Óðinn - 01.03.1910, Qupperneq 9

Óðinn - 01.03.1910, Qupperneq 9
Ö Ð I N N 97 Jón hreppstjóri er fæddur á Kolbeinstöðum i Hnappa- dalssýslu 5. nóvember 1831. Foreldrar hans voru Jón bóndi á Kolbeinsstöðum Jónsson og kona lians Val- gerður Guðmundsdóttir, bæði af Mýramanna-ætt. Hjá peim ólst liann upp lil 15 ára aldurs. Fór hann pá til Þorsteins prófasts Hjálmarsens í Hítardal og var sveinn bans og skrifari 6 ár. Þá var Jón nokkur ár við smiðar og verslunarstörf í Stykkishólmi hjá hinu góðkunna prúðmenni Páli verslunarstjóra Hjaltalín. 1862 rjeðst bann bókhaldari við verslun etatsráðs Hans A. Clausens í Ólafsvik og fór mcð pað starf í 12 ár; en pá veitti verslun peirri forstöðu liinn mesli röggscmdar og reglu- maður, Toríi Thorgrímsen. Pví næst keypti Jón höf- uðbólið Brimilsvetli, milli Höfða og Ennis, og bjó par rausnarbúi næstu 18 ár. Þá tók hann Olafsvík til á- búðar og bygði par vandað og stórt íbúðarhús (sem nefnt er Gimli) og hefur í pví l)úið síðan. Eftir nokkur ár ljet hann af búskap og slepti ábúð í Olafsvik, og hefur síðan lifað umsvifaminna. 1874 kvæntist hann Júli- önu M. Tómasdóttur hreppstjóra á Ingjaldshóli Eggerts- sonar, en hún ljest ári síðar. Við opinber störf hefur Jón hreppstjóri verið riðinn sem nú verðurtalið: Hreppsnefndaroddviti 18 ár, sýslu- nefndarmaður 15 ár, safnaðarfulltrúi 10 ár, hreppstjóri í Neshreppi innan Ennis 17 ár, sáttasemjari 10 ár, um- boðsmaður sýslumanns við tolleftirlit og afgreiðslu skipa í Olafsvík 35 ár, skólanefndarmaður i Ólafsvik 10 ár. Umboðsmaður Arnarstapa-, Skógarstrandar- og Ilall- bjarnareyrarjarða var hann skipaður 5. mai 1886, en Ijet af pví starfl 1. okt. 1892, er sala pvarr á lifandi sauðfje til Bretlands. — Síðastliðið vor ljct liann af hreppstjórn. Að vallarsýn cr Jón hreppstjóri i liæsta meðallagi, prekinn við hóf, teinrjettur, limaður vel, snyrtimannlegur í hreyfingum öllum og höfðinglega á fót kominn. Tvivegis hefur sýslunefnd Snæfellinga, eftir ósk hreppsbúa Jóns, lagt til, að liann hlyti nokkura opin- bera sæmd fyrir langa og góða pjónustu i parfir hins opinbera; en ekki hefur úr pvi orðið, hversu sem við veit. Sennilega hefði pó dannebrogskrossinn verið eins maklega niður kominn hjá honum sem einhverjum öðrum. Og vist er um pað, að par pykjast Jöklamenn eiga til sæmdarmanns að horfa, sem Jón hreppstjóri er. Kinar Þorkelsson. Jón Andrjesson. Eftir skotska skáldið Róbert Burns, pýtt af Gisla Brynjólfssjmi (liklega um 1850). Kvæðið er ekki prentað i ljóðmælum Gísla, en hjer prentað eftir eiginhandar- rili hans, sem er í Fiske-safni í bókasafni Cornell-háskóla. Jón Andrjesson, ó Jón minn, er jeg þig í fyrstu sá, þitt var hrafnsvart hárið og hýr þú varst á brá; nú hár þitt er sem hrím, Jón, hvítnaður skallinn þinn; en æ hann drotlinn annist, Jón Andrjessonur minn! Jón Andrjesson, ó Jón minn, við jafnt upp genguin hlíð, og sveina’ í glaumi saman sátum marga tíð; nú löbbum við of leið, Jón, en leiðumst niður kinn og áum undir saman, .lón Andrjessonur minn! (íöiig-uskarfar. í haust er leið preyttu menn kapp- göngu á Englandi; keppinautarnir áttu að ganga 24 stundir samfleytl og reyna hver lengst kæmist. Ham- mond nokkur frá Lundúnum komst lengst, 187‘/> röst. Einn fimtugur maður gekk 125 rastir á sama tima. Hjer á landi hafa oft verið uppi miklir göngumenn, og sögur farið af, sem ótrúlegar pykja. Pað er sögn Páls Melsteðs, að Jón heitinn Thorsteinsen landlæknir hafi einu sinni á vetrardag farið gangandi frá Odda á Rangárvöllum eftir morgunmjaltir, og' náð í húslestur heima hjá sjer um kveldið i Nesi við Seltjörn. Hann var annálaður göngumaður. Pað fylgir sögunni, að gang- færið hafi verið hið besta og hann farið beinustu leið; mun sú vegalengd nema 80 röstum, í minsta lagi, og er pað röskur gangur á einu dægri. G. li.

x

Óðinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.