Óðinn - 01.12.1910, Side 7
ÓÐINN
71
allar tær af báðum fótuni og kól einnig mikið á úln-
liðum og höndum«.
Hjer fara á eftir stutt æfiágrip þeirra tveggja
manna úr þessari för, sem enn eru á Iífi og myndir
eru af hjer á undan:
Guðmundur Pálsson er fæddur í Útey í Laug-
arda^í í júnímánuði 1833. Voru foreldrar hans
Páll Guðmundsson og Margrjet Sturludóttir. Hann
var hjá foreldrum sínum þar til vorið 1856 að
hann fluttist að Hjálmsstöðum og byrjaði þar bú-
skap. Kvæntist hann þá Önnu dóttur Jóns Jóns-
sonar, er bjó á Hjálmsstöðum lengi næstur á und-
an Guðmundi. Var þetta vorið næsta áður en Guð-
mundur varð fyrir því áfalli, sem áður er frá sagt.
Á fyrsta eða öðru búskaparári hans geisaði
fjárkláðinn. Varð hann þá að skera niður fjenað
sinn allan. Það leit því alt annað en glæsilega út
fyrir honum á fyrstu búskaparárunum.
Vorið 1864 misti Guðmundur fyrri konu sína;
höfðu þau þá verið 8 ár saman í hjónabandi og
eignast 6 börn, en af þeim börnum eru nú að eins
tvö á lífi. Nokkru siðar kvæntist Guðmundur í
annað sinn og gekk þá að eiga Gróu Jónsdóttur
yfirsetukonu. Var hún alsystir fyrri konu hans.
Með henni eignaðist hann 11 börn og eru nú að
eins fjögur þeirra á lífi; þar á meðal er Páll hrepps-
nefndaroddviti á Hjálmsstöðum. Gróa andaðist
haustið 1894, en húskap hjelt Guðmundur á-
fram til vorsins 1901. Hafði hann þá búið á
Hjálmsstöðum í 45 ár. Þá tók við jörðinni Páll
sonur hans og hefur Guðmundur verið hjá honum
síðan.
Guðmundur er greindur maður og fróður um
margt, hefur verið hneigður til bóka og lesið mikið,
enda var lengi vel fram eftir árunum mestur bóka-
forði lijá honum í Laugardalnum, og mestalt voru
það fræðihækur, er hann átti. Guðmundur hefur
fengist töluvert við skepnulækningar og lánast það
vel. Hann hefur verið úrræðagóður og fljótur til
hjálpar hver sem í hlut hefur átt. Fylgst hefur
hann vel með tímanum og unnað mjög öllum
framförum, enda gjörði hann miklar jarðabætur á
bújörð sinni síðustu búskaparárin, þótt hann þá
væri orðinn aldraður.
Guðmundur er vel meðalmaður á liæð, þrek-
legur og karlmannlegur; mun hann hafa þótt glæsi-
menni á yngri árum. Hraustur hefur hann verið
og harðfengur, enda oft komið í krappann dans
og því þurft á karlmensku að halda. Hann hefur
verið einbeittur og orðheppiun og óveill að láta
sannleikann koma í ljós, jafnt við æðri sem lægri
og ekki síst við þá, sem miklir þóttust. Honum
þótti lengi góður sopinn og var þar ekki heiglum
hent að drekka til jafns á móti honum fremur en
Agli Skallagrímssyni, því ekki hallaðist karl af
öllu fram eftir æfinni, og ekki verður honum enn
þá neitt flökurt af að súpa á staupi, þótt hann
gjöri nú reyndar orðið mjög lítið að því á seinni
árum.
Enn þá er hann allvel ern og furðanlega heilsu-
góður. Fyrir löngu er hann orðinn hvítur fyrir
hærum, en ólotinn er hann og allfrár á fæti; eru
ekki nema rúm tvö ár síðan hann síðast gekk
heiman frá sjer og suður í Reykjavík á tálausu
fótunum og bar ekki á að honum yrði mikið um
það. Myndin, sem hjer fylgir af Guðmundi, er
tekin fyrir fjórum árum.
Pjetur Einarsson er fæddur í Reykjavík 7.
maí 1832; voru foreldrar hans Einar Jónasson versl-
unarstjóri og Margrjet Höskuldsdóttir. Þriggja ára
gamall misti hann föður sinn; giftist móðir hans
þá aftur og fluttist með manni sínum að Ivolla-
firði og síðar að Esjubergi. Var Pjetur hjá móðir
sinni og stjúpa þar til hann var 10 ára gamall.
Fluttist hann þá að Múla í Biskupstungum til Eg- -«=
ils Pálssonar, er þar bjó lengi, og hjá honum var
hann samfleytt í 16 ár, eða þar til hann var 26
ára gamall. Fórhann þá að Auðsholti í sömu sveit
og kvæntist þar Helgu Eyjólfsdóttur; var það rúmu
ári eftir að hann komst aftur á fætur úr kal-leg-
unni miklu. Er hann hafði búið í Auðsholti eitt
ár misti hann konu sína; mun sá missir hafa
fengið mjög á hann, því sambúð þeirra hjóna
liafði verið hín ástúðlegasta.
Þrem árum síðar kvæntist hann í annað sinn’
og gekk þá að eiga Höllu Magnúsdóttur frá Bráð-
ræði. Fluttist hann þá að Árhrauni á Skeiðuin og
bjó þar í 6 ár, fluttist síðan að Felli í Biskup^hmg-
um og bjó þar í 18' át. Árið 1886 seldi hann bú
sitt á Felli og fór lil Ameríku ásamt konu sinni
og börnum. Var hann í Ameríku undir 20 ár og
undi hag sínum þar allvel. Síðasta árið, sem hann
var þar vestra, misti liann seinni konu sína; festi
hann þá ekki lengur þar yndi og kaus því lielst
að hverfa heim aflur, vorið 1904, og hefur hann
verið hjer í Reykjavík síðan.
Pjetur eignaðist 12 börn og eru 5 þeirra á lííi,
2 synir og 3 dætur. Fjögur þeirra eru í Ameríku,