Óðinn - 01.12.1916, Blaðsíða 8

Óðinn - 01.12.1916, Blaðsíða 8
72 ÖÐINN Árið 1910 birtist kvæðaflokkur, »Vídalín á Þing- völlum«, sem er eftir Magnús, og enn 1914 birtist eftir hann flokkur, sem heitir »Ábyrgðin«. Er það kröftug og heilbrigð ádrepa til lieimsins, sungin með dimmum, sterkum tónum, frá brjósti liins undirokaða öreiga, er skáldið lýsir í kvæðinu. Og á þessu sviði virðist M. G. eiga best heima, því þó að hann fáist einnig við önnur yrkisefni, finst mjer ádeiluandinn altaf hafa yfirhöndina og sj7nir það einnig hin nýja ljóðabók lians »Rúnir«, sem Brynjólfur Magnússon bókbindari gaf út síðastliðið liaust. í henni er margt gott að finna. Magnús Gíslason er jafnaðarmaður í raun og sannleika, og ótrauður málsvari lítilmagnans og liggur ekki á liði sínu með að opinbera sannfæringu sína svo sem tími hans og kraftar leyfa. Hann er sannur óvinur liins síríkjandi órjelllætis, sem heiminum er verri smán en öll stríð og blóðsúthellingar. Hjer á-jeg við það furðuverk, sem jeg hef heyrt best lýst í þessari gömlu visu : Pað er dauði og djöfuls nauð, að dygðasnauðir fantar safna auð með augun rauð, en aðra brauðið vantar. Jeg segi að þetta sje hin mesta smán heimsins vegna þess, að það smámyrðir margt það, sem best er og fegurst í heiminum, en í liildarleik er þá gengið svo lireinlega milli bols og höfuðs sem unt er. Sjerhvert gott og rjetllátt lijarta er heim- inum dýrmæt eign, hver sem geymir það, því að það getur skoðast sem lieilnæmt frækorn í lífsins akri, líklegt til að kæfa hið þráláta illgresi, órjett- lætið. En dýrmætust eru þó slík lijörtu lijá þeim, sem geta liaft áhrif á aðra með manngæsku sinni. Það er ekki örðugt að finna, er maður les ljóð M. G., að hann á eitt þetta viðkvæma hjarta og það, er það gefur, fagran undirhreim, erhljómar í gegn- um hina slerku lóna, er harpa hans hefur til um- ráða. Jeg man ekki eftir neinu núlifandi skáldi, er Ijóð M. G. minni á, en aftur svipar þeim stöku sinnum til Ijóða Þorsteins Erlingssonar, en þó miklu frekar til Bólu-Hjálmars, þó að M. G., enn þá að minsta kosti, vanli ýmis konar fullkomnun til að standa þeim jafnfætis. Nú vil jeg setja hjer sýnishorn af því, sem »Rúnir« hafa að bjóða. Fyrsta vísan, sem jeg set hjer, er þannig til orðin, að valdsmaður einn liafði lofað bláfátækum manni vinnu, er hann gat haft dálitið upp úr framvegis. En er sem allra verst stóð á fyrir fátæklingnum, vegna veikinda og vinnuleysis, þá veitir valdsmaðurinn vinnuna ein- hleypum mannj, sem bæði var ókunnugri starfinu og hafði vel launaða stöðu. Þá kvað M. G.: Styrktu æ pann sem sterkari er, en sljakaðu frá peim smærri; pað virðing meiri veitir pjer og valdamerkin stærri. Kvæðið »Fálækt« er eitt af þeim bestu í Rún- um. Þar í er þetta : Er á paki hríðin lilær, hylja skýin sunnu, kuldagustur greipir klær gegnum klæðin punnu. Oft í peirri örgu nauð ertu af blundi vakinn við að sáran biðja um brauð börn pin svöng og nakin. Vinnu er neitað pjer í pörf, pó hún bjóðist liinum; arðsöm jafnan ætluð störf auðugari vinum. »Ófriðurinn mikli« er ágætt kvæði. Þar í er þessi mjög smellna vísa : Hver fær lofið? sá, er myrðir mest. Minning glæsta? er ej'ðileggur flest. Ileiður mesta? er vitrust vjelráð býr. Völdin æðstu? er frelsi í kúgun snýr. »Bruninn mikli« er vel málað kvæði. ^Seinasta vísan er svona: Voðans sterki vísifingur virðum kennir ráð, afleiðing er ávinningur eftir liygni, dáð. Bygð er sundur logi leysir, lýðum færir sorg, en á hennar rústum reisir reynslan fegri bórg. Ekki hef jeg heyrt betur orkt eftir Þorgils gjallanda en kvæði M. G., er endar svona : Porgils dýrum krýna krans konur lands og synir; lengi munu minnast hans manna og dýra-vinir. »Útlaginn« er ágæt staka. Margt fleira mætti benda á, t. d. kvæðið »Á dansleik«, »Draumadísin«, »Gleð þig« o. s. frv. Jeg óska að Magnúsi Gíslasyni megi endast ald- ur og orka til að auðga íslenskt Ijóðlíf með miklu jafngóðu og þaðan af betra. Rikarður Jónsson. Prentsmiðjan Gutenberg.

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.