Óðinn - 01.07.1908, Page 5
1
ÓÐINN
29
Til ólympisku leikanna
í Lundúnum í sumar fóru hjeðan 7 ungir
menn: Guðmundur Sigurjónsson, Hallgrímur
Benediktsson og Sigurjón Pjetursson, allir versl-
unarmenn frá Reykjavík, Jóhannes Jósefsson
og Jón Pálsson, báðir frá Akureyri, Pjetur Sig-
fússon frá Halldórsstöðum í Þingeyjarsýslu og
Páll Guttormsson frá Seyðisfirði.sonur Guttorms
alþm. Vigfússonar.
Ætlunarverk þeirra var að sýna íslenska
glimu og höfðu þeir glímt tvisvar í Lundún-
um, er frá þeim frjettist síðast, og ætluðu
að sýna glímuna síðar víðar í Englandi.
Jóhannes Jósefsson tók þátt í hinum
grískrómversku glímum á leikunum og var
einn af fjórum mönnum, er glíma skyldi þar
lokaglímuna fyrir verðlaunum. En nýkomið
skeyti segir, að hann hafi orðið að ganga þar
úr leik, ekki verið sigraður, en ekki heldur
fengið verðlaun.
Jóhannes var foringi þessarar Lundúna-
farar, en dr. Helgi Pjeturss, sem staddur
var um þetta leyti í Lundúnum, leiðbeindi
glímumönnunum þar fyrstu dagana.
Myndin, sem lijer fylgir af Jóhannesi, er
tekin fyrir tveimur árum.
í skóginum.
I. ljj>i>i í Snðurmörk.
Loggeislar líðandi sólar
leiftruðu á hverri björk,
und eikinni ein við sátum
þann aítan í Suðurmörk.
Kveldmóða. Hvelfdur himinn,
og kvakað greinum frá.
Hið andvaka heimsborgarhjarta
heyrðist úr fjarlægð slá.
Við horfðum hrifln og þögul,
þú hallaðist mjer að barm
og vafðir mjer hlýtt að hálsi
þeim hvita, fagra arm.
Pað var sem við værum í austri
tvö viðkvæm lótusblóm,
er sæu sólguðinn hverfa
með söng og gígjuhljóm.
JÓHANNES JÓSEFSSON.
Pó heimsins hjarta ólg'i,
það heyra’ ei in hvítu blóm,
því sál þeirra líður í leiðslu
að Ijóssins helgidóm.
Um all það, sem okkur dreymdi,
veit að^eins hin þögula björk.
Jeg gleymi aldrei þeim aftni
þar uþþi’ í Suðurmörk.
II. Björkin.
I fjarlægð við hyldýpisliafið
jeg hugsa’ um þá tignu björk;
yfir eikum og álmi hún gnæfir
þar uppi’ í Suðurmörk.
t skærri drotningar-skikkju,
skrúðlaufguð, tigin og hrein,
umkringd af blaðfögrum beiki-
höðmum — og þó svo ein.
Hví verð jeg harmblíðuliljóður,
er hugsa’ eg um þessa björk ?