Norðurland


Norðurland - 14.08.1915, Page 1

Norðurland - 14.08.1915, Page 1
NORÐURLAN D. 30. blað. Akureyri 14. ágúst 1915. XV. ár. Þorgils Gjallandi. Af hörpu íslands enn er skorinn strengur, sem átti kraft að „giállaa hœrra og lengur. Tónninn hans umdi altaf hreinn og djúpur með andans dýru lisi i hljömnum þeim; hver ómur lagðist likt og sólskins hjúpur um lif þess manns, sem unni snjöllum hreim. Svo bresta þessir — eins og allra hinna, sem aldrei gátu’ úr heimi hjartna sinna eitt orð, einn tón á auðnir lifsins borið, sem yl og Ijóma bæru þreyttum hug, sem aðrir máttu gefa von og vorið, og vængjastyrk að þreyta lífsins flug. Til hvers er heimi gefin skáldsins göfgi: glgjunnar hvassi og bliði söngvahöfgi? Til þess að vekja og slá á hjartastrengi, stefnurnar marka og benda á hærri mið. Pví mega ei þessir lifa og starfa lengi, langdegi heimsins fylla djúpum klið? Slá þeir á bak við dökka lieljar húmið höfgara streng, svo endurkveði rúmið? Ljóða þeir þaðan angurmœddri œfi eilifðarsöng i gegn um dulin skyn? Senda þeir hingað hljóm af himinsævi, sem hittir brjóstsins djúp á grátnum vin ? Tap er það samt að sjá þá héðan hniga: sízt má hún Jörð vor missa þá, sem stíga upp yjir múgsins myrku leið, og fœra mannlífi gull úr andans tigna sjóð, þá, sem „við fossa“ hörpustrengi hrœra, hlýtt yfir láðið sýngja óort ijóð. Svo gerði Porgils. Pann skal Frón vort muna þó að það höggvist eggjum Jrera og bruna. Fljá þeim, sem báru ijós á landsins vegi letrast skal nafn hans dýrri þakkar-rún, hjá þeim, sem djarft á dimmum œfilegi dröfnina klufu möti sólar-brún. Jón Björnsson. í SM&r ÍAitóí Gríðar mikið úrval af karlmanna- og unglingafatnaði er nýkomið og selst mjög ódýrt. Bi a uns vei zlun. Bald. Ryel. Fv : 5 Wm H mk wm ww Frá blóðvellinum F’ar hafa orðið þau tíðindi að Rússa- her hefir hörfað undan á allri herlín- unni frá Eystrasalti suður að Rúmen- íu. Þjóðverjar hafa tekið Windau við Eystrasalt og sitja um Riga, eru þó enn á vestari bökkum Dwinafljótsins en borgin Riga stendur rétt austan við fljótsósinn. Skömmu eftir að Þjóð- verjar voru seztir í Windau kom upp eldur á ýmsum stöðum í borginni og brann hún til ösku en Rússar höfðu flutt alt fémætt og öll matvæli burtu þaðan áður en þeir yfirgáfu hana. í Póllandi hafa verið harðar orustur er lyktuðu Pjóðverjum í vil svo þeir tóku höfuðborgina Warsjá, en síðustu símskeyti til Reykjavíkurblaðanna segja, að Rússar séu farnir að skjóta á War- og geri harðsnúnar tilraunir til þess að taka hana aftur, en Pjóðverjar séu kornnir yfir Austur-Weichsel hafi um hringt síðasta vígi Rússa við Weichsel- f|jótið svo Rússar eigi óhæga aðstöðu h* sóknar á borgina. Pá eru og Pjóð- verjar taldir í þann veginn að taka Kovno borg í Vestur-Rússlandi með nálægt 75 þús. íbúa, vel víggirta. Rúss- ar hörfa undan í fullri reglu og fara sér að engu óðslega og brenna og svíða land sitt sem þeir yfirgefa svo að þar er engrar bjargar að vænta fyrir her Pjóðverja og Austurríkismanna er rekur á eftir. — Italir hafa aftur unnið mikinn sigur skamt frá Görz en nokkuð lengra inn í landi. Eins og kunnugt er, hata nokkrir íslendingar írá Kanada gengið í her Englendinga. Á meðal þeirra er skot- kappinn frægi, Jóh. Austmann, sem hefir verið tekinn höndum af Þjóðverj- um. Annar er Kolskeggur Þorsteins- son, frá Winnipeg, sem þetta bréí ritar í Hkr. Nettley Hospital. Englandi, 29. apríl 1915- Elsku mamma! Nú loksins ætla eg að láta þig vita, hvers vegna eg er staddur hér á Englandi, en ekki í skotgröfunum að berjast, eins og hver annar verðugur brezkur þegn. Sfðastliðna þrjá mánuði höfum við verið í yrringum við þá þýzku hér og hvar á Frakklandi og Belgíu. Fyr- ir 2 vikum gerðum við áhlaup á »Hill 6o< nálægt Ypres, og tókum aftur fallbyssurnar og hæðina sjálfa, sem var nokkurs virði; auðvitað mik- ið mannfall f svo hörðum slag; en samt unnum við og það var mest um vert. í þessum slag særðist eg á þann hátt, að sprengikúla sprakk