Norðurland - 21.09.1912, Side 3
kaupir undirritaður
hsesta verði
og borgar með peningum út í hönd.
SlG. SlGURÐSSON.
með áskrúfuðu loki
komu með „Flóru" í
verzlun Sn. /ónssonar.
Ætíð ber að heimta
Kaffibœti Jakobs Gunnlögssonar
þar sem þér verzlið. Smekkbezti og drýgsti kaffibætir. Því aðeins egta að
nafnið JAKOB OUNNLÖGSSON og blátt flagg með hvítum krossi standi
á hverjum pakka.
Skólapiltur.
Reglusamur skólapiltur getur fengið gott
herbergi leigt í vetur með öðrum skóla-
pilti í góðu húsi á Akureyri. Hann getur
og fengið þar keypt fæði og aðhlynningu,
ef hann æskir þess.
Ritstj. vísar á.
Veðursímskeyti til J'IIs.
frá 8. til 14. sept. 1912.
Ak. Gr. S'f. ís.| Rv. Vm. Þh
s. 1.0 -2.0 i-7 -1-3 4.8 2.8 3-6
M. -2.3 -35 0.2 3-9 5-o 6.7 5-8
Þ. 4-3 90 2.7 ú-3 8.0 7.6 5-4
M. io-5 7 5 i°-5 '0-5 9-5 8.0 4-7
F. 10.5 8.5 14.1 12.0 12.0 9-5 8.5
F. 9.0 65 9-5 8-5 7.8 8.2 10.1
L. 8-5 6-5 9-3 8.0 8.7 8-5 10.0
K1 ít'.h.) 6 — 8 - 6 — 6 — 6 — 6 — 6
Vilhjálmur Guðmundsson
bóndi á Ytribrekkum á Langanesi and-
aðist 13. þ. m., merkur maður og vel
látinn. Hans verður síðar minst nánar
hér f blaðinu.
X
TOMBOLA
til ágóða fyrir aðalsamkomuhús bæj-
arins, Good-Templarahúsið, verður
haldin að forfallalausu fyrstu dagana
í október.
Nánar auglýst síðar.
Akureyri 20. sept. 1912.
Tombólunefndin.
í bæjarlandi Akureyrar hafa tapast
ísföð og yfirdýna
aí hnakk.
Finnandi er vinsamlegastbeðinn að skila
því í Kaupfélagsbúðina.
Kensla.
Undirrituð veitir stúlkum tilsögn
í Klæðasaum og útsaum í vetur
eitisog undanfarna vetur.
Margrét Jónsdöttir.
ÍSAFOLD.
Nýir kaupendur að næsta árgangi blaðsins fá þessar sögur í kaup-
bæti, þegar þeir borga blaðið:
1. Fórn Abrahams (600 bls.) eftir Gustaf Jansson.
2. Herragarðssöguna eftir Seimu Lageriöt.
3. Davíð skygna eftir Jónas Lie.
DAVÍÐ SKYGNI er heimsfrægasta saga Jónasar Lie. HERRAGARÐSSAGAN
einkend sömu snild og önnur skáldrit Selmu T.agerlöf. FÓRN ABRAHAMS
einhver frægasta skemtisaga sem getur. Þessar 3 bækur eru í raun réttri
miklu meira virði en verð heils árgangs (4 kr.) nemur.
Menn fá blaðið nú frá I. okt. til ársloka fyrir eina kfónu.
Útsöiumaður blaðsins á Akureyri er herra verzlunarmaður
Aðalsteinn Kristinsson,
og tekur hann á móti pöntunum á blaðinu.
ísafold er hér um bil helmingi ódýrara árgangurinn en önnur innlend blöð
yfirleitt eftir efnismergð. Að réttri tiltölu við verðið á þeim ætti húrt að kosta
8 kr., en er seld fyrir helmingiminna.
Þetta eru hin mestu vildarkjör, sem nokkurt íslenzkt blað hefir nokkurn-
tíma boðið.
ÍSAFOLDAR kaupendur eru ekki látnir borga 1 eyri fyrir það af blaðinu,
sem fer undir auglýsingar. Að því frádregnu, þ. e. án auglýsinga, er hún full-
ar 50 arkir hér um bil árg., sama sem önnur blöð eru yfirleitt í mesta lagi
með auglýsingum, þótt sama sé söluverðið og þau nær öll í minna broti. —
Það er hinn mikli kaupendafjöldi, sem gerir ísafold kleift að veita þessi
stórkostlegu vildarkjör.
Inn á hvert heimili í landinu ætti hún því vissulega skilið að komast
og meira en það.
ÍSAFOLD er landsins langstærsta blað og eigulegasta í alla staði.
ÍSAFOLD er því hið langódýrasta blað landsins.
ÍSAFOLI) er, sem sé, 80 arkir um árið, jafnstórar eða efnismiklar eins og
af nokkuru blaði öðru innlendu, og kostar þó aðeins 4 kr. árg., eins og þau
sem ekki eru nema 5°—60 arkir mest.
ÍSAFÓLD gefur þó skilvísum kaupendum sínum miklu meiri og betri kaup-
bæti en nokkurt hérlent blað annað.
ÍSAFOLD styður öfluglega og eindregið öll framfaramál landsins.
