Óðinn - 01.10.1912, Side 1
OÐINN
OKTÓBER 1013.
VIII. ÁR
Áge Meyer Benedictsen.
Age Meyer Benediktsen lektor er orðinn töluvert
kunnur hjer á landi af ferðalögum sínum á síð-
ustu árum og af fyr-
irlestrum, sem hann
liefur flutt hjer í
Reykjavík, en hann
er íslenskur í móður-
kyn, af hinni al-
kunnu Staðarfellsætt.
Faðir hans var
danskur stórkaup-
maður af Gyðinga-
ætt og hjet Filip
Ferdinand Meyer. AIi
F. F. Meyers hafði
komið frá Frakklandi
til Þýskalands með
Napóleóni mikla
1806; var hann um
eitt skeið fjármála-
umsjónarmaður í
Bremen, og ílengdist
í Þýskalandi eftir að
Napóleon misti völd,
en misti þar af ein-
hverjum orsökum,
sem ekki eru kunnar,
eignir sínar, er verið
höfðu allmiklar. Son-
ur hans varð úrsmið-
ur og lók aðsetur í
dönsku sveitaþorpi,
NakskoV, Og þar ^ge Meyer
fæddist elsti sonur
hans Filip Ferdínand 1829, er siðar varð ríkur
kaupmaður og kvæntist 1856 Önnu Mariu Bene-
diktsen, dóttur Jens Jacobs Benediktsens, islensks
stórkaupmanns, sonar Boga Benediktssonar bónda
á Staðarfelli í Dalasýslu, sem er alkunnur maður
hjer á landi. En kona Jens Jacobs Benediktsens
var dönsk og hjet Anna María, fædd Frahm, og
var faðir hennar einn af foringjum í hafnarorust-
unni við Kaupmannahöfn 2. apríl 1801, næststjórn-
andi undir Olfert Fischer.
Age Meyer Benediktsen er fæddur í Kaup-
mannahöfn 13. júlí
1868, og var barn
þeirra hjóna. Það
bar mjög snemma
á ferðalöngun hjá
drengnum, og 13 ára
gamall hætli hann
skólanámi og fór í
siglingar. Hannkom
þá í fyrsta sinn til
íslands, á skonnortu,
sem Martin Smith
frændi hans átli, og
var eitt sumar versl-
unarpiltur á lausa-
kaupmenskuferð um
Vestfirði. Enerhann
liafði verið í sigling-
um hálft annað ár,
gaf hann sig aftur að
náminu ogvarð stú-
dent 1886. Las svo
læknisfræði við há-
skólann í Khöfn um
hríð og tók undir-
húningspróf í þeirri
grein. Einn vetur
dvaldi hann í Norð-
ur-Rússlandi oghafði
þá í hyggju að setj-
ast þar að. Fór
hann þá að gefa sig
við tungumálanámi, og hallaðist síðan alveg að
því og þjóðminjafræði. Um þetta leyti kvæntist
hann. Kona lians hjet Jeannette Schönheider van
Deurs; bjuggu þau saman í sjö ár, en áttu ekki
börn. Hún dó 1898. Nú í sumar kvæntist hann í
annað sinn jótskri bóndadóttur, Kathrine Andreasen,
Beneilictsen.