Norðurland - 14.12.1912, Page 4
200
Nl'
°g byggir það upp af árangri hins liðna,
en losar okkur jafnframt við byrði endur-
minninganna. Þýtt.
'4'
Sóttvarnabók
heitir lítið kver, sem nýlega er út gefið
á kostnað landssjóðs Fyrri hluti þess
er að miklu leyti útdráttur úr lögum
um almennar reglur um varnir gegn út-
breiðslu næmra sjúkdóma hér á landi,
en síðari hlutinn er sotthreinsunarreglur.
Hefir landlæknir samið hvorttveggja og
séð um útgáfuna.
Kverið er sent öllum læknum á
landinu til útbýtingar Ökeypis meðal
sýslumanna, hreppstjóra, hreppsnefnda,
bæjarstjórna, heilbrigðisnefnda sótt
hreinsunarmanna og yfirsetukvenna, og
auk þess mega þeir láta eitt eintak
ókeypis á þau heimili, þar sem upp
kemur næm veiki, sem lög skipa varnir
við, og á sóttgrunuð heimili. Aðrir geta
fengið það hjá bóksölum fyrir 20 aura.
Sóttvarnabókin er afarþörf, og ætti
að komast inn á hvert heimili á landinu.
Pinsrkosnínzar i Norezi,
sem nýlega eru afstaðnar, hafa ger-
breytt flokkaskipun þingsins. Stjórnar-
flokkurinn, sem nú er (íbaldsmenn og
hægfara framfaramenn) hafði áður 123
þingsæti, en hefir nú aðeins 24. Fram-
sóknarmenn (radikale Venstre) fengu
75 sæti og jafnaðarmenn 23. Fram-
sóknarmenn einir hafa meiri hluta í
þinginu, en sagt er að eitthvert banda-
lag hafi verið með þeim og jafnaðar-
mönnum, og að þeir muni því taka
þátt í myndun nýs ráðaneytis Þó telja
menn víst, að Gunnar Knudsen, for-
ingi (ramsóknarmanna, muni verða
forsætísráðherra.
Stjórnarskifti verða eigi fyr en í
janúar, er þing kemur saman.
Klrkian.
Síðdegismessa á morgun.
Jólagjafh.
í bókaverzlun Sig. Sigurðssonar,
fást mjög hentugar jólagjafir handa
ungum og gömlum, konum og körl-
um. Það er fjöldi nf ágætum bókum,
t. d barnabækur, guðsorðabækur,
söngbækur, kvæðabækur fræði- og
skemtibækur Ennfremur margir góðir
og gagnlegir munir aðrir.
Munið að
Pijónles
er borgað
langbezt
í
Carls Höepfners
verzlun.
2 hlufabréf
( »Gufubátsfélagi Norðlendinga« eru
til sölu nú þegar, hjá
Friðb. Níelssyni,
Siglufirði.
Hínn heimsfrægi og eini, egta
KÍNA-LÍFS-E LIXIR'
frá Valdemar Petersen í Kaupmannahöfn, fæst alstaðar á Islandi og kostar að
eins 2 KRÓNUR FLASKAN.
Varið yður á eftirlíkingum; gætið nákvæmlega að hinu lögverndaða vöru-
merki, sem er: Kínvetji með glas í hendi, og firmanafnið Valdemar Petersen,
Frederíkshavn, Köbenhavn og merkinu t grœnu lakki á flöskustútnum.
Vindlar
eru öllum tóbaksmönnum kærkomin jólagjöf.
Rúmar 70 tegundir,
með mjög mismuaandi verði fást í
T Ó.B AKSVERZLUN
Jóh Ragúelssonar.
!
4
t
s* í jólasvuntur
fallegast og odýrast í
verzlan Sn. /ónssonar
• ■ •
r E-Q-G ^ eru keypt haU Verðí fyrst urn sinn í l Gránufélaasverzl"! i il
á Oddeyri. d
• ML •
142
vinir, en þau mintust aldrei á hið umliðna, þau
virtust aðeins lifa fyrir það starf, sem þau höfðu gert
að takmarki sínu framvegis.
En þó leið ekki á löngu áður þau fóru að finna
til þess að þau vantaði eitthvað, sem öll sameiginleg
störf þeirra gátu ekki bætt úr. — Eftir því sem
þeim varð uppeldisstarfið léttara og áhyggjuminna,
eftir því fundu þau betur til þess hyldýpis sem
skildi þau. Krabbe leitaði æ sjaldnar samveru Ester
og fór að verða þögull og fáskiftinn; hann forðað-
ist oft að vera hjá Ester, einmitt þegar hann þráði
mest návist hennar. Stundum datt honum í hug að
rjúfa þann garð, sem fortíðin hafði hlaðið milli
þeirra, og segja henni alt, — segja henni að hann
væri búinn að gleyma og fyrirgefa henni, ef nokkuð
væri að fyrirgefa, segja að hann elskaði hana ákafar
og innilegar en nokkru sinni áður; en þegar hann
kom til Ester, hætti hann æfinlega við það.
Hún var svo róleg og ánægð. Börnin voru orðin
yndi hennar. Hún fann fullnægju í starfi sínu.
Hún var svo falleg og svo hraustleg. — Hún
hafði fundið hvíld við starf sitt, hún saknaði einskis.
Pannig hugsaði hann, varpaði öndinni mæðilega og
hætti við að tala við hana.
* *
*
Annað sumar eftir dvaldi Ester einnig með börnin
hjá Vatnshorni og Lilja systir hennar hjá henni.
Pó að þangað væri langur vegur og erfiður, kom
143
Krabbe oftast einu sinni í viku til að finna þau og
stóð þá við nokkra tíma. Regar hann kom ekki sjálf-
ur, skrifaði hann Ester á hverjum degi. Bréf hans
voru æfinlega fjörug og skemtileg; honum var orð-
ið miklu léttara um að skrifa henni en að tala við
hana.
Ester hafði tekið eftir þeirri breytingu, sem orð-
in var á Krabbe, og var mjög hrygg og óróleg yf-
ir því. Henni fanst hún sjá það æ skýrar í hvert
sinn sem hún sá hann. Hvað gat það verið, sem
lá svo þungt á honum? Stundum vaknaði hún um
miðjar nætur og varð andvaka við að hugsa um, að
hann væri einn heima og hefði engan til að tala
við, og þá langaði liana svo innilega mikið til að
fara heim, koma alt í einu, óvænt, setjast við hlið
hans, leggja höfuðið að brjósti hans og gráta burt
allan hinn innbyrgða söknuð sinn og harm, og biðja
hann að leggja sorg sína við sorg hennar, svo að
þau gætu borið byrðina sameiginlega, eins og áður.—
Nei, öll þessi lön^un hennar var heimska! — Hann
hafðí gefið henni hina tryggu, ósíngjörnu vináttu
sína og gert henni lífið aftur mikilsvert og nytsamt;
gat hún krafist meira?
* *
*
Ester stóð með bréf í hendinni, sem hún var ný-
búin að fá. Það var í þetta sinn aðeins örfáar lín-
ur frá Krabbe, en efni bréfsins virtist þó hafa mjög
ORGEL
óskast til leigu nú þegar, — Adam Þor-
grímsson vísar á.
Abyrgðatmaður: Adam Þorgrímsson.
Frentsmiðja Odds Björnssonar,