Óðinn - 01.12.1918, Blaðsíða 8

Óðinn - 01.12.1918, Blaðsíða 8
72 ÓÐINN Dóttir Mgrta mannsins: Þeir vita að við erum svo sterk. (Hurðinni er iirundið upp. Börnunum verður ilt við. Pau sieppa liöndum fangans. I.ugreglustjórinn kemur inn). Lögreglustjórinn: (branaiega) Hverfjandinn tefurj’kkur? Takið þið hann. Komið þið með hann. (Lögregluþjónarnir taka sinn um hvorn handlegg fanganum) Kona Fangans: (feliurfyrirfæturlögreglustjórans) Látið þið hann lausan. O, látið þið hann lausan (grætur). Takið þið mig; jeg er völd að sekt hans. Jeg hef leitl ógæfuna yfir okkur öll. Jeg er vond, en hann er góður. Jeg grálbið ykkur. Látið þið liann lausan. O, látið þið liann lausan. Verið þið rjettlátir. Þið megið síst af öllum gera það, sem er rangt (stendur upp — rjettir fram hendurnar). Hjerna, takið þið mig. Lögreglustjórinn: Út með fangann. (Lögregluþjónarnir leiða fangann til dyranna. Kona Fangans og börnin ganga grátandi á eftir þeim). Kona Fangans: Ó, látið þið hann lausan. Takið þið heldur mig. Miskunnið þið mjer. Ó! (fclluráfram meðútrjettar hendur). Öll börnin: (hrópa) Ó, pabbi, hjálpaðu okkur (takaað gráta ákaflega). (Lögreglustjórinn opnar dyrnar. Nokltur skrílsleg andlit sjást úti- fyrir í myrkrinu. Peir fara út með fangann. Hiátur og óhljóð heyrast utan af strætinu). Tjaldið. Bhagavad-Gita II. kviða. Nl. 61. En ef skynjunum öllum hann í skefjum heldur, hann öðlast þá óðar andlega rósemd. Eg er hans takmark, hann tapar þá eigi jafnvægi hugans, því hann er orðinn sem einvaldur yfir allri skjmjun. 62. Hver maður, sem jafnan um munað hugsar, af munaði heillast, og heillan sú vekur ástríðu í hjarta, en ástríðan fæðir reiðina af sjer, sem er rekka böl. 63. Af reiði leiðir hin ramma villa, og villan án tafar fær truflað minnið, en truflað minni fær mannviti sönnu glatað, en gumum er þá glötun búin. 64. Hver sál, er gát á sjer sjálfri hefur og lætur ei laðast að lystisemdum, nje fráfælist það, sem ei fellur skynjun, og leiðast lætur í lífi á jörðu af frumvitund sinni, til friðar hún gengur 65. í friði þeim þver öll þraut og mæða; þar senn fær jafnvægi hið sanna mannvit hjá öllum, sem öðlast hina andlegu rósemd. 66. En hver sem sjer sjálfum er sundurþykkur ei hefur i sál sinni hið sanna mannvit, þá frið cigi finnur hans flöktandi hugur, en hvernig friðvani má finna sælu? 67. Ef hugurinn hlýðir æ hvarflandi skynjun, þá villist hans skyn af vegum rjettum, sem flaust, er fárviðri um fleyvang hrekur. 68. Vit þú þess vegna — ó, vopnaða hetja — hinn rjetta skilning sá rekkur öðlast, sem taumhald hefur á huga og skynjun og megnar hana frá munaði draga. 69. Það, sem cr niðdimm njóla með þjóðum, er dagur dýrðlegur mcð djúpúðgum rekkum, en dagur með lýðum er draumnjórun hverjum, sem öðlast hefur hina æðri sjón. 70. Sá friðsælu finnur, sem fýsnir lætur æ um sig liða sem elfur, er falla í úthaf um aldir, en þó aldrei raska í djúpi ró; — en sá rekkur, er girnist æ girndir, er þræll sinna girnda og friðvana. 71. En hver, sem ástríðum öllum hafnar og þráir ekkert í þessum heimi og sjálfselskuvana sífelt lifir — hann er þegar frjáls og til friðar hann gengur. 72. Þetta er samvitund með sjálfum guði, hver hana öðlast — ó, arfi Pritha — og lætur ei truflast og lifir í henni á fjörlátsstundu, hann fer til Nírvana, hins eilífa, hans, sem aldrei breytist. Hjer endar önnur kviða í Upan- ishad, brag þeim, er nefnist heilög Bhagavad-Gíta vísindi um andann, hina eilífu Verönd.Y ogasöngvar, sam- ræður þeirra, liins heilaga Krishna og hilmis Arjúna og hún ber heitið: Hugspeki, er leiðir til samuitundar við guð. Sí Prentsmiðjan Outenberg.

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.