svo sem 3 fet fyrir framan mig; en á milli mín og kúlnanna var hlaðinn veggur af pokum, fyltum með mold; alt fór það f háaloft og smábitar af kúlunni í gegn og í mig, og mikið af þessu skrani féll ofan á mig, svo þegar eg náðist, mun eg hafa verið óásjálegur. Eg fékk brot úr kúlunni gegnum eyr- að og ofan á hálsinn, og svo nokkur sár og marbletti. Eg var fluttur á Nettley Hospital á Englandi og skor- inn upp og bitinn tekinn úr hálsinum, og sendi eg þér hann ásamt 4 spil- um, sem fundust f fataleifunum utan af mér; þau sýna þér að brotin voru mér nærgöngul. Byssan mfn var hjá mér; hún var eyðilögð. Sjálfum líður mér ágætlega; hefi haft góða hjúkrun og góðan bata og vona að komast á fætur eftir v>ku hér frá. Svo fæ eg svo sem viku frf- tíma; og þar á eftir held eg til Frakk- lands aftur. Þú heldur kanske, mamma, að mig langi heim. Nei! Strax og eg gat farið að stíga á fætur, var hugurinn allur hjá barnamorðingjunum þýzku. Þeir þurfa að fækka, og vil eg eiga þátt f. Eg skal skrifa aftur áður en eg fer. Verið þið blessuð ng sæl! Þinn elskandi sónur. Kolskeggur Porsteinsson. ..QoBafoss" komst heilu og höldnu með farm sinn, ull og hesta, - til Kaupmanna- hafnar á áætluðum tfma, eða þó öllu fyr. Var enginn farartálmi á vegi hans og fylgir lánið Júlfusi skipstjóra að vanda. Fyrlrlestra um yuðspeki hefir ungfrú Eva Blytt frá Kristjan- fu haldið hér f leikhúsinu undanfarin kvöld, fjóra als. Ungfrú Blytt kom hingað á »Flóru« um daginn, og bjó hjá Axel Schiöth brauðgerðarmeistara og frú hans, meðan hún dvaldi hér, en fyrirlestrana hélt hún að undir- lagi guðsspekistúku þeirrar sem er hér í bænum, og var öllum boðinn aðgangur ókeypis. Ungirúin kvað hafa starfað mikið f þágu guðspekis hreyfingarinnar f föðurlandi sínu og er að sögn vel máli farin. Héðan fór hún á »Gullfossi« til Reykjavíkur og mun einnig ætla að »stfga f stólinn« þar, þvf þar hefir guðspekisstúka einn- ig starfað um nokkur undanfarin ár. Vefnaðarvöruverzlun Gudmanns Ef te rfl. Stærst úrval. Lægst verð. Saumastofa Gudm. Efterfl. saumar allan klæðnað handa körlum og konum eftir nýjustu tízku. ,T—U—X—H—A—M* h r á 01 f u v é 1 er áreiðanlega bezt og lang ódýrust til notkunar og að verði sbr. ritgerð í fiskifélagsblaðinu »Ægir« 5 tölubl. þ. á. blaðsfðu 60—61 sem ennfremur var prentuð í 26 tölubl. »Norðurlands«. Umboðsmaður fyrir Rorðurland J. V. Havsteerj sem gefur allar nánari upplýsingar og tekur við pöntunum. Eimskip norskt strandaði á Siglufirði um fyrri helgi og fór ræðismaður Norðmanna O. C. Thorarersen þangað vestur í vikunni, til rannsókna um strandið, og kom heim aftur í gær. Eigandi skipsins var sjálfur á því er það strandaði. Hann fékk svo með aðstoð ræðismannsins björgunarskipið »Geir« til þess að reyna að ná skipinu á flot aftur, og hepnaðist það að lokum svo vel að talið er að hægt verði að gera það sjófært aftur, Rösklr ferðamenn. Péturjónsson alþingismaður fráGaut- löndum og Oddur Björnsson prent- smiðjueigandi frá Akureyri komu hing- að til bæjarins (Reykjavfkur) f gær (10 Júlf). Gengu þeir af Goðafossi á Borðeyri, fóru landveg þaðan að Saur- bæ á Hvalfjarðarströnd á 21 klukku- stund en þangað voru þeir sóttir á motoibát og fluttir hingað. Als voru þeir 24 klukkustundir frá Borðeyri til Reykjavíkur — og mun það vera fljót- asta ferð sem farin hefir verið milli þeirra staða. (Morgunbl,) Brúin á Eyiafjarðará kemst víst varla á fyrst um sinn. Utlit fyrir að fjárlaganefnd Neðri deildar verði ófáanleg til þess að taka hana á frumvarp sitt og þá munu litlar líkur til að fylgi fáist fyrir fjár- veitingu til hennar f deildinni að þessu sinni. Er það úr hófi slæleg framganga af þingmönnunum fyrir Norður- og Austurland, ef svo fer enn á þessu þingi, að brúargerðin verði að bíða um óákveðinn tfma.

x

Norðurland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norðurland
https://timarit.is/publication/203

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.