Alþýðublaðið - 20.11.1963, Blaðsíða 10

Alþýðublaðið - 20.11.1963, Blaðsíða 10
VARÐ FYRIR ÁRÁS Framhalri af 1. síðu. inn, a3 hann hefði ekki hragðað mat í þrjá sólarhringa, hann hefði verið á fylliríi. í morgun hefði hann verið orðinn mjög svangur, og ákveðinn í því að verða sér iiti um peninga með hverjum ráðum, sem hann þyrfti að beita. Um árásina á konuna á Vesturgötunni sagði hann, að hann hefði þurft að losna við hana til að geta leitað að pening- um. Hann hefði orðið mjög hissa, þegar hann sá, að hún rotaðist ekki við höggið. Þá kvaðst hann ekki hafa kunn- að við að berja gömlu konuna á Hávallagötunni, hún hefði verið svo kurteys og svo gömul. ☆ Reykjavík, 19. nóv. — GO. Frú Jóhanna Gúffmundsdóttir, Vesturgötu 65, sagðist vera dálítiff ringluð í kollinum, eftir að 16 ára unglingur molaði fulla bjór- flöskn á hnakkanum á henni. Við heimsóttum Jóhönnu í kvöld og sagðist hún hafa verið ein heima um klukkan hálf ellefu í morgun, þegar þokkalega klædd- ur unglingur knúði dyra en afsak- aði sig jafnskjótt og sagð Ist vera að fara húsavillt. Hann -fór svo niður, en kom að vörmu spori aftur og að þessu sinni beint inn í eldhús. Sagðist hann vera ókunnugur í bænum og bað Jóhönnu að sýna sér hvor gatan væri Vesturgata og hvor Selja- vegur. — Nú eldhúsglugginn minn snýr út að Seljaveginum og ég dró gluggatjöldin frá og bjóst til að segja honum til vegar. Meðan ég var að þvi, varð mér litið svo lítið útundan mér, svona eins og til að leggja frekari álierzlu á orð mín, en þá sé ég hann reiða flösku til höggs. Og höggið reið af. Eg vankaðist rétt í svip, en tókst að rífa mig frá honum og hljóp niður stigann og út. Eg heyrði hann koma á eftir mér, en þegar hann sá, að ég var kom- in að annarri hurð hér í undir- ganginum, tók hann til fótanna | og flýði yfir baklóðina. Eg hringdi svo á lögregluna og rannsóknarlögregluna, en fór sjálf á Slysavarðstofuna, þar sem saumaður var saman stór skurð- ur á hnakkanum. Eg gizkaði á að pilturinn væri 18 ára gamall, en seinna kom upp úr kafinu, að hann er ekki nema 16 ára. Hann var ekkj mjög áberandi drukkinn, þegar hann kom til mín, minnsta kosti ekki svo að orð sé á gerandi. Hann var kurteis og kom vel fyrir allt þang- að til höggið reið af. Þegar ég spurði hann hvaðan hann væri, sagðist hann vera ættaður frá Akureyri, en það mun vera ósatt. Eg segi fyrir mig, að mér fannst ekki ástæða til að tortryggja drenginn að óreyndu, og maður veit vel, að það getur komið fyrir alla að þurfa að spyrja til vegar. Hér lauk Jóhanna frásögn sinni, en til minja um atburðinn hefur hún stóran plástur á hnakk- anum þar sem skurðurinn er. Jóhanna er gift Ingibergi Jón- assyni verkamanni. FRÁ FLUGFÉLAGINU UM ÍSAFJARÐARFLUG UM SÍÐUSTU helgi birtust í nokkrum dagblöðum Reykjavikur fréttir um stopular flugsamgöngur viff ísafjörff og var m. a. gefiff í skyn, aff flug þangað hefffi falliff niffur sl. föstudag vegna þess aff allar flugvélar hefffu veriff í „gos- flugi.” , Vegna þessara frétta óskar Flug- félag íslands að taka fram eftir- farandi: Föstudaginn 15. nóvember var áætluð ferð til ísafjarðar kl. 12 f Starfið í Burst Á fimmtudaginn kl. 9 verffur félagsvist í félags- heimiii FUJ, Burst í Stórholti 1. Á. föstudag kemur þar saman skemmti- klúbburinn ,Kátir krakkar' og á laugardag verffur mál- fundaræfing Mjölnis. Innrit- un í málfundarhópa FUJ verffur nk. fimmtudagskvöld mUli 8,30 og 9. iHnWHMWUWMMWMUWW og var ákveðið að flugvélin Gljá- faxi færi vestur að afloknu flugi til Vestmannaeyja. Vindur var hægur af norðri, en skömmu eftir lendingu Gljá- faxa í Eyjum hvessti. Var vind- styrkur 6 vindstig, sem er of hvass hliðarvindur til þess að flugtak með farþega sé leyfilegt, samkv. reglum um Vestmannaeyja flug- völl. Þegar