ÍSAFOLD er og hefir lengi verið kunn að því, að flytja hinar vönduðustu
og beztu skemtisögur.
ÍSAFOLD flytur nú öllum blöðum meira af myndum, útlendum og inn-
lendum.
ÍSAFOLD er blaða bezt. ISAFOLD er fréttaflest.
ISAFOLD er lesin mest.
Kaupið „Geysir“-ofna
í verzlun SN. /ÓNSSONAR.
Ketsala til Enjtlands.
Félag í Lundúnum hefir samið við
»Sláturfélag Suðurlands* um kaup á
IOO þúsund tvípundum af nýju keti.
Ætlar fél. að senda skip með kæli-
rúmi til Reykjavíkur f haust til að
sækja ketið. Verðið er 48 aurar fyrir
tvípundið þar á staðnum.
Með þessu er að líkindum opnaður
góður markaður á Englandi fyrir nýtt
(kælt eða fryst) ket héðan. Norðlenzka
ketið ætti þá að geta komist í gott
verð.
‘Unsrmennafélag: Akureyrar*
heldur hlutaveltu í Goodtemplara-
húsinu á morgun.
Vélarbátur ferst.
1
Um miðjan fyrra mánuð fórst vél-
arbátur úr Hrísey með 3 mönnum. For-
maður bátsins var Halldór Sigurbjarn-
arson í Hrísey, en hásetar Stefán Þor-
steinsson úr Hrísey og Magnús Jóns-
son af Arskógsströnd.
Smérsala erlendis.
Nokkuð af íslenzku sméri var ný-
lega selt f Leith fyrir 123 shillings
100 pundin (pundið á 1,12).
Stjórnarráðið'
Oddur Hermannsson lögfræðingur
er orðinn aðstoðarmaður í annari skrif-
stofu stjórnarráðsins, f stað Magnúsar
Guðmundssonar. Marínó Hafstein er
og skipaður þar aðstoðarmaður.
68
»Hann lifir ennþá, en það eru litlar líkur til að
honum batni,« svaraði hann stutt.
Htln gekk hratt inn í húsið og ætlaði inn í stof-
una, þar sem Sveinn svaf, en Krabbe tók fast um
handlegg hennar og hélt henni aftur.
»Þú ættir að hugsa þig um, áður en þú ferð inn
til hans,« sagði hann; »hann hefir barnaveiki, og
þú veizt hve næm hún er; en nú hefir þú svo mik-
ið til að lifa fyór, að jiú ættir að hlífa þér.«
Það var biturt háð í röddinni, sem gerði hana al-
veg kjarklausa.
»Má eg fara inn til hans? spttrði hún nærri því
auðmjúk, án þess að þora að líta á hann.
»Máttu! já auðvitað máttu það, og mér þykir
vænt um að þú vilt það. Drengurinn hefir svo oft
kallað á þig síðan hann varð veikur, að hann ætti
það sannarlega skilið að fá að sjá þig einusinni enn.
Litli, veslings drengurinn minn, barnið mitt!«
Röddin var svo þýð, að henni fanst hvert orð
vera sem ástaratlot.
Hann hjálpaði henni að fara úr kápunni, og hristi
snjóinn af henni með ósjálfráðri umhyggju,
Þegar þau komu inn í dagstofuna, dró hann hæg-
indastól að ofninum.
»Seztu nú niður og vermdu þig, áður en þúferð
inn til hans,« mælti hann. »En hvað er þetta? hér
er þá kalt; eldurinn er dauður í ofninum. Eg lét
fólkið fara að hátta; eg ætlaði að vaka einn hjá hon-
65
umst við langt í kvöld? Er komið nokkurt skeyti
frá járnbrautastjóranum um að lestir séu teptar?
Ester spurði einskis. Hún leit þögul á lestarstjór-
ann, en augnaráð hennar lýsti sárustu örvæntingu.
Og hann skildi þetta tillit, sem var ákveðnara en all-
ar spurningar.
Hann kinkaði vingjarnlega kolli til hennar.
»Við komumst enn áfram, kæra frú; að vísu geng-
,ur það seint, en meðan lestin stöðvast ekki alveg,
förum við þó í áttina,« sagði hann hughreystandi.
»Nú er ekki nema 6 míltir heim til yðar, frú —
og bráðum ekki nema 4«, sagði hann við hana nokkru
síðar. '
En eftir litla stund kom hann aftur og mælti:
»Nú komumst við ekki lengra fyr en upp styttir,
við sitjum fastir í snjóskafli og komumst hvorki á-
fram né aftur á bak. En það er stór búgarður hér
nærri, og þar geta ferðamennirnir líklega fengið að
vera þangað til veðrið batnar. Rað hafa þegar verið
gerð boð eftir sleðum.*
»Eg get ekki verið hér; eg verð að halda áfram;
eg rata heim; það eru ekki nema tvær mílur þang-
að, í mesta lagi; það er miklu styttra en með járn-
brautinni,* sagði Ester í örvæntingu sinni, einbeitt og
ákveðin.
»F*á leið er hvorki stígur né slóð, frú! — þér hætt-
ið bæði lífi yðar og heilsu að fara,« sagði lestar-
stjórinn.