Óðinn - 01.12.1918, Side 2

Óðinn - 01.12.1918, Side 2
ÓÐINN 66 VIII. Var nú eigi Iengur um það eill að ræða, að breyta stjórnarskránni, heldur einnig stöðulögunum frá 1871, og fá í stað þeirra ný sambandslög. Ut af þessu spratt konungsheimsóknin 1907 og svo skipun sambandslaganefndarinnar, sem kom saman í Khöfn veturinn 1908. Frumvarp hennar til sam- bandslaga fór lengra en nokkrar kröfur, sem fram höfðu komið af íslendinga hálfu alt til þessa, en samt feldi alþingi það veturinn 1909 og samdi nýtt frumvarp, sem þó var aldrei borið fram fyrir konung. En með frumvarpi sambandslaganefndar- innar frá 1908 og störfum hennar var grundvöll- urinn lagður til þess, sem nú hefur gerst, en í hin- um nýju sambandslögum er einnig fullnægt þeim kröfum, sem fram komu í frumvarpi alþingis frá 1909. Eftir mikið þóf bæði hjer lieima og við dönsku stjórnina og danska stjórnmálamenn hafa loks skap- ast þau sambandslög, sem nú eru fengin, með ótví- ræðri fullveldisviðurkenningu íslandi til handa. En aðalforvigismaðurinn frá íslands hálfu þennan síðsla áfanga sjálfstæðisbaráltunnar hefur verið sá maður, sem lijer fylgir mynd af, .Jón Magnússon forsætisráðherra, og það er hann, sem undirskrifað hefur með Kristjáni konungi X. lögin, sem gera Island að fullvalda ríki. En áður hefur verið sagt í »Óðni« frá starfi sambandslaganefndarinnar hjer i Reykjavík síðastl. sumar og hvernig hún var mönnum skipuð. Á öðrum stað í blaðinu eru einnig sýndar myndir af þeim. »()ðinn« hefur áður flutt mynd og æfiágrip Jóns Magnússonar. Þetta er í aprílblaðinu 1910. Æfi- ágripið þar er skrifað af Þórhalli sál. Bjarnarsyni biskupi, og vísast hjer til þess um helstu æfialriði J. M. fram til þess tíma. Hann var þá fyrir rúmu ári orðinn bæjarfógeti í Ileykjavík, og því embætli gegndi hann þangað til hann í ársbyrjun 1917 varð forsætisráðherra. Ráðherrum var þá fjölgað úr einum í þrjá samkvæmt heimild, sem sett hafði verið inn í stjórnarskrána, ásamt fleiri breylingum, á þingunum 1914 og 1915. Var þá samsleypustjórn mynduð og skyldu aðalflokkar þingsins þrír leggja til liver sinn mann í stjórnina. J. M. varð þar fulllrúi Heimastjórnarílokksins, sem fjölmennaslur var í þinginu, og þólti það fyrir margra liluta sakir sjálfsagt, að J. M. tæki að sjer forsætisráð- herraembættið. Stríðsástandið liefur gert það að verkum, að slarf sljórnarinnar hefur síðustu árin verið erfiðara og margbrotnara en ella. Hún hefur orðið að hafa afskifti af mörgum málum, sem annars hafa ekki, fyrir stríðið, komið lil liennar kasta, svo sem af verslunarrekstri o. m. íl. Um öll þau mál er ekki rúm nje staður til að ræða hjer. En starf J. M. að úrlausn sambandsmálsins og það, að hann bar gæfu til þess að koma því máli i höfn, er eilt út af fyrir sig nægilegt til þess, að hans hlýtur að verða lengi og lofsamlega ininst í stjórnmálasögu landsLns. Hann hafði, eins og margir stjórnmálamenn okkar, lengi fengist við þetta mál. Skömmu eftir ílutning sljórnarinnar lieim liingað varð liann einn af aðalforgöngumönnnm þess, að blaðið »Lögrjetta« var stofnað, og hefur liann i eldri árganga hennar skrifað margar greinar um horfur þess, enda var liann í ritnefnd blaðsins 3 fyrstu árin. Hann var einn þeirra manna, sem sæti áttu í sambandslaga- nefndinni 1908, og af öllu því, sem gerst hefur í málinu síðan, hefur hann haft mikil afskifti. Hann var áður lengi þingmaður Vestmannaeyja, en frá 1914 hefur hann verið þingmaður Reykvíkinga. J. M. er fæddur 16. jan. 1859 og á því sexlugs afmæli í næsta mánuði. Að lokum skulu lijer tekin upp nokkur orð úr grein Þórlialls sál. Bjarnarsonar um J. M. í april- blaði »()ðins« 1910: ». . . Ekki er það ofmælt, að J. M. sje einhver allra besti lagamaður landsins, og vel haldast dómar hans. Hann hugsar manna best orð sín og gerðir og er afarvandur að hvoru- tveggja, sanngjarn maður og rjettsýnn; fyrir það einnig manna vinsælastur, og trúir því hver maður, að því starfi sje vel borgið, sem liann hefur með liöndum, hversu vandasamt sem er. Hann slarfar mikið á þingi, eigi sísl í nefndum, og eru tillögur lians mikils melnar«. Sí Kvöld. Dagurinn fölnar við djúpin blá. Ivveldgolan kveður við kulnuð strá draumbót dauðans. Dökkvinn flæðir sem eilur í sár þau, er sólunni blæðir. — 191(1. Jóh. Jónsson. Sl

x

Óðinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.