Norðurland - 13.05.1910, Page 4
Nl.
80
um málefnið, reyndu að draga fjöður
yfir það, en sviftu hvergi burtu aðal-
atriðunum með ástæðum. Og þegar
það kom fyrir að þau réðust f það,
reyndist það ekki rétt. Þá var vitan-
lega skýrsla rannsóknarnefndarinnar
ekki komin út og því síður andsvör
bankastjórnarinnar við hana. Ætla eg
ekki að minnast þeirra í þetta sinn,
enda verð eg að biðja hreppstj. at-
sökunar á því, að eg hefi hvarflað dá-
lítið frá honum um stund. en eg skal
nú nálgast hann lítið eitt aftur, áður
en eg slæ botninn í þessa grein.
Hreppstj. hnýtir því aftan við þá
tillögu, sem hann hefir eftir mér, *og
stjórn hans m. m.< Það hefi eg aldrei
sagt, og eru því ósannindi af verstu
tegund. Þessa setningu hefir hreppstj.
haft sterka löngun til að segja og koma
henni á prent, en ekki haft djörfung
til þess, og því gripið til þess drengi-
lega ráðs að bera aðra fyrir henni.
En úr því hann á hana, verður hún
að vera hans megin m. m.
A einum stað, í margnefndu ritverki,
getur hreppstj. þess, að mér hafi verið
kunnugt um bréf frá þeim fimm sóma-
mönnum að sunnan. Satt er það að
mörg bréf hefi eg séð og fengið frá
ýmsum heiðvirðum mönnum að sunnan.
En ekkert einasta þeirra, sem eg hefi
séð, er þannig að efni eða útliti, að
þau sæmdu sér ekki eins vel, hvar sem
væri, og það jafnvel í kortaskálum,
eins og sumt stofustássið á Hafsteins-
stöðum. Og ætti það alls ekki illa við
að minnast þeirrar híbýlaprýði dálítið
nánar við hentugleika síðar.
Til uppbótar við þessa grein er eg
ekki ófáanlegur til að lýsa dálítið bet-
ur framkomu hreppstj. á Hafsteinsstöð-
um í stjórnmálum og kanske fl., við
hentugleika, ef tilefni gefst til þess
sfðar.
Pávastöðum 23. apríl 1910.
A. Kristjánsson.
JVIikið afnauðsynjavörum
nykomið í Verzlun
Ka upfélagsins.
Lífsábyrgðarfélagið
Andels-Anstaltet)
sem er stofnað af helztu samvinnufélags-
mönnum Dana og starfar undir eftirliti
ríkisins — gerir íslendingum kost á góð-
um og ódýrum lífsábyrgðum.
Umboðsmenn óskast í öllum sýslum og
kaupstöðum landsins og væri vel fallið fyr-
ir kaupfélagsstjóra að taka það starf að
sér. Umsóknir sendist til undirritaðs aðal-
fulltrúa félagsins á íslandi, er ræður um-
boðsmenn og svarar öllum spurningum því
viðvíkjandi.
Jón Stefánssorj,
Hafnarstræti 3, Akureyri.
Saltket
Opinberf uppboð
verður haldið í Hafnarsfræti 88
þriðjudaginn 17. þ. m.
og par selt hæstbjóðendum ýmislegt lausafé I)estar, kýr o. fl.
tilheyrandi dánarbúi útbússtjóra Friðriks Kristjánssonar. Ennfrem-
ur verður erfðafestuland og kartöflugarður boðnir upp til leigu
um eitt ár.
Uppboðið byrjar kl. 10 f. h. nefndan dag, og verða söluskil-
málar birtir á undan uppboðinu.
Bæjarfógetinn á Akureyri 7. mai 1919.
„spað“ Gúðl. Guðmundsson.
selur
Höepfners verzlun
gegn borgun.
A|s Köbenþavns Margarinefabrik
seiur smjörlíki í stórsölu, mjög gott og ódýrt. Hefir forðabúr á Akur-
eyri. Áreiðanlegum viðskiftamönnum er gefinn langur gjaldfrestur. Pant-
anir og fyrirspurnir má senda til undirritaðs.
Jón Stefánsson.
Hafnarsfrœfi 3. /tkureyri.
Universal
er óskeikult meðal við gigt og taugagigt, viðurkent um allan
heim af þeim, er þjáðst hafa af gigtveiki og meðal þetta hafa
notað.
Universal
er eitt af þeim meðulum, sem sannar gæði sín strax og
byrjað er að nota það. Það deyfir fljótt verstu þrautirnar og
eyðir smátt og smátt kvölunum, og eftir hálfsmánaðar stöðuga
brúkun er, í flestum tilfellum, sjúklingurinn albata.
Universal
hefir útsölumennn um allan heim. Hér á landi fjölgar þeim stöð-
ugt, og má senda umsóknir um útsöluleyfi til þessa blaðs.
Útsölumenn
Af hinum mikilsmetnu neysluföngum með maltefnum, sem
DE FORENEDE BRYGGERIER
framleiða, mælum vér með:
Særlig at anbefaleReconvalesceuter ogAndre,som frænger
til let fordejeligNæring. Det er tiJligeetudmærketMid-
del mod Hoste^Hæshed og andre lette Hals-og Brystonder.
■aramaMBunHMan
er framúrskar-
andi hvað snertir
mjúkan ogþœgi-
legan smekk.
Hefir hœfilega
mikið af,extrakf
fyrir meltinguna.
Hefir fengið
meðmœli frá
mörgum mikils-
metnum lœkn-
um.
Bezta meðal við hósta, hæsi og öðrum kælingarsjúkdómum.
Birgðir hjá:
Strandgötu 35, Oddeyri.
J. V Havsteen.
á íslandi eru sem stendur þessir:
Á Seyðisfirði: Þórarinn Guðmundsson, kaupmaður.
Bjarni Benediktsson, —
Otto Tulinius, —
E. E. Sæmundsen, —
Jóhann Þorsteinsson, —
Önundarfirði: Bergur Rósinkransson, —
Patreksfirði: Pétur Ólafsson, —
Stokkseyri: Hlutafélagið „Ingólfur" —
Húsavík:
Akureyri:
Blönduósi:
ísafirði:
Prcnttmieja Odds Björnssonar,
Lauru-sírandið.
Gufuskipið »Laura«, sem strandaði á Skaga-
strönd, er til sölu. Skipið verður selt að með-
töldum þeim vörum og munum, er í því kunna
að vera 10. júni n. k. og eru lysthafendur beðnir
að senda skrifleg tilboð sín fyrir þann tíma til
undirritaðs, eða sýslumannsins á Blönduósi.
Reykjavík 9. maí 1910.
L. Kaaber.