Óðinn - 01.06.1912, Page 4
20
ÓÐINN
Ólafsdalur.
við skuldir að stríða, byrjaði efnalaus, lagt í óum-
ræðilega mikinn kostnað, og bújörðin fremur van-
þakklát, er jeg hræddur um. Erfiðast taldi Torfi
að þurfa að sækja alla kaupstaðarvöru annaðhvort
til Uorðeyrar eða Stykkishólms, og verða það
mikil og góð umskifti, er Gilsfjörður er mældur og
uppsigldur til Sallhólmavíkur, og má þaðan, um
eina viku sjávar, flytja með grunnskreiðu fari
þungavöru í lúnfótinn.
Torfa hefur það og verið efnalegt tjón, að
hann vildi búa stærra en Ólafsdalur álti til, og
hafði jarðir undir úti í Saurbæ og Iagði þar mjög
inikið í kostnað til byggingar peningshúsa, sem
svo varð lítið úr. Nú væri Olafsdalur mjög golt
setur fyrir snotran búskap kostnaðarlítinn. Töðu-
fallið nú 800 hestar, með gerðistúninu niður við
sjóinn, þar sem slanda járnvarin fjárhús yfir 100
fjár, með hlöðum við. Auk töðunnar má nú afla
c. 400 hesta af úlheyi, mestalt eða alt innan girð-
inga, hygg jeg. Með nátthögum munu þar girtar
um 130 dagsláttur, og um helmingur af því er
tún. Sauðbeit er góð í hlíðuinim, að minsla kosli
gera ærnar gott gagn á sumrin eftir því sem Torfi
skrifar um fráfærurnar. Hlöður, meira og minna
járnklæddar, eru yfir hey öll. Fjósið er alt úr
steini með járnþaki, yfir 15 kýr, og haugshús úr
steini við, sem tekur alla ársmykjuna.
Myndin af bænum, í fjarsýn, — og virðist
mjer hún vera nokkuð gömul, — lælur ráða í tún-
aukana hjá Torfa, undir fjallshlíðinni, inn dalinn.
Hin myndin, sein tekin er nærri, neðan úr tröð-
unum, sýnir húsin heima við svo sem þau eru nú:
Til vinstri handar er smiðjan með geymsluskúr
við, og er húsið alt 12x12 álnir. IJá sjer á stafn-
inn á lágu liúsi, milli smiðjunnar og skólahússins,
og er steinhús, en það er mjólkurhús með kæli-
tækjum, því að \atnsveita er um alt, þvottalnis
og úti-eldhús. Aðalhúsið, sein reist var 1896,
er 30 álna langt, og tæpar 12 álnir á breidd, al-
járnvarið, steinlímdur kjallari undir. Vandað var
mjög til viða og smíðar, og var húsið að sjá sem
nýtt væri, er jeg kom þar fyrir 3 sumrum. Við
suðurstafninn á skólahúsinu er og stæðilegt hús,
þólt litið beri á því á myndinni, heitir það Suður-
húsið, er tvílyft með steyptu gólfi, og stærðin
10x12 álnir. Væri þar gott íbúðarhús fyrir ábú-
anda jarðarinnar, yrði meginhúsið aftur tekið til
skólanota. I3á er til hægri handar skemma eða
hjallur 12x6 áln., og yst til hægri handar sjest á
norðurstafninn á fjósinu. Hlöður sjást engar á
myndinni.
Nú er það að muna að Torfi hefur mjög
vandað til allra bygginga sinna, viljað hafa allar
smíðar sínar traustar, og í annan stað mun óhætt
að fullyrða, að engu minna fje liefur lagt verið i
moldina í Ólafsdal en í húsin, og munu menn þá
skilja, að fram hafi komið við Torfa það, sem
liann ungur las út úr jörðinni á Skotlandi, að alt
Jielta hefur lúð höndina, beygl bakið og læml
vasann.
Jeg get eigi stilt mig um að fara lijer ineð
nokkur orð, sem Torfi hefur ritað mjer. Veit jeg
að hann mundi banna mjer að hafa eftir, ef jeg
spyrði leyfis. Orðin eru þau: