Óðinn - 01.12.1910, Síða 1
OÐINN
Stephán G. Stephánsson.
Vestur-íslendingar hafa á síðustu áratugum
lagt eigi lítinn skerf hlutfallslega til íslenskra bók-
menta, og liöfuð-skáld
þeirra er sá maður,
sem hjer fylgir mynd af.
Kvæðasafn hans hef-
ur komið út hjer í
Reykjavík í 3 bindum,
tvö hin fyrri 1909, en
hið þriðja í sumar.
Það er gefið út af
nokkrum Islendingum
vestra og hefur hr.
Skafti B. Brynjólfsson
í Winnipeg, er dvaldi
lijer heima um hríð,
haft aðalumsjón með
útgáfunni. Kvæðasafn-
ið heitir »Andvökur«
og kostar í kápu 6 kr„
en í skrautbandi 8 kr.,
öll bindin.
Stephán G. Stepháns-
. son er ættaður úr .
Skagafirði, fæddur þar,
á Kirkjuhóli, 3. okt.
1853 og ólst upp þar í
Skagafirðinum, hjá for-
eldrum sínum, til tví-
tugsaldurs, en fór þá
með þeim vestur til
Ameríku og hefur eigi
komið til íslands sið-
an. Nú lengi hefur
hann verið hóndi vest-
ur undir Klettafjöllum,
í Albertafylki í Canada.
St. G. Stephánsson' varð fyrst kunnur fyrir
kveðskap sinn á árunum eftir 1890, er Jón Ólafs-
son var blaðamaður vestra. Hjelt Jón kvæðum
hans mjög fram i blöðum sínum. Á þeim árum
kom út eftir Stephán Htið kvæðakver vestra, »Úti
á víðavangi«. Nokkrum árum síðar, um alda-
mótin, gaf Jón Ólafsson út eftir hann hjer í Reykja-
vík kvæðabálkinn »Á ferð og ílugi«. Á síðari ár-
um, nú um langt skeið,
liafa blöð og timarit
Vestur-íslendinga flutt
eftir hann fjölda kvæða.
Öllu er þessu safnað
saman í »Andvökum«,
enda er það safn mik-
ið að vöxtum, nær
900 bls. alls.
I}að er orðinn siður
eða venja, að hrósa
öllu, sem kemur frá
St. G. St. Þar vestra
er það að líkindum af
því, að hann hefur ort
þar meira eða minna
í öll blöð og öll tíma-
rit. Hann er að þessu
leyti Matthías Vestur-
íslendinga. En hjer
heima mun það vera
af því, að hann er
nógu langt í burtu.
Því er líka svo var-
ið, að margt er i kvæð-
um St. G. St., sem hrós
á skilið: hnittnar og
smellnar stökur, falleg,
skynsamleg og vel orð-
uð kvæði.
Hefði þetta verið
valið úr og geíið út,
en annað ekki, þá
hefði verið betur sjeð
fyrir skáldfrægð liöf-
undarins en með þriggja binda útgáfunni. Því þar er
svo margt, sem ekki á þennan vitnisburð skilinn,
margt, sem að skaðlausu hefði mátt verða eftir heima.