Alþýðublaðið - 20.11.1963, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 20.11.1963, Blaðsíða 4
HROSSASMÖLUN í MOSFELLSSVEIT Smalað verður öllum hrossum, sem ganga laus í hreppn- um, föstudaginn 22. nóvember n.k. og verða þau rekin í óskilagirðingu. ■ Réttað verður laugardaginn 23. nóv. kl. 1,30 e. h. Þau hross, sem ekki verða þá hirt, verða auglýst sem óskih Sveitarstjóri Mosfellshrepps. Albýðublaðið / vantar unglinga til að bera blaðið til kaup- enda í þessum hverfiun: Lindargötu Laugarási Barónsstíg, Skjólunum Hverfisgötu Álftamýri ÞINGFORSETINN, Eugen Gerstenmaier, með hinn gullna lykil að suðurálmu ríkisþingshúsbygg- ingarinnar, sem liefur verið endurreist. í álmunni eru sjö fundaherhergi og- 45 skrifstofur. í baksýn sést íoring-i Frjálsra demókrata og ráðherra alþýzkra m álefna, Ericli Mende. NU HITTAST ÞEIR AFTUR Afgrelðsla AlþýtSublafSsins Sími 14-900 i’ RIKiSÞINGHÚSINU GAMIA ÞJÓÐERNISJAFNAÐAR- 3MENN notuðu ríkisþinghúsbrun- tuin 27. febrúar 1933 sem tylli- aóstæðu til þess að handtaka komiii lúnista. Bruninn var notaður í á- Ttóðrinum fyrir kosningarnar, sem Jtialda átti sjö dögum síðar. Hollendinguriun Marinus van Xubbe var dæmdur. til dauða í rátt- .arhöldum í Leipzig í desember asama ár fyrir íkveikju og síðan Xengdur. Hollendingurinn, sem Riafði ekki virzt með öllum mjalla i réttarhöldunum, var dæmdur Jjrátt fyrir vitnisburð, sem virt- jfat brjóta í bága við niðurstöður «!óinstólsins. Því var seinna haldið fram, að Síermann Göring hefði komið brun ánum til leioar. RIKISÞINGHÚSBYGGINGIN gamla í Berlín hefur á ný dregizt inn í alþjóðastjómmál. Ríkisþing- húsið, sem er eitt af táknunum um ósigur lýðræðisins í Þýzka- landi og sigur einræðisstjórnar, er aftur orðinn fundarstaður þýzkra stjórnmálamanna. Tuttugu árum eftir ríkisþing- húsbrunann hefur suðurálma bygg ingarinnar verið endurvígð eftir gagngerar endurbætur og í fram- tíðinni munu meðlimir vestur- þýzka þingsins oft koma þangað til funda. Kommúnistar segja, að það sé fáheyrð ögrun að vestur- þýzkir stjórnmálamenn skuli nú nota þessa byggingu íyrir fundar- stað. Vígslan hefur vakið mikið upp- nám í Austur-Þýzkalandi og stjórn málamenn í Moskvu hafa einnig lagt orð í belg. Austur-Þjóðverjar segja, að þetta sé ögrun. Með því að gera rík isþinghúsið gamla að fundarstað fyrir vestur-þýzka sambandsþingið virði Vestur-Þjóðverjar þá stað- reynd að vettugi, að kommúnista ríkin viðurkenni ekki Vestur-Ber- lín sem hluta af vestur-þýzka sam- bandslýðveldinu. VONDUR TÍMI Ekki hefði verið hægt að finna óheppilegri tíma fyrir vígsluatt höfnina. Hún fór fram viku eft- ir stöðvun bílalesta á samgöngu- leiðunum til Berlínar, en þetta at vik varð til þess að menn óttuðust breytingu á stefnu Rússa. Hvöss ummæli Krústjovs eftir atvikið drógu ekki úr avartsýni manna. í ummælum Moskvuútvarpsins' um vígslu þinghúsbyggingarinnar var vikið að atburðunum við Ber- lín. Fyrirlesari útvarpsins kvað það ögrun, sem stofnað gæti sam rkiptum austurs og vesturs í hættu, að vestur-þýzka sambands þingið tæki við ríkisþinghúsbygg ingunni. Athöfnin fór fram á þann tákn- ræna hátt, að Eugen Gerstenmaíer var afhentur stór lykill úr gulli. Vestur-þýzka ríkið héfur greitt kostnaðinn við endurbætur á suð urálmunni. Kostnaðurinn hefur unnið um 30 milljónum marka, en endurbótunum verður haldið á- fram á næstu fjórum til fimm ár- um og endanlegur kostnaður er talinn verða um 80 millj. marka. Gerstenmaier sagði í vígslu- ræðu sinni: Við könnumst við þá fortíð sem hófst í ljóma og mik- illeika innan þessara veggja og lauk með hinum bitra ósigri 1933. Við munum halda áfram að varð- veita hinar friðelskandi erfðar- venjur. Enginn fulltrúi vesturveldanna var viðstaddur athöfnina. í FULLUM RÉTTI Gerstenmaier notaði tækifærið til þess að fullyrða, að sambands- þingið hefði fullan rótt til þess aö lialda fundj í Vestur-Berlín, en að öðru leyti vék hann ekki að ásökunum A.-Þjóðverja og Rússa. Það gerði Erich Mende, ráð herra alþýzkra málefna, hins vegar síðar. En hann bar kröftuglega til baka það, sem fólst í ásökunun. Mende telur, að enginn þurfi að efast um rétt þjóðþings, sem kos ið er í frjálsum kosningum, til Framliald ð 13. síðu. RA.ÐSÓFIhúsgagnaarkitekt SVE3INN KJAKVÁLi litiö k húsbúnaöinn. hjá husbúnaði , , , EKKERT HEIMILIÁN HÚSBÚNAÐAR SAMBAND HÚSGAGNAFRAMLEIÐENÐA Hugheilar hjartans þakkir færi ég öllum börnum mínum, tengdabömum og bamabömum fyrir höfðinglegar gjafir. Þeim og öllum öðrum skyldum og vandalausum, sem glöddu mig með gjöfum, heimsóknum, skeytum og blómum,, og gerðu mér 75 ára afmælisdaginn 10. nóv, s. 1. ógleyman- legan, bið ég öllum guðsblessunar. Guðfinna Einarsdóttir Öldugötu 4, Hafnarfirði. j Auglýsingasíminn er 149 06 4 20. nóv. 1963 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.