Óðinn - 01.03.1910, Blaðsíða 1

Óðinn - 01.03.1910, Blaðsíða 1
ÓÐINN 12. BLAU MARS lllio. V. ÁR Björn Ölafsson augnlæknir. Hann andaðist hjer í Heykjavík 19. október síðastliðið haust. Hann var fæddur 11. april 1862, sonur merk- ishóndans Ólafs dannebrogsmanns Sigurðssonar í Ási í Skagafjarðarsýslu, og ólst upp þar nyrðra lijá foreldrum sínum. Ur lat- ínuskólanum útskrifaðist hann 1884 og af læknaskól- anum hjer 1888, fór svo til Khafnar til þess að full- komna nám sitt, eins og gerist, en jafnframt tók hann að leggja stund á augnlækn- ingar hjá prófessor Hansen Grut og var við það nám um tveggja ára tíma. an var ur hjeraðslæknir vallasyslu, eftir lát læknis Pjeturssonar, en fjekk svo aukalæknisemhætti á Akranesi frá l.júlí 1890, er Olafur læknir Guðmundsson llultist þaðan í Rangárvalla- læknishjerað. Þessu embætti gegndi Björn til nýárs 1894, en settist þá að hjer í Reykjavik og fjekst úr því eingöngu við augnlækn- ingar. Hafði alþingi 1893 veitt honum 2000 kr. ársstyrk í þessu skyni og lijelt liann honum alla tíð siðan. Skilyrði fyrir styrknum var það, að hann hefði á hendi kenslu í augnlækningum við læknaskólann hjer og ferðaðisl á sumrum með strandferðaskipunum kringum landið, til þess að almenningur ætti sem hægast með að ná til hans, enda dvaldi hann kaíla úr hverju sumri ýmist norðanlands, austanlauds eða vestanlands. Á þess- um ferðum leituðu hans margir, enda fór mjög mikið orð af lækningum hans. Björn er fyrsti íslenski læknirinn, sem sjer- staklega hefur lagt fyrir sig augnlækningar og gert sjer þær að atvinnu. Til þess tíma, er hann sett- ist hjer að eftir nám sitt í Danmörku, var ekki um að tala að hjer á landi væri liægt að fá hjálp í hinum erfiðari augnasjúkdómum, svo að þeir, sem þá sjúkdóma höfðu, urðu að Ieita sjer lækningar út úr landinu, er flestum var ofvaxið og margir drógu svo lengi, að í ótíma var komið, þegar þeir loksins tóku það ráð. Á fyrstu árunum eftir að Björn kom lil landsins leituðu margir til hans, sem verið liöfðu sjónlausir árum saman af augnsteinsblindu, (cataract) og fengu aftur fulla sjón. 1*6113 var svo óvenjulegt hjer á Iandi þá, að mjög mikið var um það talað og að því dáðst. Björn hafði notið kenslu frægasta augnlæknis Norðurlanda, sem áður er nefndur, og var ágætlega vel að sjer í sinni ment, samviskusamur lækn- ir, handlaginn og gætinn. Síðasta árið, sem Björn lifði, hafði hann nýja aðferð, sem upp var fundin af norskum lækni, við einn af hinum hættulegustu og erfiðustu augnasjúkdómum, star- hlinduna, og gafst sú aðferð vel. Björn var maður vel greindur, hygginn og gæt- inn í öllu. Hann var vinsæll maður, fár í fyrstu viðkynningu en glaðlyndur í kunningja hóp, og því lengur sem menn kyntust honum, þess meiri mætur fengu þeir á honuin. Hann var kvæntur Sigrúnu ísleifsdóttur prests Gíslasonar, er síðást var i Arnarbæli, og lifir hún mann sinn ásaml tvcim dætrum þeirra ungum. — /.

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.