Alþýðublaðið - 17.10.1963, Page 16
HVAB er aö gerast? Jú, þetta
er sjón, sem á hverju liausti
fýrir augu þeirra, sem leiS
eiga um Lækjargötu neðan
Menntaskólans eftir að skólinn
hefur verið settur. Myndirnar
tók ljósmyndari Alþýðublaðs-
ins í góða veðrinu í gær af eld-
•vígslu busanna — hinni árlegu
„tolleringu”.
■ Tolleringar við Menntaskól-
ann í Reykjavík munu eiga ræt
ur sínar að rekja til þess tíma,
þegar Bessastaðaskóli var
helzta- menntastofnun landsins
fýrir meira en heilli öld, og
til sögur um snögg við-
brögð og rifinn rass frá þeim
tímum ekki síður en nú, þegar
glíman stendur á skólalóðinni
ofan Lækjargötu. En þó að bus-
arnir reyni að bjarga sér á
flótta undan þeim, sem fengu
að fljúga fyrir einu tveimur
eða þremur árum, nást þeir
samt ýmist úti eða inni. Kenn-
ararnir fylgjast með tvíráðir á
svipinn, því að þó að leikurinn
sé æsispennandi, getur gaman-
ið farið af, ef tolleringameist-
urunum bregzt bogalistin. Því
betur eru þess þó fá dæmi. Það
er hlaupið, æpt og stimpast við
— og busunum þeytt upp í loft-
ið einum af öðrum. Oft er
spaugiieg sjón að sjá þá, suma
hrópandi á öfugum enda, en
aðra ofur rólega og stóiska á
sínu flugi. Kvenþjóðin nýtur
engra forréttinda í þessum
sökiun, heldur eru stelpurnar
miskunnarlaust gripnar og tol-
leraðar. Auðvitað látast þær
hafa á móti þessu og hrópa
kannski svolítið hærra en efni
standa til ... en ... einn - tveir
- þrír. Síðasta busann ber við
himin — og eftir það verður
enginn busi í Menntaskólanum
í Reykjavík, fyrr en að ári. En
ekki þorum við að sverja fyrir,
að einhvers staöar finnist busi
í rifinni skyrtu eða týnd tala á
stöku stað í sölnandi grasinu.
MENNINGARSAMTOK
HASKOLAMANNA
Reykjavík, 16. okt - HP
ÖTOFNUÐ hafa verið Menningai-
Ujiintök háskólamanna, sem hafa
4 stefnuskrá sinni „að vinna á
Sræöiftfcíran og hlutlægan hátt að
•fír.amförum á sviði menningarmála.
^fiigangi síntun liyggjast þau ná
með því að gera samþykktir um
þessi efni að undangengnum át-
liugunum og umræðum og koina
þeim á framfæri við stjómarvöld
eða aðra þá aðila, er hlut eiga að
máli; svo og með birtingu þeirFa í
blöðum og útvarpi, ennfremur með
almennum umræðufundum eða á
annan hátt eftir því, sem henta
þykir”. Frá þessu var skýrt á blaða
mannafundi í dag, en samtökin
hafa þegar samþykkt ályktun um i
öryggismál bama og unglinga, en
fleiri ályktana er að vænta síðar.
Eitt tilboð barst í
Laugardalslðugina
Reykjavík, 16. okt. - G.G.
AÐEINS barst eitt tilboð í næsta
áfanga framkvæmda við nýju
sundlaugina í Laugardalnum. Var
það frá Byggingafélaginu Brú og
hljóðar upp á kr. 10.975.000.00, að
Aukafundur
hjá SH
SÖLUMIÐSTÖÐ hraðfrystihús-
anna hefur boðað til aukafundar í
Reykjavík þriðjudaginn 22. októ-
ber n. k. Á fundinum mun m. a.
verða rætt um rekstursvandamál
hraðfrystihúsanna, en afkomu
þeirra hefur hrakað mikið að und-
anförnu vegna stöðugt hækkandi
reksturskostnaðar. Niðurstöður at-
hugana á afkomu frystihúsa munu
verða lagðar fyrir fundinn og f jall-
að verður um starfsgrundvöll hrað-
frystihúsanna.
