Óðinn - 01.03.1910, Blaðsíða 3

Óðinn - 01.03.1910, Blaðsíða 3
Ö Ð I N N 91 <€ <§ <€ Stærsta sönghöll heimsins. Albertshöllin (Roj'al Albert Hall) í Lundúnum. Albertshöllin er stærsta songhöll í heimi. Hún var reist á árunum 1867--71 og kostaði 200,009 pund sterling (3,600,000 kr.). Húsið er í laginu eins og sporaskja, mesta lengd þess 270 fet1, mesta breidd 240 fet, en um- málið 810 fet. Að innan er húsið all einn salur. Þar er söngpallur með mörgum bekkjaröðum, hverri upp af annari; hann rúmar 1000 söngmenn; hann sjest á miðri myndinni baka til. A gestapöllum er golt rúin fyrir 8000 manns og má vel koma fyrir 1000 manns í viðbót. Sjálfl gólfið (arena) er 100 fet á lengd og 70 fet á breidd; það sjesl mest alt á myndinni, framan til; á því eru sæti (forsæli) fyrir 1000 manns. Umhverfis gólfið er hringpallur (amphitheatre) með 10 bekkjaröðum út og upp; þessi bringpallur rúmar 1360 manns. Þá koma 3 setpallar, hver upp af öðrum; þeim er skift í seturúm (boxes); 1) Hjer er alstaðar átt við ensk íet. á neðsta pallinum eru 8 stólar í hverju seturúmi, á miðpalli 10, en 5 á efsta pallinum. Fyrir ofan efsta setpallinn er hápallur (bal- cony) með 8 bekkjaröðum. En efst er loftpallur (gallery), sem rúmar 2000 manns; þaðan er fag- urt að Iita um alla höllina. Pallarnir ganga allir i boga og vita móti söng- pallinum. Á myndinni sjer ekki í annað af þeim en endana, næst söngpallinum. í þessari sönghöll er geysistórt organ, eitt hið stærsla í heimi. I því eru því nær 9000 söng- pípur og belgirnir svo stórir, að tvær gufuvjelar eru liafðar til að blása. Organið sjest á myndinni, upp af miðjum söngpallinum. ^ Lundúnaborg er nú á dögum miðgarður mann- kynsins. Hún er stærst allra bæja í heimi, mann- fjöldinn kominn hált upp i 7 miljónir. Þar mæt- ast menn úr öllum ríkjum veraldar. Þegar jeg kom til Lundúna fyrir nokkrum árum, fór jeg eitt sinn að hlusta á söng í Albertshöllinni; förunautur minn var lengra að kominn; hann var sunnan úr Ástra-

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.