örvænt þótti að lygndi, svo flugtak með farþega yrði ger legt, voru flugstjóra send skila- boð, hvort hann vildi fljúga vél- inni tómri til Reykjavíkur og kom hún þangað kl. 14,35. Þá var orðið of seint að leggja af stað vestur, vegna þess, að flugvélin hefði lent í myrkri á ísafirði, en þar er ekki aðstaða til næturflugs, en aðrar Dakota flugvélar félagsins voru í ferðum til Hornafjarðar og Akureyrar. Flugfélag íslands harmar að svona skyldi fara, ekki sízt þar, sem ófært hafði verið vestur næstu daga á undan. Það voru hins veg- ar veðurguðirnir en ekki „gos- flug,” sem ollu því, að ísafjarðar- flug féll niður títt nefndan föstu- dag. Daginn eftir, laugardaginn 16. nóvember voru flognar tvær ferð- ir til ísafjarðar og allir farþegar og vörur, er þá biðu flutnings, fluttar. Englandsför Framh. af 16. síffn hjónunum. Var þar mikill fjöldi brezkra framámanna og allt fylgd- arlið forsetans auk nokkurra ís- lendinga, sem búsettir eru í London. Veitt var franskt kampa- vín og má geta þess, að þetta er fyrsta móttaka í forsætisráðherra- bústaðniun eftir að hann hefur verið endumýjaður eða uppgerð- ur fyrir eina milljón sterlings- punda að sagt er. Meffal íslend- inga í hinni fjölmennu móttöku voru Bjöm Björnsson, Karl Strand, Jóhann Sigurðsson, Eirík- ur Benediktz og frúr þeirra. Varðandi kvöldverðarboðiff má geta þess, að forsetinn hafði frú Butler á hægri hönd og lafði Douglas Home á vinstri, og við hlið hennar sat einnig utanríkis- ráðherra íslands. Brezki forsætis- ráðherrann hafði forsetafrúna á hægri hönd en íslenzku utanríkis- ráðherrafrúna á vinstri, en við hlið hennar sat Butler. í kvöldverðarboðinu bauð for- sætisráðherrann forsetann vel- kominn með nokkmm mjög vin- samlegum orðum og forsetinn þakkaði. í morgun heimsótti Ásgeir Ás- geirsson forsetj þá Butler utanrík isráðherra og Home forsætisráð- herra á stjórnarskrifstofur þeirra. Ræddi hann í um það bil klukku- stund við hvorn þeirra og færði þeim báðum gjafir. Síðan sátu forsetahjónin hádeg- isverðarboð drottningar í Bucking- ham höll, sem fyrr segir og þar færðj forsetinn drottningu að gjöf útgáfu Háskóla íslands af íslend- ingabók Ara fróða, bundna í fork- unnarfagurt skinnband silfur- urskreytt. Að loknum hádegisverðinum heimsótti forsetinn og fylgdarlið hans brezka þingið og hlýddi þar á umræður í báðum deildum. Á morgun mun forsetinn heim- sækja British Museu og Tate Gall- ery. Blöð í Bretlandi hafa farið mjög lofsamlegum orðum um forseta íslands og skrifað mikið um heim- sókn hans. í kvöldverðarboði því, sem Home forsætisráðherra hélt til heiðurs forsetahjónunum voru 38 manns, þar á meðal Guðmundur í. Guð- mundsson utanrikisráðherra og frú, Butler, utanríkisráðherra Breta, Harold Wilson, foringi stjórnarandstöðunnar, Christoph- er Soames, fiskimálaráðherra, sendilierra íslands í London, for- setaritari og frúr þeirra. Eins og áður segir, var kvöld- verðarboðið í Dovvningstreet 10 og að því loknu var fjölmenn við- hafnarmóttaka til heiðurs forseta- TRYGGVI Framh. af 1 síffu vöruflutninga og einnig til leitar- og sjúkraflugs. Þess má geta, að Tryggvi á 4 flugvélar fyrir. Ein þeirra er 2ja hreyfla af Piper Aphace gerð, en hinar cru Piper Cub, Piper Colt og Auster-vél. Það hefur háð hon- um mikið, að ekkert gott flugskýli er á vellinum á Akureyri. Eins og er verður hann að skáskjóta vélun um inn í eina skýlið, sem er á flug vellinum, en það eru samliggj- andi skúrabyggingar. Er það mik- ið nauðsynjamál, að nýtt og stórt flugskýli verði byggt á vellinum áður en nýju vélarnar koma. Tryggvi mun sækja nýju vél- arnar til Bandaríkjanna næsta vor. m SKÁK Framh. af 1 síðu fengið hefur titilinn alþjóðlegur meistari. Þá hafa verið nefndir í þessu sambandi, Guðmundur Pálmason