því er Valgarð Briem, forstjóri
lnnkaupastofnunar Reykjavíkur-
borgar, tjáði blaðinu í gær. Það,
sem vinna á í þessum áfanga, er
að steypa botninn í laugina, halda
áfram vinnu við áhorfendapallana,
gera í þá bak og steypa yfir þá
skyggni. Þetta er allvandasamt
verk og óvenjulegt, einkum í sam-
bandi við hina háu palla og skyggn
iö, og kann það að hafa valdið því,
að ekki bárust fleiri tilboð, enda
um mörg venjulegri og einfaldari
verkefni að ræða.
Valgarð tjáði blaðinu ennfrem-
ur, að nú væri verið að ganga frá
útboði í hitaveitulögn í enn eitt
hverfi í bænum og yrði það verk
boöið út næstu daga. Hér er uin
að ræða hverfið, sem takmarkast
af Langholtsvegi - Suðurlands-
braut og Álfheimum, mikið verk-
efni, sem taka mun tvö ár.
Þá er væntanlegt næstu daga
útboð í háhýsið, sem borgin hyggst
byggja í Heimunum.
Einstefnuakst
og ný bí
Reykjavík, 16. okt. - KG
Á FUNDI Umferðarnefndar fyrr í
mánuðinum kom fram tillaga frá
Borgarverkfræðingi þess efnis, að
einstefnuakstur verði tekinn upp
í Mávalilíð, Drápuhlíð og Blöndu-
hlíð frá Lönguhlíð að Reykjahlíð
og á Barmahlíð frá Lönguhlíð að
Engililíð.
Mun ætlunin með þessu að
flytja sem mest af þungaflutningn
um yfir á umferðaæðarnar. Mun
hafa verið gert ráð fyrir þessu í
upphafi og þá annar helmíngur
götunnar ætlaður sem biireiða-
stæði.
Einnig var samþykkt í nefndinni
að leggja til, að bifreiðastöður
verði bannaðar á Njarðargötu,
vestan megin götunnar. En nokk-
uð hefur verið gert að því að
banna bifreiðastöður öðru megin
á tvístefnuakstursgötum tíl þéss að
greiða fyrir umferðinni. * í
Á fundi nefndarinnar voru einn-
ig ræddar nokkrar framkvæmdir í
sambandi bifreiðastæði. Meðal
annars var samþykkt, að mæía með
því að lóðin Vesturgata 51' verði
tekin á leigu fyrir almenningsbif-
reiðastæði. Og að lagfært verði
bifreiðastæði vlð Eiríksgötu, milli
Barónsstígs og Njarðargötu.
Eitthvað mun hafa verið rætt
um mögulegar hækkanir á stöðu-
gjöldum. Miklar tekjur hafa verið :
af mælunum og liluta af því fé
verið varið til lagfæringa á bif-
reiðastæðum. Nokkurt fé mun nú
vera í sjóð til byggingar bifreiða- ;
geymslu í miðbænum, en beðið er ■
eftir heildarskipulagningu áður en ;
staðsetning verður endanlega á- ;
kveðin. !
IHHHHMHHMMWHWHMM
TEKNIR VÍD
ÓLÖGLEGA
LAðQ/EIÐI
TVEIR smástrákar voru tekn
ir á þriðjudag að ólöglegum
laxveiðum í Ellióaánum. Vó
þeir með nokkra laxa í poka,
en veiðitækið var bambus-
stöng, sem þeir höfðu fest
hníf við endann á. Stungu.
þeir laxinn og fleygðu bon-
um á land. Þannig hafði þeím
tekizt að ná í sex fiska. Tvo
1 höfðu þeir gefið, og einn
selt á 59 krónur.
MMMHHMHMnÚ