíð-
inni, mega vissulega búast við
lögsókn eftir 15. ágúst næstkom-
andi, ef peir hafa ekki, fyrir
pann tíma, annaðhvort borgað
skuldirnar eða samið um pær.
Sauðárkrók 15. júlí 1908.
E. Kristjánssor).
ji Ljómandi falleg jC
í karlmanna- í
í fataefni C
með nýustu gerð
■^ nýkomin í ■
■" Vefnaðarvöruuerzlun aa
Sudmanns Sfterfl. mm
.ViVAV.V.V/í
Verzlunin EDINBORG
Akureyri.
]\/í ono Margskonar
jviaca- nýlenduvörur
roni svo sem kaffi, sykur, ex- port, syltetöj, margar teg- undir. Handsápur, kanel, pipar o. fl. nýkomið í
gott og ódýrt í EdinborK' Edinborg.
Strákaðlar Stanga-
Og línuduflin sápa, sem allir kaupa, og
(strigabauur) komin aftur í sólskinssápan fæst ávalt í
EDINBORG. Edinborg.
Nauta- Dilka-
slátur
fást altaf öðru hvoru í
Kjötbúðinni.
Tekið á móti pöntunum daglega.
Sfeinolía
og
smurningsolía
fæst ávalt nóg í verzlun
Sn. Jónssonar.
JVIikið af vörum
nýkomið með síðustu skipum
í verzlun
Sig. Bjarnasonar.
Stríðið
gegn sóttum og sjúkdómi eyði-
leggur oft velgengni margra heim-
kynna, af því réttu meðulin eru ekki
við höfð. Meðal sem yfirunnið hefir
þúsundir sjúkdóma og þjáninga er
hinn verðlaunaði og af læknum ráð-
lagði China Livs Eliksir frá
Waldemar Petersen, Frederikshavn,
Köbenhavn.
8 ára veiklun.
/ hérumbil 8 ár þjáðist eg af mjög
mikilli veiklun i öllum likamanum, sam-
fara magnþrautum, uppköstum, lélegri
meltingu og svefnleysi. Við að neyta
China Livs Eliksirs frá Waldemar Pet-
ersen, fekk eg fljótt bata, svo að nú
er eg orðinn albata og er það sann-
fœring min að með bitter þessum geti
eg fullkomlega haldið heilsu minni við
P. Christenseij.
Vogn pr. Tolne.
10 ára jómfrúgula.
Eg hefi i 10 ár þjáðst af jómfrú-
gulu og samkvœmt ráði læknis míns
reyndi eg China Livs Eliksir Walde-
mars Petersen og hefir hann nú lækn-
að mig að fullu.
Sofie Guldmand,
Randers.
Merkið á China Livs Eliksir Walde-
mars Petersen er Kínverji með glas
í hendinni á einkunnarmiðanum og
enn fremur nafn verksmiðjueigand-
ans Waldemars Petersen Frederiks-
havn, Köbenhavn og stafirnir
á flöskustútnum.
Offo Monsfed8
danska smjörliki
eP ‘bezt
Prentsmiðja Odds Bjömssouar.