og landsliðsmennirnir Jón Kristinsson, Magnús Sól- mundarson og Freysteinn Þor- bergsson. Það er óþarfi að taka það fram, að ef af þessu móti verður, er þetta stór-viðburður f skákheim- inum, ekki aðeins fyrir íslend- inga, heldur og aðrar þjóðir. ÍÞRÓTTIR Framhald af 11. síðu. Sviþjóff 55,85, Eugen Ekman, Finn land 55.4 stig. ★ Danir sigruffu í badminton. Norffnrlandamót í badminton fór einnig fram nýlega í Borás í Sví- þjóff. Danir voru sigursæfir. í ein- liffa keppni sigraffi K. A. Nielsen landa sinn H. Borch meff 15—8, 6—15 og 17—16. — í tvíliðakeppni kvenna sigruffu dönsku stúlkurnar Jörgensen og Rasmunsscn óvænt burasysturnar Flindt meff 6—15, i 15—4 og 15—9. í tvenndarkeppni 1 sigrnffu Borch og Rasmunsscn,- | Danmörkui Mertz og Jörgensen ’ meff 15—13 og 15—8. Meistaraflokkur Framh. at II. síðu eins vel útfærður og hjá Fram. Það'-sem gerði útslagið nú var að markvörður Vals varði með ágæt- um, en markvörður Fram var cins i og út á þekju. Var það eannar- lega mikill munur á frá því í ieik Fram við Ármann fyrir skemmstu, en þá stóð sami markvörður sig með ágætnm. Valur lék enn án Sigríðar Sigurðardóttur og hefur það að sjálfsögðu sín áhrif á getu liðsins. Ekki verður sagt, að leik- ur þessi hafi upp á góðan hand- knattleik að bjóða því hann var bæði þunglamalegur og lítt ekemmtilegur á köflum. Mörk Vals skoruðu: Sigrún 3, Elinborg 2 og Vigdís 1, en fyrir Fram: Unnur 1, Kristín 1, Val- gerður 1 og Geirrún 1. Dómari var Gunnar Jónsson. Þá fóru fram 3 leikir í 2. fl. karla og urðu úrslit þessi: ÍR-KR 8-7 - Valur-Ármann 16-4 Fram-Víkingur 10-5 Loks léku svo Ármann og KR í 1. fl. karla. Sigruðu Ármenningar með 9-7. í liði Ármanns léku tveir gamalkunnir handknattleiksmenn, þeir Kjartan Magnússon og Jón Erlendsson. Var sannarlega gam- an að sjá, að enn geta þeir fyllí- lega haldið sínu í keppni við sér yngri menn. Valsmenn á Akranesi Fjórir handknattleiksflokk Vals sóttu Akurnesinga heim u helgina. Valsmenn sigruðu í öllu leikjunum. í mfl. karla með 34-3 í II. fl. karla með 22-17, í III. karla með 18-11 og í II. fl. kvem með 10-8. Áhorfendur voru marg og skemmtu sér. Það bar til tí inda, að Akumesingar fengu þak arskeyti frá Val fyrir móttökur ar daginn eftir, en slíkt hefur ek skeð áður í íþrótfasögu Skag manna. 10 20- nóv- 1963 — alþýðublaðið Allir vilia... Framh. af 16. síffu endurtryggjendur og á niðurstöff- um þeirra ylti hvort áframhald gæti orðið á tryggingunum. Brunabótafélag íslands kvað mikið um fyrirspurnir vegna jarð skjálítatrygginga í Vestmannaeyj- um og væri ekki ástæða til að ætla annað en tryggingarnar yrðu teknar. Alménnar tryggingar h.f. svör- uðu því til, að ekki hafi borið á aukinni eftirsmim eftir jarð- skjálftatryggingum hjá þeim, eft- ir að gosið við Vestmannaeyjar hófst. En slíkar tryggingar yrðu að sjálfsögðu teknar. Samvinnutryggingar taka ekki jarffskjálftatryggingar nema á þeim húsum, sem elnnig eru brunatryggð hiá þeim. Félagið hefur ekki slíkar tryggingar í Vestmannaeyjum eða á Suður- nesjum og getur því ekki sinnt þeim sem til þeirra leita á þessu svæði. Þessu valda endurtrygg- ingasamningar félagsins. Herbergi óskast Reglusamur vélsetjari ósk- ar nú þegar eftir her- bergi, (má vera lítið). Upp- lýtingar í prentsm. Alþbl., sími 14905 eftir kl. 5. í dag og næstu daga. Tökum að okkur allskonar prentun HagprentS Bergþórugötu 3 — Sími 38270 Bílasalan BÍLLINN Sölumaffur Matthías !>inn 24540. heíur hílinn. Sigurgeir Sigurjónsson hæstarétta rlögmaður Málf lu tn i n gsskr ifstof a Óffinseötir i Síml 11043. KarSmannaföt Drengjaföí Vcrzl SPARTA Laugavegi 87 SMUBSTÖÐIN Sætúni 4 - Símí /6-2-27 BiUinn er smurður fijótt og veL Scljum aUar tegundir af smurolin.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.